Engin nauðsyn fyrir skattahækkunum eða blóðugum niðurskurði

Fjár­mála­ráð­herra segir enga nauð­syn fyrir skatta­hækk­unum til að fjár­magna aðgerðir stjórn­valda í núver­andi kreppu. Nýsköp­un­ar­ráð­herra sagði heldur enga þörf á „blóð­ugum nið­ur­skurði,“ en bætti við að hægt yrði að stokka upp í rík­is­fjár­málum.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra til vinstri á myndinni, ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, í miðju.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra til vinstri á mynd­inni, ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, í miðju. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði stjórn­völd ekki þurfa að hækka skatta í fram­tíð­inni til að standa undir við­bragðs­að­gerðum við efna­hag­skrepp­unni, þar sem skatt­tekjur myndu sjálf­krafa aukast þegar hag­kerfið tekur við sér aftur. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra segir að ekki þurfi heldur að ráð­ast í „blóð­ugan nið­ur­skurð“, heldur sé hægt að for­gangs­raða verk­efnum rík­is­ins.

Ráð­herr­arnir sátu fyrir svörum á opnum fundi á vegum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hádeg­inu í dag. Við­burð­inum var streymt út á Facebook-síðu flokks­ins, en hægt er að nálg­ast upp­töku af honum hér.

Þarf bara að stækka kökuna

Á fund­inum var spurt hvort það myndi ekki koma að því fyrr en síðar að hækka skatta til að mæta afleið­ingum COVID-19, en Bjarni svar­aði þeirri spurn­ingu neit­andi. Hann benti á að tekju­sam­dráttur hins opin­bera hafi ekki komið til vegna gríð­ar­legra skatta­lækk­ana, heldur vegna þess að efna­hags­um­svifin í land­inu dróg­ust saman.

„Til að halda áfram með þessa rök­leið­ingu þá þarf í raun og veru bara að stækka kök­una aftur og þá skila tekj­urnar sig til­baka,“ bætti hann við.

Ekki blóðugur niðurskurður heldur hagræðing

Þórdís Kolbrún sagði rík­is­sjóð þó standa frammi fyrir tveimur val­kostum á ein­hverjum tíma­punkti: Skatta­hækk­anir sem tækju nauð­syn­legt súr­efni frá atvinnu­líf­inu og hag­ræð­ingu í rík­is­út­gjöldum. „Þetta snýst ekki um blóð­ugan nið­ur­skurð eða að gera ekki neitt,“ sagði hún á fund­inum.

Þess í stað minnt­ist hún á upp­stokkun á þeim kerfum sem hið opin­bera sér um og for­gangs­röðun á þeim verkefum sem ríkið á að sinna, hvort sem það sé í heil­brigð­is­kerfi, mennta­kerfi eða eft­ir­lits­stofnun. „Það er líka spurn­ing: Þarf ríkið að eyða svona miklum fjár­munum á ári hverju?“ bætti hún við. „Erum við kannski bara mögu­lega eyða of miklum fjár­munum?“

Meiri hagræðing nauðsynleg að mati Ríkisendurskoðunar

Líkt og Kjarninn greindi frá á föstu­dag­inn í síð­ustu viku kall­aði Rík­is­end­ur­skoðun eftir minni útgjöldum hjá hinu opin­bera svo að ríkið geti dregið úr halla­rekstri og greitt niður skuldir til að end­ur­heimta jafn­vægi í efna­hags­málum.

„Efna­hagsúr­ræði stjórn­valda eru hugsuð sem tíma­bundnar ráð­staf­anir en ljóst má vera að þan­þol rík­is­sjóðs er tak­mörk­unum háð þegar fram í sækir,“ segir Rík­is­end­ur­skoðun í skýrslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár