Kallar eftir hagræðingu hjá hinu opinbera

Meiri hag­ræð­ing og skil­virkni rík­is­út­gjöldum er nauð­syn­leg svo að hægt sé að standa undir mót­væg­is­að­gerðum í yfir­stand­andi kreppu, segir Rík­is­end­ur­skoðun í nýút­gef­inni skýrslu.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra við kynningu fjárlagafrumvarpsins í fyrra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við kynn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­magns­kostn­aður rík­is­sjóðs jókst mikið á síð­asta ári vegna auk­innar lán­töku og mik­illar verð­bólgu í fyrra. Rík­is­end­ur­skoðun segir efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar í yfir­stand­andi kreppu vera kostn­að­ar­samar og að leita þurfi allra leiða til hag­ræð­ingar og auk­innar skil­virkni í rík­is­út­gjöldum til að standa undir þeim.

Þetta kemur fram í nýút­gef­inni skýrslu stofn­un­innar um áhrif heims­far­ald­urs­ins á rík­is­fjár­mál. Samkvæmt henni var halli rík­is­sjóðs áætl­aður á 270 millj­örðum króna í fyrra og búist er við að hann nemi 264 millj­örðum króna í ár.

Þetta eru mikil við­brigði frá árinu 2019, þar sem rík­is­sjóður var rek­inn með 42 millj­arða króna afgangi, og árinu 2018, þegar afgang­ur­inn nam 84 millj­örðum króna. Mögulegt er að hall­inn verði enn meiri, þar sem eftir á að koma í ljós hvaða áhrif tekju­fall margra opin­berra fyr­ir­tækja, líkt og Isavia, RÚV og Íslands­pósts, muni hafa á rík­is­sjóð.

Meiri kostnaður vegna hærri verðbólgu

Fjár­magns­kostn­aður rík­is­sjóðs var einnig 40 millj­örðum krónum meiri á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs en á sama tíma árið 2019. Nær alla hækk­un­ina má rekja til verð­tryggðra lang­tíma­lána sem ríkið hefur tekið, en mikil verð­bólga í fyrra leiddi til þess að svo­kall­aður verð­bóta­þáttur lán­anna hækk­aði um 40 millj­arða.

Meiri­hluti fjár­magns­kostn­aðar rík­is­sjóðs í fyrra var vegna verð­bóta á verð­tryggðum lánum, en til sam­an­burðar námu verð­bæt­urnar ein­ungis 11 pró­sentum af fjár­magns­kostn­aði árið 2019.

Samkvæmt Rík­is­end­ur­skoðun bíður stjórn­valda mikil áskorun á kom­andi árum við að draga úr halla­rekstri og greiða niður skuldir til að end­ur­heimta jafn­vægi í efna­hags­málum. Stofn­unin bætir við að rík­is­sjóður gæti haft tak­markað svig­rúm til ann­arra útgjalda ef vextir eða verð­bólga hækkar eða gengi krón­unnar veik­ist mikið á næst­unni.

„Telur Rík­is­end­ur­skoðun að áfram verði að leita allra leiða til hag­ræð­ingar og auk­innar skil­virkni á útgjalda­hlið rík­is­fjár­mál­anna sam­hliða mót­væg­is­að­gerðum til stuðn­ings heim­ilum og fyr­ir­tækjum,“ segir enn fremur í skýrsl­unni. „Efna­hagsúr­ræði stjórn­valda eru hugsuð sem tíma­bundnar ráð­staf­anir en ljóst má vera að þan­þol rík­is­sjóðs er tak­mörk­unum háð þegar fram í sækir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár