„Yfirbygging okkar litla lands er orðin allt of stór“

Thomas Möller spurði á þingi hvort Íslend­ingar myndu byrja með því að setja á stofn 180 rík­is­stofn­anir og 40 rík­is­fyr­ir­tæki, 700 ráð og nefndir til að halda kerf­inu gang­andi ef lýð­veldið yrði stofnað í dag.

Thomas Möller
Thomas Möller Mynd: Skjáskot/Alþingi

„Ímyndum okkur að við værum að stofna okkar lýð­veldi núna. Myndum við byrja með því að setja á stofn 180 rík­is­stofn­anir og 40 rík­is­fyr­ir­tæki, 700 ráð og nefndir til að halda kerf­inu gang­andi? Myndum við búa til Stjórn­ar­ráð með um 800 starfs­mönnum og 12 ráðu­neytum? Ég held ekki. Væri þörf á Seðla­banka með 300 starfs­mönnum? Þurfum við 40 eft­ir­lits­stofn­anir eða mætti hugs­an­lega sam­eina þær? Myndum við skipta land­inu í 69 sveit­ar­fé­lög eða myndu bara 12 duga?“

Thomas Möller vara­þing­maður Við­reisnar spurði þess­ara spurn­inga undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni. Hann sagði að yfir­bygg­ing okkar litla lands væri orðin allt of stór og grunar hann að skatt­greið­endur hér á landi séu honum flestir sam­mála.

Hann benti á að stundum væri glöggt gests augað. „Sem vara­þing­maður má segja að ég sé gestur hér þessa viku og hef meðal ann­ars varið tíma mínum í að skoða umfang stjórn­kerfis okkar litla lands. Ég vil hvetja þing­menn til að staldra við og íhuga hvort ekki sé hægt að minnka yfir­stjórn lands­ins og draga þannig úr kostn­aði.“

„Ísland nú með næstmestu skattpíningu á Vesturlöndum“

Thomas sagði að báknið hefði stöðugt stækkað í tíð núver­andi rík­is­stjórnar. Nýjasta útspilið væri að setja 2 millj­arða í fjölgun ráðu­neyta.

„Ég er alls ekki að kasta rýrð á störf opin­berra starfs­manna og flestir þeirra eru að veita okkur frá­bæra þjón­ustu. En almenn­ingur sér hvað rík­is­kerfið þenst út á hverjum degi, yfir­bygg­ingin stækkar þegar aug­lýst er eftir fleiri starfs­mönnum og skrif­stofu­bygg­ingar rík­is­ins rísa upp hér allt í kringum okkur. Um hver mán­aða­mót birt­ist umfang hins opin­bera þegar laun­þegar sjá að aðeins um helm­ingur laun­anna er greiddur út. Hinn helm­ing­ur­inn fer í opin­ber gjöld enda er Ísland nú með næst­mestu skatt­pín­ingu á Vest­ur­löndum,“ sagði hann.

Hann hvatti þing­menn til að staldra við og íhuga hvort ekki mætti gera betur í þessum efnum. „Viðreisn mun koma með og styðja allar hug­myndir sem draga úr yfir­bygg­ingu rík­is­ins og gera þjón­ustu hins opin­bera skil­virk­ari og hag­kvæm­ari, til dæmis með staf­rænum lausnum. Einnig munum við koma með hug­myndir sem lækka álögur á fyr­ir­tækin og heim­ilin í land­inu,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár