Bannað að rukka lántökugjöld sem hlutfall af lánsfjárhæð

Í nýsam­þykktum lögum um fast­eigna­lán til neyt­enda, sem sam­þykkt voru 13. októ­ber síð­ast­lið­inn, er lán­veit­endum bannað að rukka lán­töku­gjald sem hlut­fall af láns­fjár­upp­hæð líkt og tíðkast hefur hingað til. Lán­töku­gjald þeirra sem taka íbúða­lán mun lækka umtals­vert við þessa breyt­ingu og neyt­endum því gert auð­veld­ara fyrir að færa sig á milli lán­veit­enda með íbúða­lán sín til að fá sem best kjör. Frum­varpið var lagt fram fyrir tæpu ári síðan og hefur síðan verið í vinnslu hjá Alþingi.

Tveir bankar, Arion banki og Lands­bank­inn, hafa í þessum mán­uði til­kynnt um að lán­töku­gjald sem þeir rukka verði ekki lengur hlut­fall af láns­fjár­upp­hæð heldur föst krónu­tala. Lands­bank­inn, sem fram­kvæmdi sína breyt­ingu 6. októ­ber, sagði í sinni til­kynn­ingu að til­gang­ur­inn „með þessum breyt­ingum er að bæta kjör þeirra sem taka íbúða­lán hjá Lands­bank­anum.“ Breyt­ing­ar­til­laga við frum­varp um lög um fast­eigna­lán sem í fólst að banna hlut­falls­leg lán­töku­gjöld var lögð fram eftir að Lands­bank­inn til­kynnti um breyt­ingar sínar. Arion banki til­kynnti um sína breyt­ingu tveimur dögum eftir að lögin voru sam­þykkt.

Báðir bank­arnir rukk­uðu áður eitt pró­sent af láns­fjár­hæð í lán­töku­gjald af þeim sem voru ekki við­skipta­vinir bank­ans, en 0,75 pró­sent af við­skipta­vinum sínum. Efri mörkin þýddu að sá sem tók 30 millj­óna króna lán þurfti að greiða 300 þús­und krónur í lán­töku­gjald. Nú rukkar Lands­bank­inn fast 52.500 króna gjald óháð láns­fjár­hæð. Arion banki rukkar aðeins minna, eða 49.900 krónur, í lán­töku­gjald. Gjöldin eru ekki að öllu leyti sam­bæri­leg. Því er ljóst að breyt­ing­arnar hafa gert íslenskum neyt­endum mun auð­veld­ara fyrir að hreyfa sig á milli lána­stofn­anna og sparað þeim, í mörgum til­vikum, hund­ruð þús­unda króna, í lán­töku­gjöld.

Íslands­banki hefur enn ekki til­kynnt um breyt­ingar á lán­töku­gjöldum sínum, en þau eru í dag 0,75 pró­sent af láns­fjár­hæð. Það hefur Íbúða­lána­sjóður og líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem einnig eru stórir íbúða­lán­veit­endur, heldur ekki gert. Það þurfa þeir raunar ekki að gera alveg strax því að lögin taka ekki gildi fyrr en 1. apríl 2017.

Samkeppniseftirlitið fagnar banninu

Sam­keppn­is­eft­ir­litið vekur athygli á hinum nýsam­þykktu lögum á heima­síðu sinni í dag. Þar segir að ákvæðið sem banni lán­veit­endum að rukka hlut­fall af láns­fjár­hæð í lán­töku­kostnað feli í sér „ígildi banns við því að lán­töku­gjöld séu lögð á sem hlut­fall af láns­fjár­hæð. Sam­keppn­is­eft­ir­litið fagnar þessu en í umsögn sinni, dags. 7. jan­úar 2016, til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, hvatti Sam­keppn­is­eft­ir­litið til þess að slíkt ákvæði yrði inn­leitt í frum­varpið.“

Í frétt eft­ir­lits­ins segir einnig að það hafi á liðnum árum lagt áherslu á það við stjórn­völd og fyr­ir­tæki á fjár­mála­mark­aði að gripið yrði til aðgerða til að draga úr sam­keppn­is­hindr­unum í fjár­mála­þjón­ustu. „Einn liður í þessu hefur verið að vinna gegn óþörfum skipti­kostn­aði sem gerir við­skipta­vinum erfitt um vik að skipta um þjón­ustu­að­ila. Með því er unnt að búa í hag­inn fyrir virk­ari sam­keppni, ekki síst í almennri við­skipta­banka­þjón­ustu og á íbúða­lána­mark­aði. Afnám lán­töku­gjalds sem hlut­falls af láns­fjár­hæð er mik­il­vægt skref í þessa átt.“

Frétt­inni var breytt klukkan 19:24 eftir ábend­ingu um að Lands­bank­inn hafi breytt sínum lán­töku­gjöldum áður en breyt­ing­ar­til­laga um bann við að rukka hlut­fall af láns­fjár­hæð í lán­töku­kostnað var lög fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár