Tveir stjórnarmenn studdu ekki brottrekstur forstjóra HB Granda

Tveir stjórn­ar­menn í HB Granda studdu ekki að Vil­hjálmi Vil­hjálms­syni yrði vikið úr starfi for­stjóra.

HB Grandi
HB Grandi Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tveir stjórn­ar­menn í HB Granda studdu ekki að Vil­hjálmi Vil­hjálms­syni yrði vikið úr starfi for­stjóra á fimmtu­dag­inn. Um er að ræða þær Rann­veigu Rist, vara­for­mann stjórnar, og Önnu G. Sverr­is­dóttur. Þetta kemur fram í frétt Mark­að­ar­ins í morgun.

Hins vegar ríkti sam­staða í stjórn um að ráða stjórn­ar­for­mann­inn Guðmund Krist­jáns­son, aðal­eig­anda Brims sem keypti nýverið 34,1 pró­senta hlut í útgerð­inni, sem for­stjóra HB Granda. Hann sagði starfi sínu lausu sem for­stjóri Brims eftir ráðn­ing­una.

Rannveig og Anna töldu, sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins, að rétt væri að bíða með að ráða nýjan for­stjóra að minnsta kosti þar til yfir­tökutil­boð Brims í HB Granda væri um garð gengið.

Fjár­festar hafa frest fram á föstu­dag til að taka afstöðu til þess. Guð­mundur taldi hins vegar æski­legt að það lægi fyrir hver yrði for­stjóri útgerð­ar­innar á meðan yfir­tökutil­boðið væri enn í gildi til þess að það kæmi fjár­festum ekki í opna skjöldu, segir í frétt­inni.

Meiri­hluti stjórn­ar HB Granda valdi Guð­mund sem for­stjóra ­út­gerð­ar­fé­lags­ins þann 21. júní síð­ast­lið­inn. Í til­kynn­ingu á vef Kaup­hall­ar­innar sagði að meiri­hluti stjórnar félags­ins hefði tekið ákvörð­un­ina á fundi sam­hliða ákvörðun um gerð starfs­loka­samn­ings fyrir Vil­hjálm Vil­hjálms­son, frá­far­andi for­stjóra félags­ins. Í kjöl­farið skipti stjórn með sér verkum á ný og var Magnús Gúst­afs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Coldwater í Banda­ríkj­unum, kjör­inn nýr stjórn­ar­for­mað­ur.

Guð­mundur Krist­jáns­son er fyrr­ver­andi for­stjóri útgerð­ar­fé­lags­ins Brims, en eins og Kjarn­inn hefur greint frá keypti hann 34,1 pró­sent eign­ar­hlut Krist­jáns Lofts­sonar og Hall­dórs Teits­sonar í HB Granda. Kaupin námu tæp­lega 21,7 millj­örðum króna. Guð­mundur bauð sig svo fram í stjórn félags­ins en var val­inn stjórn­ar­for­maður á aðal­fund­i HB Granda þann 4. maí síð­ast­lið­inn.

Samkvæmt Mark­að­inum bar ráðn­ingu Guð­mundar í emb­ætti for­stjóra brátt að og á hún að hafa komið mörgum stórum hlut­höfum í HB Granda á óvart, ekki síst í ljósi þess að hann hafði aðeins tæp­lega tveimur mán­uðum áður verið kjör­inn í stjórn sem for­maður.

„Guð­mundur á að hafa látið í það skína í sam­tölum við hlut­hafa að ekki stæði til á næst­unni að ráða nýjan for­stjóra í stað Vil­hjálms. Þeir hafi hins vegar margir hverjir engu að síður átt von á því að nýr for­stjóri yrði síðar feng­inn að félag­inu enda hafi Guð­mundur ekki farið leynt með þau áform sín að vilja ná fram breyt­ingum á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Þeir hlut­hafar gerðu þó fæstir ráð fyrir því að Guð­mundur sjálfur myndi verða for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir í Mark­að­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár