Spyr hvernig verja eigi móður jörð fyrir óheftri græðgi stórfyrirtækja

Andrés Ingi telur að tryggja þurfi fólki sem berst gegn „óheftri græðgi stór­fyr­ir­tækja sem vilja gjör­nýta auð­lindir“ mögu­leika til að leita til dóm­stóla. Hann vill að íslensk stjórn­völd við­ur­kenni svo­kallað vist­morð.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokkur Pírata hyggst leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir við­ur­kenn­ingu á vist­morði. Þetta kom fram í máli Andrésar Inga Jóns­sonar þing­manns flokks­ins í ræðu hans undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í síð­ustu viku.

„Þessa dag­ana ber­ast okkur fréttir af stríði aust­ast í Evrópu. Þá reikar hug­ur­inn til þess kerfis sem við höfum til að taka á brotum sem eiga sér stað við þær aðstæður. Það er eitt­hvað sem við erum alltaf að þróa og móta og reyna að gera betur,“ sagði hann.

Lengi verið kallað eftir því að vistmorð verði viðurkennt brot

Benti Andrés Ingi á að hægt væri að vísa hinum ýmsu brotum til Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stóls­ins í Haag; glæpum sem taldir eru ógna friði, öryggi og vel­ferð í heim­inum. „Þetta eru stærstu glæp­irnir; hóp­morð, glæpir gegn mannúð, stríðs­glæpir og glæpir gegn friði. Það hefur lengi verið kallað eftir því að víkka út umboð dóm­stóls­ins þannig að glæp­ur­inn vist­morð verði við­ur­kenndur sem eitt af þeim brotum sem hægt er að leita til dóm­stóls­ins með.“

Spurði hann í fram­hald­inu til hvaða ráða almenn­ingur gæti gripið þegar ákall um aðgerðir strax skil­uðu engum við­brögðum frá stjórn­völdum. „Hver á að verja móður jörð fyrir óheftri græðgi stór­fyr­ir­tækja sem vilja gjör­nýta auð­lindir og önnur nátt­úru­gæði? Það þarf að tryggja fólki sem tekur að sér að berj­ast fyrir þessum sam­eig­in­legu hags­munum okkar allra mögu­leika til að leita til dóm­stóla með þau efni.“

Evrópskur dagur fyrir viðurkenningu á vistmorði

Andrés Ingi benti á að á morgun, sunnu­dag, væri evr­ópskur dagur fyrir við­ur­kenn­ingu á vist­morði. Greindi hann jafn­framt frá því að þing­flokkur Pírata myndi gera tvennt til að minn­ast þess dags. Þau myndu halda mál­þing á Kjar­vals­stöðum í hádeg­inu á mánu­dag­inn næst­kom­andi þar sem þau fá erlenda sér­fræð­inga til að fara yfir þessi mál og, eins og fram hefur komið, leggja enn­fremur fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir við­ur­kenn­ingu á vist­morði.

Þing­mað­ur­inn hvatti alla þing­menn til að skoða þessa til­lögu og ger­ast með­flutn­ings­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár