Er Jón Gunnarsson besta dómsmálaráðherraefni Sjálfstæðisflokksins?

Þing­maður Pírata og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ræddu skipan dóms­mála­ráð­herra á þingi í dag.

Halldóra Mogensen og Bjarni Benediktsson
Halldóra Mogensen og Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata telur að lítil rök séu fyrir ákvörð­unum stjórn­ar­flokk­anna um ráð­herra­efni og segir hún sér­stak­lega furðu­legt að fylgj­ast með því að ráð­herr­arnir sjálfir hefðu sjálfir komið af fjöllum þegar þeir voru skip­aðir í emb­ætti. Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Hún spurði Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins hvort Jón Gunn­ars­son hefði verið besta dóms­mála­ráð­herra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Bjarni sagði að hann væri „mjög gott ráð­herra­efni“ og hefði hann fært fyrir því rök að Jón hefði mjög sterkt lýð­ræð­is­legt umboð til emb­ætt­is­ins.

Halldóra sagði í fyr­ir­spurn sinni að flokk­arnir sem boð­uðu stöð­ug­leika í kosn­inga­bar­átt­unni hefðu látið það verða sitt fyrsta verk að setja af stað „mestu ráð­herra­hringekju Íslands­sög­unnar“. Aðeins flokks­for­menn­irnir hefðu fengið að halda stöð­unum sínum en öðrum verið „ruslað til“ án nokk­urra hald­bærra útskýr­inga – hvorki gagn­vart þjóð­inni né ráð­herr­unum sjálfum.

„Þessar manna­breyt­ingar lykta frekar af van­trausti í garð ein­stakra ráð­herra en fag­legu mati eða það er alla­vega ljóst að áhugi eða reynsla ráð­herra af verk­efnum ráðu­neyt­anna skiptir litlu máli. Þetta þykir því skilj­an­lega und­ar­legt, for­seti. Og allra und­ar­leg­ust þykir skipun Jóns Gunn­ars­sonar í emb­ætti dóms­mála­ráð­herra sem hrein­lega eng­inn botnar í,“ sagði hún og vitn­aði í svör Bjarna fyrir Morg­un­blaðið þegar hann til­kynnti um skipun Jóns.

Þar sagði hann: „Jón kemur úr stærsta kjör­dæmi lands­ins þar sem fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er mest. Hann hefur verið þing­maður frá árinu 2007 og gegndi ráð­herra­emb­ætti um skamma hríð. Hann er rit­ari flokks­ins sömu­leiðis og hefur sterkt umboð innan flokks­ins og er ágæt­lega að þessu kom­inn.“

Halldóra telur þetta ekki merki­leg með­mæli. „Hæst­virtum dóms­mála­ráð­herra virð­ist ein­fald­lega hafa fengið emb­ætti sitt af því að hann er svo gegn­heill Sjálf­stæð­is­maður. En í þing­flokki hæst­virts fjár­mála­ráð­herra eru hins vegar 18 Sjálf­stæð­is­menn. Ráðherra fékk níu vikur til að íhuga val sitt og því má ætla að ákvörðun hæst­virts fjár­mála­ráð­herra hafi verið úthugsuð.“

Hún spurði ráð­herr­ann ein­fald­lega hvort Jón Gunn­ars­son væri besta dóms­mála­ráð­herra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Ég held að ég hafi valið góðan mann til að tilnefna“

Bjarni kom í pontu og sagð­ist langa að byrja á því að tala um stöð­ug­leik­ann sem Halldóra kom inn á.

„Rík­is­stjórn­inni er umhugað um stöð­ug­leika í efna­hags­málum, stöð­ug­leika í stjórn­ar­fari og stöð­ug­leika bara fyrir fólk og fyr­ir­tæki. Það hefur ekk­ert með það að gera hvort við getum gert breyt­ingar á Stjórn­ar­ráð­inu. Höfum ekki áhyggjur af því þó að þar ríki ekki nákvæm­lega sami stöð­ug­leik­inn, hvorki fyrir stjórn­mála­menn né aðra sem sinna verk­efnum í Stjórn­ar­ráð­inu, vegna þess að þar skiptir miklu meira máli að stjórn­kerfið styðji við áherslur rík­is­stjórn­ar­innar og þarfir þjóð­fé­lags­ins.“

Benti Bjarni á að þau í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru víst 17 – en ekki 18. „Ég er spurður að því hvort Jón Gunn­ars­son sé besta dóms­mála­ráð­herra­efni Sjálf­stæð­is­manna. Hann er að minnsta kosti að mínu áliti mjög gott ráð­herra­efni og ég hef fært fyrir því rök að hann hafi mjög sterkt lýð­ræð­is­legt umboð, bæði úr kosn­ingum og eins innan flokks­ins sem rit­ari flokks­ins. Hann hefur reynslu sem snertir margra þá mála­flokka sem er feng­ist við í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Ég nefni sér­stak­lega allt sem snýr að almanna­vörnum og sú reynsla sem hann kemur með þar. En svo hefur hann líka lengi verið á þingi og hefur áður gegnt ráð­herra­emb­ætti. Þannig að já, ég verð nú að segja það að ég held að ég hafi valið góðan mann til að til­nefna og þing­flokk­ur­inn hafi sam­þykkt gott ráð­herra­efni fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í dóms­mála­ráðu­neyt­inu,“ sagði hann.

Á ráðuneytið „ekki einmitt skilið smástöðugleika“?

Halldóra baðst afsök­unar ef hún hefði mis­talið Sjálf­stæð­is­menn – enda hefðu þessar tölur verið mikið á flakki nýverið og kannski erf­ið­ara að fylgj­ast með.

„En ég spurði hvort Jón Gunn­ars­son væri besta dóms­mála­ráð­herra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og það er kannski ekki furða að maður spyrji vegna þess að það fylgja voða lítil rök fyrir þessum ákvörð­unum stjórn­ar­flokk­anna um ráð­herra­efni og var sér­stak­lega furðu­legt að fylgj­ast með því að ráð­herr­arnir sjálfir komu af fjöllum þegar þeir voru skip­aðir í emb­ætti. En mér finnst áhuga­vert að biðja hæst­virtan ráð­herra að útskýra hvernig honum tekst að bera fullt traust, heyr­ist mér, til hæst­virts dóms­mála­ráð­herra en samt bara treysta honum til að gegna emb­ætt­inu í 18 mán­uði, sér­stak­lega í ljósi þess að dóms­mála­ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa átt í stök­ustu vand­ræðum með að sitja út heilt kjör­tíma­bil. Ég spyr því hvort þetta ráðu­neyti eigi ekki einmitt skilið smá­stöð­ug­leika. Hvers vegna bara 18 mán­uðir?“ spurði hún.

Úr vöndu að ráða

Bjarni kom aftur í pontu og svar­aði í annað sinn. „Það sprettur kannski upp af þeim vanda að við erum bara með svo marga hæfa ein­stak­linga í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins að við þurfum að skipta verkum milli fólks. Hér var það lagt til að Guðrún Haf­steins­dóttir, sem er nýr odd­viti Sjálf­stæð­is­manna á Suð­ur­landi, tæki við af Jóni á þessu kjör­tíma­bili. Það var ekki flókn­ara en svo.

Jón hefði verið ágæt­lega að því kom­inn að vera lengur í ráð­herra­emb­ætti en hér er lagt upp með, en svona er þetta nú. Það getur verið úr vöndu að ráða þegar verið er að skipa til sætis og fela fólki ólík verk­efni. En ég held að það hafi bara tek­ist mjög vel til,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár