Hin ólaunaða skipulags- og tilfinningavakt vanmetin

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að verk­efni svo­kall­aðrar þriðju vakt­ar­innar séu van­metin og jafn­vel sé álitið sjálf­sagt að konur sinni þeim verk­efnum frekar en karlar. Þriðja vaktin sé enn fremur marg­falt þyngri fyrir konur en karla.

Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Mig langar núna í þessum anna­sama mán­uði til að minna þing­heim á þriðju vakt­ina, hverjir sinna henni, hverjir borga fyrir hana og hvernig það kemur niður á konum á vinnu­mark­aði á Íslandi.“

Þetta sagði Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Byrjaði hún á því að vitna í færslu sem hún rakst á á sam­fé­lags­miðlum á dög­unum en í henni stóð: „Hálf­mán­arnir bak­aðir og jóla­und­ir­bún­ingi lokið af minni hálfu.“ Færsluna skrif­aði hús­bóndi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu – „Vonandi í gríni,“ sagði Þórunn.

Álitið sjálfsagt að konur sinni þessum verkefnum frekar en karlar

„Stétt­ar­fé­lagið VR vekur þessa dag­ana athygli okkar á þriðju vakt­inni sem sinnt er launa­laust og af miklum móð á lang­flestum heim­ilum allt árið um kring. Hún leggst ofan á hinar tvær; fyrstu vakt­ina, sem eru launuð störf utan heim­ilis, og varla þarf að segja frá því hér að atvinnu­þátt­taka kvenna á Íslandi er sú mesta í heimi, og aðra vakt­ina; heim­il­is­verkin, barna­upp­eldið, sam­skipti við nána ætt­ingja, verk­efni sem fjöl­skyldan sinnir dag­lega.

Það liggur fyrir að konur á Íslandi sinna heim­il­is­störfum í níu klukku­stundir á viku, karlar í sjö. Þar munar um það bil tveimur. Barna­upp­eldi sinna konur í u.þ.b. tíu klukku­stundir á viku, aðspurðar, karlar í tæpar átta. Þarna undir er auð­vitað munur sem segir okkur svo sem ekki neinar fréttir,“ sagði Þórunn.

Benti hún á að þriðja vaktin, sem líka er kölluð skipu­lags- og til­finn­inga­vaktin, væri ólaunuð og sner­ist um yfir­um­sjón og verk­stýr­ingu á heim­il­is­stör­f­unum.

„Verkefni hennar eru van­metin og jafn­vel álitið sjálf­sagt að konur sinni því frekar en karlar. Hún er marg­falt þyngri fyrir konur en karla, a.m.k. í gagn­kyn­hneigðum sam­böndum.

Henni fylgir álag, hún tekur heila­rými, sem hindrar atvinnu­þátt­töku, fram­gang í starfi og veldur streitu og álagi. Það er eft­ir­tekt­ar­vert að aðspurðir segj­ast karlar sinna heim­il­is­verkum í miklu meiri mæli en þeir gera í raun og konur segja að þær geri of mikið,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár