Lélegir kennarar í sænskum menntaskólum

Fyrir síðustu þing­kosningar í Svíþjóð voru menntamál í brennidepli enda hefur árangur sænskra nemenda versnað mikið samkvæmt alþjóð­legu PISA-könnuninni. Hægri stjórnin sem féll eftir kosningarnar í fyrra jók einka­rekstur í mennta­kerfinu og breytti einkunna­kerfinu sem virðist ekki hafa fallið í kramið hjá nemendum.

Nú fá nemendur einkunn á bilinu A-F og virðist vera sem mörgum finnist nýja kerfið ógegnsætt og flókið. Nýlega birtist svo könnun þar sem í ljós kom að sænskir mennta­skólanemar eru vægast sagt ósáttir við þá menntun sem þeir fá og umgjörðina sjálfa.

Annar hver nemandi áhugalaus um námið


Könnunin var unnin á vegum Kenn­ara­sam­bands­ins og sænskra nem­enda­fé­laga en rætt var við eitt þús­und nem­endur á síð­asta ári í fram­halds­skóla og um eitt þús­und kenn­ara. 53 pró­sent nem­enda sögðu að þau hefðu lít­inn áhuga á nám­inu og fjórði hver nem­andi hefur íhugað að hætta námi.

Þessar tölur virðast ekki koma neinum á óvart því áhugi nemenda minnkar jafnt og þétt frá fimmta bekk grunn­skólans og því líklegt að sama þróun haldi áfram upp í mennta­skóla. Hins vegar hafa kennarar og nemendur mjög ólíkar hugmyndir um þann undir­búning sem nemendur fá áður en þeir hefja nám í framhalds­skóla. Til dæmis telja 70 prósent nemenda að þeir fái nægilega góðan undir­búning í grunn­skóla fyrir frekara nám en aðeins 35 prósent kennara telja að svo sé. Kennarar segja einnig að verulega skorti á leiðsögn í grunn­skólum þegar kemur að vali á frekara námi og hvað þurfi til að ná góðum árangri.

Hægri stjórnin gerði þá breytingu á framhalds­skólum að nú er meiri aðskilnaður milli bóklegs og verklegs náms. Nemendur þurfa því snemma að ákveða hvert þeir stefna enda veitir verknám ekki sjálf­krafa rétt til háskóla­náms. Þetta hefur meðal annars orsakað það að sífellt færri sækja um verknám og áberandi fleiri nemendur í verknámi telja að þeir hafi valið ranga leið.

Kenna lélegum kennurum um áhugaleysið


Sænska dag­blaðið tók við­tal við nokkra nem­endur til þess að kom­ast að því hvers vegna áhuga­leysi er svo útbreytt meðal sænskra nem­enda. Ekki stóð á svari því þeir voru sam­mála um að ástæð­una mætti rekja til lélegra kenn­ara. Ein þeirra sagði að hún hefði ein­fald­lega misst trúna á kenn­ar­ana. „Ég er viss um að það eru margir góðir kenn­arar þarna úti, en þeir hafa hins vegar ekki nógu mik­inn tíma. Það er svo mikil skrifinnska að þeir hafa ekki tíma til að skipu­leggja kennsl­una. Ef þeir ættu að gera það þyrftu það að vera óborgað fyrir utan hefð­bund­inn vinnu­tíma.“

Undir þetta tekur Bo Jansson frá sænska Kennara­sambandinu. Hann segir að grípa þurfi til mark­vissra aðgerða til að breyta vinnu­umhverfi kennara til að þeir geti einbeitt sér að því sem þeir eigi raun­verulega að gera – kenna nemendum. Hann bendir á að allir virðist sammála um að fjölga þurfi menntuðum kennurum í skólum og að til þess að það megi verða þurfi að hækka launin. Hins vegar gerist ekki neitt þótt stjórn­málamenn tali mikið um vanda­málið.

Í annarri könnun sem gerð var meðal mennta­skóla­kennara svöruðu átta af hverjum tíu að þeir hefðu ekki nægan tíma til að undirbúa og fylgja eftir kennslu. Þrátt fyrir að nemendur reki áhuga­leysið til kennara er ekki þar með sagt að þeir hafi rétt fyrir sér. Tækni­þróun og afþreyingar­menning nútímans gerir það að verkum að haga þarf kennslu með öðrum hætti og ný tæki skapa bæði tækifæri og vandamál.

Íhuga að gera sumarskóla að skyldu


Slakur árangur nem­enda hefur þvingað stjórn­mála­menn og skóla­yf­ir­völd til að leita óhefð­bund­inna leiða til að bæta árangur. Hingað til hafa grunn­skóla­nemar, sem falla í ein­hverju nám­skeiði, getað farið í sum­ar­skóla til að bæta árang­ur­inn og í sumar verður mennta­skóla­nemum boðið upp á sama úrræði. Áhugi nem­enda á sum­ar­skóla hefur hins vegar verið lít­ill og aðeins þriðj­ungur þess fjár sem var úthlutað í fyrra til mála­flokks­ins var nýttur.

Þess vegna hefur þeim möguleika verið velt upp að sumar­skóli verði skylda fyrir nemendur sem ná ekki lágmarks­árangri yfir veturinn. Á hinum endanum eru svo þeir nemendur sem telja sig ekki fá örvun eða nægjanlega erfið verkefni í skólanum. Um 5 prósent barna teljast í hópi snjöllustu nemendanna en hættan er sú að þeir lendi utangarðs í kerfinu. Stundum eru þeir taldir óáhugasamir og erfiðir og dæmi eru um rangar adhd greiningar á þessum nemendum. Í stórum bekkjum er hins vegar hægara sagt en gert að útbúa mismun­andi kennslu­efni fyrir nemendur og sjá til þess að hver og einn fái viðunandi örvun.

Svíar standa frammi fyrir ýmsum vanda­málum í mennta­kerfinu og óljóst hvernig þeir ætla að leysa þau. Miðstýring og eftirlit með skólum hefur í för með sér tímafreka skýrslu­gerð sem virðist koma niður á kennslu. Sú lausn sem kennarar tala fyrir felst í fleiri kennurum og auknu fé til mála­flokksins. Aðrir benda á að um leið og skólunum sé gefið aukið frelsi til að skipuleggja nám minnki þörfin á skriffinsku. Þessi tvö sjónarmið takast nú á um framtíð sænska skóla­kerfisins og verður áhugavert að sjá hvaða áherslur núverandi stjórn undir forystu jafnaðar­manna mun hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár