Vinnslustöðin ætlar ekki að falla frá milljarðs skaðabótakröfu á ríkið

Fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum segir að útgerðin muni halda bóta­kröfu sinni á hendur rík­inu til streitu. Hann segir að Ísfé­lags­menn, sem hættu við sína mál­sókn í vik­unni, hafi ekki sagt sér satt.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson.
Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son. Mynd: Skjáskot

Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum, sem hefur stefnt íslenska rík­inu til greiðslu rúm­lega eins millj­arðs króna auk hæstu mögu­legu vaxta, ætlar að halda skaða­bóta­kröfu sinni til streitu.

[links]Þetta sagði Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Hann sagð­ist enn fremur vera afskap­lega feg­inn að vera ekki í hópi þeirra fimm útgerða sem ákveðið hafa að hætta við skaða­bóta­kröfur sínar gagn­vart rík­inu vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018 „Það er engin laun­ung á því að Ísfé­lags­menn sögðu okkur ekki satt þegar þeir kynntu hvað þeir ætl­uðu að gera og ég ætla ekki að fara nánar út í það. Ég hefði ekki viljað fylgja þeim í þeim sporum.“

Þar vísar Sig­ur­geir Brynjar í það að fimm útgerðir af þeim sjö útgerðum sem stefndu rík­inu ákváðu í síð­ustu viku að falla frá mál­sókn sinni, en sam­tals vildu fyr­ir­tækin sjö fá 10,2 millj­arðar króna auk vaxta úr rík­is­sjóði. Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru Ísfélags Vest­manna­eyja, Eskja, Gjög­ur, Loðnu­vinnslan og Skinn­ey-­Þinga­nes. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­in Hug­inn og Vinnslu­­­stöðin eru nú einu fyr­ir­tækin sem hafa ekki dregið kröfur sínar til baka.

Reikningurinn yrði ekki sendur skattgreiðendum

Aðdrag­andi máls­ins var sá að Kjarninn greindi frá því að kröfur útgerð­anna sjö væru sam­tals 10,2 millj­arðar króna auk vaxta fyrir viku síðan.

[adspot]Í kjöl­farið rataði málið inn í ræður helstu ráða­manna þjóð­ar­innar þegar þeir ræddu áhrif COVID-19 far­ald­­­ur­s­ins og um við­brögð stjórn­­­­­valda við þeim áhrifum á Alþingi á þriðju­dag. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði þá að ef svo ólík­­­lega færi að ríkið myndi tapa mál­inu þá væri það ein­falt mál í hans huga að reikn­ing­­­ur­inn vegna þess yrði ekki sendur á skatt­greið­end­­­ur. „Reikn­ing­­­ur­inn vegna þess verður þá að koma frá grein­inni. Það er bara svo ein­falt,“ sagði hann.

Katrín Jak­obs­dóttir for­­­sæt­is­ráð­herra gerði líka kröfur útgerð­anna að umtals­efni við sama til­efni. „Ég vil segja það að hér að ég hef verið gríð­­­ar­­­lega ánægð með þá sam­­­stöðu sem maður hefur skynjað í sam­­­fé­lag­inu í því að takast á við veiruna. Bæði fyr­ir­tæki og fólk hafa þar sýnt mikla ábyrgð. Flokkar á Alþingi hafa sýnt mikla ábyrgð. Þetta er dýr­­­mætt.

En þá verður maður líka reiður þegar fyr­ir­tæki í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi gera kröfu á ríkið upp á ríf­­­lega tíu millj­­­arða vegna mak­rílút­­­hlut­un­­­ar.“

Katrín sagði þetta ekki góða leið til að efla sam­­­stöðu í sam­­­fé­lag­inu. „Það er ekki góð leið til að vera á sama báti í gegnum þetta ferða­lag sem við erum stödd í. Þó ég telji að ríkið hafi góðan mál­­­stað í þessu máli þá finnst mér eðli­­­legt að þessi fyr­ir­tæki íhugi það að draga þessar kröfur á til baka. Nú reynir nefn­i­­­lega á ábyrgð okkar allra.“

Daginn eftir greindu fimm af sjö útgerðum frá því að þær væru hættar við.

Kjarninn hefur enn ekki fengið stefnurnar

Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfé­lags Vest­manna­eyja, sagði í Morg­un­blað­inu á fimmtu­dag að hvöss gagn­rýni á Alþingi gagn­vart útgerð­unum hefði ekki haft nein áhrif á ákvörðun Ísfé­lags­ins að hætta við stefnu sína. Guð­björg Matth­í­as­dótt­ir, aðal­eig­andi Ísfé­lags­ins, hafi þegar verið búin að beina þeirri ósk til stjórnar félags­ins að hætta við máls­höfð­un­ina og að stjórnin hefði sam­þykkt það á þriðju­dag. Sama dag hafi hann greint einum ráð­herra í rík­is­stjórn­inni frá þeirri ákvörð­un.

Kjarn­inn hefur reynt að upp­lýs­ingar um stefnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna frá hinu opin­bera frá síð­asta sumri. Í des­em­ber, eftir fimm mán­aða ferli, var þeirri beiðni synjað. Kjarninn kærði þá nið­ur­stöðu til úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að hags­munir almenn­ings af aðgangi að upp­­lýs­ingum um mála­til­­búnað einka­að­ila á hendur íslenska rík­­inu veg­i þyngra en hags­munir sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækj­anna af því að þær fari leynt.

Kjarn­inn fór fram á það síð­­degis 2. apr­íl, við emb­ætti rík­­is­lög­­manns, að fá stefn­­urnar afhent­­ar. Þrátt fyrir ítrek­anir á þeirri beiðni hafa þær enn ekki feng­ist 17 dögum síðar. Rík­is­lög­maður hefur hins vegar greint Kjarn­anum frá því að hann muni ekki fara fram á að rétt­ar­á­hrifum verði frestað og því liggur fyrir að stefn­urnar verða afhentar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár