Vilja skipa starfshóp um sanngirnisbætur vegna aðgerða vegna ódæmigerðra kyneinkenna

Nokkrir þing­menn VG telja mik­il­vægt að varpa ljósi á umfang aðgerða hér á landi vegna ódæmi­gerðra kynein­kenna og miska sem kann að hafa hlot­ist af þeim, með til­liti til bæði and­legrar og lík­am­legrar heilsu.

Vara­þing­maður og fimm þing­menn Vinstri grænna hafa lagt fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um skipun starfs­hóps um sann­girn­is­bætur vegna aðgerða vegna ódæmi­gerðra kynein­kenna.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Daníel E. Arn­ars­son, vara­þing­maður Vinstri grænna og með honum eru Bjarni Jónsson, Jódís Skúla­dóttir, Steinunn Þóra Árna­dóttir, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir og Orri Páll Jóhanns­son.

Alþingi myndi þá, ef til­lagan verður sam­þykkt, fela for­sæt­is­ráð­herra að skipa starfs­hóp sem tæki til skoð­unar umfang aðgerða vegna ódæmi­gerðra kynein­kenna sem gerðar voru áður en lög um kyn­rænt sjálf­ræði voru sam­þykkt. Jafn­framt yrði kannað til­efni og grund­völlur þess að ein­stak­lingum sem hlutu slíka með­ferð verði bættur skaði sem kann að hafa hlot­ist af slíkum aðgerðum. Ráðherra myndi kynna Alþingi nið­ur­stöður starfs­hóps­ins fyrir árs­lok 2022.

Þekkt að aðgerðir valda alvarlegum heilsufarsvanda sem fylgir fólki ævina á enda

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að á allra síð­ustu árum hafi fjöldi mann­rétt­inda­stofn­ana hvatt ríki heims til að banna með laga­setn­ingu ónauð­syn­legar og óaft­ur­kræfar aðgerðir á fólki sem fæð­ist með ódæmi­gerð kynein­kenni, án upp­lýsts sam­þykkis. Hér á landi eru í gildi lög um kyn­rænt sjálf­ræði sem banna slíkar aðgerðir.

„Vit­und­ar­vakn­ing hefur átt sér stað um rétt­indi fólks sem fæð­ist með ódæmi­gerð kynein­kenni, vegna laga­setn­ingar í anda þeirrar sem nefnd hefur verið en einnig vegna þess fjölda ein­stak­linga sem stigið hafa fram og sagt sögu sína á síð­ustu árum. Fjöldi fólks hefur þurft að þola var­an­lega skerð­ingu á lífs­gæðum vegna óaft­ur­kræfra og ónauð­syn­legra aðgerða sem fram­kvæmdar voru á árum áður.

Þekkt er að slíkar aðgerðir valda alvar­legum heilsu­far­s­vanda sem fylgir fólki ævina á enda, til að mynda sárs­auka­fullri öra­myndun, bein­þynn­ingu og þvag­rás­ar­vanda­málum. Víða um heim hafa grein­ingar á fóst­ur­vísum leitt til áhættu­samra og óvið­ur­kenndra lyfja­með­ferða á fóst­ur­stigi og lang­tíma­heilsu­fars­á­hrif af með­ferðum sem ein­stak­lingar með ódæmi­gerð kynein­kenni gang­ast undir eru lítt rann­sökuð,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Inngrip í líkamlega friðhelgi fólks hefur viðvarandi félagsleg og sálræn áhrif

Þá kemur fram í til­lög­unni að í sögum þeirra ein­stak­linga sem stigið hafa fram vegna slíkra aðgerða hafi ítrekað verið lýst þeim alvar­legu sál­fræði­legu áhrifum sem þær kunna að hafa.

„Sýnt hefur verið að inn­grip í lík­am­lega frið­helgi fólks sem fæðst hefur með ódæmi­gerð kynein­kenni hafa við­var­andi félags­leg og sál­ræn áhrif. Umræða um mál­efnið hefur lengi sætt félags­legri bann­helgi með til­heyr­andi áhrifum á líf fólks auk félags­legrar ein­angr­unar.

Þá eru ein­stak­lingar sem fæðst hafa með ódæmi­gerð kynein­kenni í auk­inni áhættu á brott­falli úr skóla, örð­ug­leikum við að finna atvinnu vegna skorts á menntun, lík­am­legra haml­ana og félags­legrar skammar. Rann­sóknir á jað­ar­settum hópum hafa sýnt að lík­legt er að ein­stak­lingar innan þeirra verði fyrir félags­legri ein­angrun, þeir upp­lifi van­líðan og þrói með sér geð­ræn vanda­mál. Tíðni þung­lyndis, kvíða, sjálf­skaða og sjálfs­víga er meiri meðal þeirra en almennt í sam­fé­lag­inu.“

Bent er á í grein­ar­gerð­inni að lögin um kyn­rænt sjálf­ræði séu ný af nál­inni en þau tóku gildi fyrir tæpum þremur árum. „Mik­il­vægt er að varpa ljósi á umfang aðgerða fyrir laga­setn­ing­una og miska sem kann að hafa hlot­ist af þeim, með til­liti til bæði and­legrar og lík­am­legrar heilsu. Með skipun starfs­hóps um sann­girn­is­bætur til handa fólki sem fæðst hefur með ódæmi­gerð kynein­kenni og aðgerðir voru fram­kvæmdar á að þeim ein­stak­lingum for­spurðum, innan opin­berra sjúkra­stofn­ana, gefst stjórn­völdum tæki­færi til þess að axla ábyrgð á sínum þætti í því mis­rétti sem fólk með ódæmi­gerð kynein­kenni hefur verið beitt,“ segir að lokum í grein­ar­gerð til­lög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár