Ferðaþjónustan skreppur saman en sjávarútvegurinn er í sókn

Rúmlega helm­ingi færri störf­uðu í ferða­þjón­ustu á síð­asta árs­fjórð­ungi miðað við árið á undan. Störfum í sjáv­ar­út­vegi hefur hins vegar fjölgað um helm­ing.

Sjávarútvegurinn hefur bætt við sig störfum á meðan hart hefur verið í ári hjá ferðaþjónustunni.
Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur bætt við sig störfum á meðan hart hefur verið í ári hjá ferða­þjón­ust­unni. Mynd: Birgir Þór

Alls fækk­aði störfum í ferða­þjón­ust­unni um 55% á öðrum árs­fjórð­ungi miðað við sama tíma­bil árið á undan. Á sama tíma hefur störfum í sjáv­ar­út­vegi hins vegar fjölgað um 52% og störfum í annarri sér­hæfðri þjón­ustu nær tvö­fald­ast. Þetta kemur fram í gögnum úr starfa­skrán­ingu Hagstofu Íslands.

Störfum í ferðaþjónustu og framleiðslu fækkar mest

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í vik­unni voru um 27 þús­und færri störf á öðrum árs­fjórð­ungi í ár miðað við annan árs­fjórð­ung í fyrra. Mest fækk­aði störfum í ferða­þjón­ustu, eða um 16.800 tals­ins. Einnig minnk­uðu aðrir geirar tölu­vert í vor miðað við árið á undan, en á því tíma­bili fækk­aði fram­leiðslu­störfum um rúm­lega tíu þús­und auk þess sem bygg­ing­ar­störfum fækk­aði um tæp­lega fimm þús­und.

Ekki finna þó allar atvinnu­greinar fyrir jafn­mik­illi fækkun starfa, líkt og sést á mynd­inni hér að ofan. Á meðan störfum í flestum geirum hefur fækkað umtal­st­vert á síð­ustu tólf mán­uðum hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn bætt við sig 2.500 störfum, en það er fjölgun á við 55%. 

Auk þess störf­uðu tæp­lega sex þús­und fleiri við ýmsa sér­hæfða þjón­ustu, að ferða­þjón­ustu und­an­skil­inni, milli vor­mán­aða 2019 og 2020, en við það hefur sá geiri næstum því tvö­fald­ast.

Lítil fækkun starfa í sjávarútvegi eftir COVID

Störfum í ferða­þjón­ust­unni fór að fækka á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs, eftir að hafa náð hápunkti undir lok síð­asta sum­ars þegar greinin taldi rúm­lega 33 þús­und störf. Eftir það hefur störfum í grein­inni fækkað með jöfnum hraða síð­ustu þrjá árs­fjórð­unga, en nú er talið að tæp­lega 14 þús­und störf séu eftir.

Á sama tíma fjölg­aði störfum í sjáv­ar­út­vegi úr tæp­lega 4 þús­undum í fyrra­sumar í nær 8 þús­und í byrjun þessa árs, en stör­f­unum fækk­aði svo lít­il­lega á milli fyrsta og ann­ars árs­fjórð­ungs þessa árs, þegar efna­hags­leg áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins gerðu fyrst vart við sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár