Halldóra Mogensen nýr formaður þingflokks Pírata

Þing­maður Pírata tekur við þing­flokks­for­mennsku af Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur.

Halldóra Mogensen
Halldóra Mogensen Mynd: Bára Huld Beck

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, mun taka við sem þing­flokks­for­maður flokks­ins. Frá þessu greindi Guðjón S. Brjáns­son, vara­for­seti Alþingis, í upp­hafi þing­fundar í dag.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, hefur verið for­maður þing­flokks Pírata síðan í nóv­em­ber 2017 og mun hún taka við sem vara­for­maður þing­flokks­ins, sam­kvæmt til­kynn­ingu vara­for­seta.

Halldóra hefur verið þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður síðan árið 2016. Hún var vara­þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður frá sept­em­ber til októ­ber árið 2014, febr­úar til mars, mars til apríl og nóv­em­ber árið 2015 og í októ­ber 2016.

Hún hefur enn fremur verið for­maður vel­ferð­ar­nefndar síðan árið 2017. Hún var í Íslands­deild Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins árið 2017 og Íslands­deild þings Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu sama ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár