Ekki verið að slátra þjóðarhöllinni en augljóslega fresta

For­sæt­is­ráð­herra segir vilja rík­is­stjórn­ar­innar um að reisa nýja þjóð­ar­höll á þessu kjör­tíma­bili skýran. Þing­maður Við­reisnar segir ljóst að verið sé að fresta fram­kvæmd­inni. „Ekki alveg að slátra henni en fresta.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tók­ust á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag um hvort vilji rík­is­stjórn­ar­innar um að reisa nýja þjóð­ar­höll í inn­an­húss­í­þróttum á kjör­tíma­bil­inu væri nógu skýr.

Ein­ungis fjórir mán­uðir eru síðan að for­­sæt­is­ráð­herra, Ásmundur Einar Daða­­son mennta- og barna­­mála­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­­son borg­­ar­­stjóri und­ir­­rit­uðu vilja­yf­­ir­lýs­ingu um bygg­ingu þjóð­­ar­hall­ar­inn­ar. Sam­kvæmt henni var stefnt að því að fram­­kvæmdum myndi ljúka árið 2025 og kostn­að­­ar­­skipt­ing milli ríkis og borgar átti að taka mið af nýt­ingu mann­­virk­is­ins.

Þor­gerður Katrín spurði Katrínu út í þjóð­ar­höll­ina í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag og vís­aði meðal ann­ars í orð inn­við­a­ráð­herra í útvarps­þætt­inum Sprengisandi síð­ustu helgi þar sem hann sagði tíma­lín­una „vænt­an­lega stærri“ þegar hann var spurður hvort fram­kvæmdum við þjóð­ar­höll­ina myndi ljúka árið 2025.

Vilji formanna stjórnarflokkanna óljós

Þor­gerður Katrín sagði að af orðum inn­við­a­ráð­herra að dæma væri alveg ljóst að verið væri að slá þjóð­ar­höll­inni á frest. „Ekki alveg að slátra henni en fresta henni,“ sagði hún.

„Síðan kemur hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra og segir að það sé nóg af fjár­fest­ingum og til nóg af fjár­magni en var samt frekar óljós. Tveir for­menn stjórn­ar­flokka sem tala mjög óljóst í þessu mikla hags­muna­máli fyrir íþrótta­hreyf­ing­una,“ hélt Þor­gerður Katrín áfram.

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í byrjun mán­að­ar­ins er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður setji 100 millj­ónir krónur í þjóð­ar­höll á næsta ári, sem eru fjár­munir sem munu nýt­ast í und­ir­bún­ing verk­efn­is.

Vilji for­manns Sjálf­stæð­is­flokks ann­ars vegar og Fram­sókn­ar­flokks hins vegar er ólíkur að mati Þor­gerðar og því spurði hún for­mann þriðja rík­is­stjórn­ar­flokks­ins hver hennar vilji væri, og minnti hana á í leið­inni að hún skrif­aði undir vilja­yf­ir­lýs­ingu „korteri fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor, í maí“ um að þjóð­ar­höllin ætti að rísa á þessu kjör­tíma­bili.

Þegar umrædd vilja­yf­ir­lýs­ing var und­ir­rituð í maí voru átta dagar í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Málið hafði verið hita­mál í Reykja­vík í aðdrag­anda þeirra, sér­stak­lega þar sem það var bein­tengt við inni­þrótta-að­stöðu Þróttar og Ármanns í Laug­ar­dal og skól­anna í hverf­inu, sem hefur verið í miklu ólestri árum sam­an.

„Ég hef nú bara verið á einni mynd“

Þor­gerður sagð­ist hafa séð margar mynda­tökur af und­ir­skriftum varð­andi þjóð­ar­höll­ina og vís­aði í orð Hannesar S. Jóns­sonar, for­manns Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands, sem sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi að sýna verði „íþrótta­hreyf­ing­unni þá virð­ingu að standa ein­hvern tím­ann við eitt­hvað af því sem lofað er“. Hannes sagði jafn­framt að hvorki hann né for­maður HSÍ hafi verið kall­aðir að borð­inu varð­andi fram­kvæmda­nefnd þjóð­ar­hall­ar­innar. „Hún hefur ekki hafið störf. Þetta er ámæl­is­vert að mínu mati,“ sagði Þor­gerður Katrín.

„Ég hef nú bara verið á einni mynd að und­ir­rita vilja­yf­ir­lýs­ingu,“ sagði Katrín, og átti við vilja­yf­ir­lýs­ing­una sem var und­ir­rituð í vor. Sagði hún að síðan þá hafi starfs­hópur um upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vang íþrótta verið skip­aður þar sem sitja full­trúar þriggja ráðu­neyta og Reykja­vík­ur­borgar. Hópurinn starfi auk þess undir for­ystu mennta- og barna­mála­ráð­herra sem er einnig íþrótta­mála­ráð­herra. Hlutverk hóps­ins er meðal ann­ars að sam­þætta störf fram­kvæmda­nefndar sem hefur því hafið störf að hennar mati.

Hún við­ur­kenndi þó að henni væri ekki nákvæm­lega kunn­ugt um funda­plön hóps­ins en að henni hafi verið sagt að hann sé að funda.

„Hafi full­trúar íþrótta­hreyf­ing­ar­innar ekki verið kall­aðir til þá hlýtur það að standa til, því hóp­ur­inn ku vera far­inn af stað og far­inn að funda reglu­lega vegna þess að á næstu mán­uðum á að vinna alla þá nauð­syn­legu und­ir­bún­ings­vinnu sem þarf þannig að við getum lagt af stað í þetta mann­virki,“ sagði Katrín, sem bindur enn vonir við að þjóð­ar­höll rísi á þessu kjör­tíma­bili.

Ekki segja: Við bindum vonir um

Þor­gerður Katrín bað þá rík­is­stjórn­ina um að sýna þann mann­dóm að tala skýrt í stað þess að segja: Við bindum vonir um.

„Sýnið for­ystu. Talið afdrátt­ar­laust og segið við íþrótta­hreyf­ing­una: Já, við ætlum að klára þjóð­ar­höll­ina 2025, á þessu kjör­tíma­bili. Í guð­anna bænum setjið ekki alla ábyrgð yfir á næstu rík­is­stjórn í öllum málum sem þið setjið hér fram,“ sagði Þor­gerður Katrín.

For­sæt­is­ráð­herra sagði þing­mann­inn þá ekki hafa verið með virka hlustun þar sem hefði komið skýrt fram í máli hennar að vinnan væri farin af stað. „Hátt­virtur þing­maður þarf ekk­ert að efast um að verk­efnið er á fullu skriði,“ sagði Katrín. Þá þurfi hún ekki heldur að hafa áhyggjur af skýrum vilja rík­is­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár