Grikkir verða að skila tilboði í dag - Örfáir dagar til stefnu

Frestur grískra stjórn­valda til að leggja fram nýtt samkomulags­tilboð fyrir kröfuhafa sína rennur út í kvöld. Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, fundar í dag með ríkis­stjórn sinni og er búist við að að tilboð verði formlega lagt fram í kjölfarið. Samkvæmt áætlun verða tæknileg atriði samningsins yfirfarin af Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinum (AGS), Evrópu­sambandinu og Seðla­banka Evrópu á föstudag, fjármála­ráðherrar evru­ríkjanna munu yfirfara samninginn á laugardag og leiðtogar evru­ríkjanna funda á sunnudag.

Donald Tusk, forseti leiðtoga­ráðs Evrópu­sambandsins, ítrekaði í morgun að einungis þrír dagar séu til stefnu. Afar mikilvægt sé að raunhæft tilboð berist frá Grikkjum í dag. Hann talaði jafnframt fyrir nauðsyn þess að kröfu­hafarnir mæti tilboði Grikkja með raunhæfum hætti og að skulda­staða gríska ríkisins geti borið sig eftir samninga.


Það er mat AGS að Grikkir þurfi um 60 milljarða evra í formi nýrra lána og niður­fellinga eldri skuld­bindinga. Grísk stjórn­völd óskuðu í gær formlega eftir fjárhags­aðstoð í gegnum sérstakan neyðar­lánasjóð evru­ríkjanna, hið svokallaða Evrópska stöðugleika­kerfi.


Bankar í Grikk­landi hafa verið lokaðir síðustu níu viðskipta­daga og munu ekki opna fyrr en í fyrsta lagi næsta mánudag. Almenningur getur á meðan aðeins tekið út að hámarki 60 evrur á dag úr hrað­bönkum. Blaðamenn The Guardian, sem fylgjast grannt með stöðu mála, hafa í dag greint frá nýlegum efnahags­tölum í Grikk­landi, meðal annars atvinnu­leysis­tölur sem sýna 25,6 prósent atvinnu­leysi í landinu. Þá hefur almennt verðlag í Grikk­landi lækkað um 2,2 prósent á síðasta ári. Grikkir glíma því við verð­hjöðnun en ekki verðbólgu.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár