Lífeyrissjóðir lánuðu þriðjungi minna í ágúst en í fyrra

Aðgerðir líf­eyr­is­sjóða til að þrengja aðgengi að lán­tökum hjá sér, og kóln­andi mark­aður, leiddu til þess að mun lægri upp­hæð var tekin að láni hjá þeim til íbúða­kaupa í ágúst­mán­uði 2019 en í sama mán­uði árin á undan.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu sam­tals rúma 6,3 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna í ágúst síð­ast­liðnum. Það er lægsta upp­hæð sem sjóð­irnir hafa lánað til þeirra frá því að margir þeirra breyttu lána­skil­yrðum sínum, lækk­uðu vexti og hækk­uðu láns­við­mið haustið 2015. Í ágúst 2016 lán­uðu þeir 6,8 millj­arða króna, í þeim mán­uði ári síðar 10,1 millj­arð króna og í fyrra 10,2 millj­arða króna. Því dróg­ust lán­veit­ing­arnar, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum saman um tæpa fjóra millj­arða króna, eða um þriðj­ung milli ára.

Þetta kemur fram í nýjum tölum um útlán líf­eyr­is­sjóða sem Seðla­banki Íslands birti í síð­ustu viku. Þar kemur enn fremur fram að verð­tryggð útlán voru 3,9 millj­arðar króna í síð­asta sum­ar­mán­uð­inum en óverð­tryggð lán 2,4 millj­arðar króna.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa mark­visst verið að reyna að hamla sókn sjóðs­fé­laga sinna í sjóðs­fé­lags­lán und­an­farin miss­eri, meðal ann­ars með því að lækka láns­hlut­fall. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, greindi til dæmis frá því í byrjun októ­ber að sjóð­ur­inn hefði breytt lána­reglum sínum og lækkað fasta vexti á verð­tryggðum lán­um. Breyt­ing­arnar á láns­rétt­inum fela í sér að skil­yrði fyrir lán­töku eru þrengd mjög og hámarks­fjár­hæð láns er lækkuð um tíu millj­ónir króna. Þá hefur sjóð­ur­inn ákveðið að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­tryggð lán á breyti­legum vöxt­um, en þau hafa verið einna hag­kvæm­ustu lánin sem í boði hafa verið á und­an­förnum árum.

Vextir þeirra lána standa áfram í stað í 2,26 pró­sentum þrátt fyrir að stýri­vextir hafi lækkað tví­vegis frá því að þeir voru festir þar í byrjun ágúst og aðrir líf­eyr­is­sjóðir hafi lækkað sína breyti­legu verð­tryggðu vexti skarpt. Lægstu slíkir sem nú eru í boði eru 1,64 pró­sent. Þeir vextir eru helm­ingur af skástu vöxtum sem íslenskir bankar bjóða sínum við­skipta­vinum upp á á sam­bæri­legum lánum.

Tvöfaldað hlutdeild sína

Í nýrri skýrslu Grein­ingar Íslands­banka um íslenska íbúða­mark­að­inn sem kom út í síð­ustu viku kom fram að íslenskir lán­tak­endur, sem upp­fylla skil­yrði líf­eyr­is­sjóða fyrir lán­töku, taka frekar lán hjá þeim, enda geta sjóð­irnir boðið miklu betri kjör en t.d. bankar og íbúða­lána­sjóðir. Það sést á því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru nú beinir mót­að­ilar að 21 pró­sent af skuldum heim­il­anna og hlut­fallið hefur aldrei verið hærra. Enn fremur hefur það tvö­fald­ast á mjög skömmum tíma, en árið 2016 var það tíu pró­sent.

Frá því að líf­eyr­is­sjóð­irnir fóru að bjóða upp á óverð­tryggð hús­næð­is­lán haustið 2015 þá hafa verð­tryggðu lánin nær alltaf verið vin­sælli hjá sjóðs­fé­lögum þeirra. Breyt­ing varð á því síðla árs í fyrra, nánar til­tekið í nóv­em­ber 2018, þegar tekin óverð­tryggð lán voru nán­ast sama upp­hæð og þau sem voru verð­tryggð.

Í des­em­ber sama ár gerð­ist það svo í fyrsta sinn að sjóðs­fé­lagar líf­eyr­is­sjóða tóku hærri upp­hæð óverð­tryggða að láni innan mán­aðar en verð­tryggða. Í þeim mán­uði voru rúm­lega 60 pró­sent allra útlána líf­eyr­is­sjóða óverð­tryggð. Þá hafði verð­bólga hækkað nokkuð skarpt á skömmum tíma eftir að hafa verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans árum sam­an. Í júlí 2018 fór hún yfir það mark­mið í fyrsta sinn í meira en fjögur ár og í des­em­ber mæld­ist hún 3,7 pró­sent.

Ljóst er að þessar svipt­ingar höfðu áhrif á lán­tökur sjóðs­fé­laga líf­eyr­is­sjóða, þótt að lækk­andi láns­hlut­fall nokk­urra af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins hafi líka getað spilað þar inn í. Heild­ar­út­lán líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna fóru lækk­andi mán­uði til mán­aðar frá júlí­mán­uði 2018 og fram í jan­úar árið eft­ir, á meðan að verð­bólgan var að að aukast. Í des­em­ber 2018 námu heild­ar­út­lán, bæði verð­tryggð og óverð­tryggð, ein­ungis um 56 pró­sent af því sem sjóð­irnir höfðu lánað í sama mán­uði árið áður.

Minni upphæðir í ár en í fyrra

Í jan­úar 2019 var verð­bólgan enn há, mæld­ist 3,4 pró­sent, og sjóðs­fé­lagar héldu því áfram að taka frekar óverð­tryggð lán en verð­tryggð, enda hefur verð­bólga bein áhrif á þróun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána. Það var þó aug­ljós­lega að fær­ast meira öryggi í hús­næð­is­mark­að­inn vegna þess að heild­ar­lán­taka fór úr tæp­lega 9,1 millj­arði króna í jan­úar úr tæp­lega 5,1 millj­arði króna í mán­uð­inum á und­an, og var umtals­vert hærri en í jan­úar 2018.

Í febr­úar 2019 var hærri heild­ar­upp­hæð tekin að láni hjá líf­eyr­is­sjóðum til hús­næð­is­kaupa en í saman mán­uði árið áður en áhug­inn á verð­tryggðum lánum jókst og fleiri lán­tak­endur tóku slík lán en óverð­tryggð. Sú staða hefur hald­ist síð­ustu mán­uði og við­snún­ing­ur­inn náði hámarki í júlí þegar um 69 pró­sent allra nýrra útlána líf­eyr­is­sjóða voru verð­tryggð. Í ágúst dróg­ust verð­tryggðu lánin hins vegar saman á sama tíma og óverð­tryggðu juk­ust lít­il­lega. Skipt­ingin í þeim mán­uði voru þannig að 62 pró­sent voru verð­tryggð en 38 pró­sent óverð­tryggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár