Afnám bankaskatts myndi auka virði ríkisbanka um 70 milljarða

Banka­sýsla rík­is­ins telur að lækkun banka­skatts niður í það hlut­fall sem hann á að verða 2024 muni auka virði Íslands­banka og Lands­banka um 44 millj­arða. Ef skatt­ur­inn yrði afnumin að öllu leyti myndi virðið aukast um 70 millj­arða.

Líklegast er að eignarhlutur ríkisins í Íslandsbanka verði seldur fyrst, ef af sölu ríkisbankanna kemur.
Lík­leg­ast er að eign­ar­hlutur rík­is­ins í Íslands­banka verði seldur fyrst, ef af sölu rík­is­bank­anna kemur. Mynd: Íslandsbanki

Ef sér­stakur banka­skattur yrði afnumin með öllu myndi sölu­and­virðið sem rík­is­sjóður getur vænst að fá fyrir hlutafé í Íslands­banka og Lands­banka, yrðu þeir seldir að fullu, hækka um 70 millj­arða króna. Þetta er mat Banka­sýslu rík­is­ins sem kynnti þá grein­ingu fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd í síð­ustu viku. Ef skatt­ur­inn verður lækk­aður niður í 0,145 pró­sent, líkt og stendur til að gera í nokkrum skrefum á næstu árum, mun sölu­and­virðið aukast um 44 millj­arða króna. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu.

Yfirlýst stefna sitj­andi rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er að selja hluta af eign rík­is­ins í fjár­mála­kerf­inu. Heimild er til þess í fjár­lögum að selja allt hlutafé í Íslands­banka og allt að 66 pró­sent hlut í Lands­bank­anum.

Í Hvít­­­bók um fram­­­tíð­­­ar­­­sýn fyrir fjár­­­­­mála­­­kerf­ið, sem birt var í des­em­ber í fyrra, var fjallað ítar­­­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í rík­­­is­­­bönk­­­un­um, Lands­­­bank­­­anum og Íslands­­­­­banka, og er horft til þess að nota skráðan markað til þess að end­­­ur­­­skipu­­­leggja eign­­­ar­hald með þeim hætti, að dreift og traust eign­­­ar­hald verði hluti af fjár­­­­­mála­­­kerf­inu til fram­­­tíð­­­ar. Þar var líka sér­stak­lega fjallað um að það gæti verið æski­legt að breyta skatt­stofni banka­skatts.

Banka­sýslan á að horfa til nið­ur­stöðu þeirrar vinnu við mótun á því hvernig færi best að selja rík­is­bank­anna. Hún lagði fram minn­is­blað á ráð­herra­fundi um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins í lok ágúst síð­ast­lið­ins þar sem lagt var til að annað hvort ætti að selja 25 pró­sent hlut í Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði og skrá þau bréf tví­hliða á mark­að, eða að selja allt að öllu hlutafé í bank­anum með upp­boðs­leið þar sem önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki eða sjóðir geti gert til­boð í hann. Aðgerð­irnar hafa ekki verið tíma­settar enn sem komið er.

Sam­an­lagt eigið fé bank­anna tveggja um mitt þetta ár var um 417 millj­­arðar króna. Rík­­is­­bank­­arnir greiddu eig­endum sínum 207 millj­­arða króna í arð á árunum 2013-2018.

Lækkun bankaskatts frestað

Í byrjun sept­em­ber kynnti Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, nýtt frum­varp um lækkun á banka­skatti. Sam­kvæmt því verður hinn sér­staki banka­skattur lækk­aður úr 0,376 pró­sent af heild­ar­skuldum þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem greiða hann í 0,145 pró­sent.

Frum­varpið hafði áður verið lagt fram í apríl síð­ast­liðnum og þegar gengið til efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar. Þá átti fyrsta skref lækk­un­ar­innar að taka gildi á næsta ári, 2020.

Þegar fjár­mála­á­ætlun var breytt í júní var hins vegar ákveðið að fresta lækkun banka­skatts­ins um eitt ár. Hann mun því ekki byrja að lækka á næsta ári, heldur árið 2021, og vera komin til fram­kvæmda að öllu leyti árið 2024. Þær breyt­ingar voru gerðar vegna breyttra aðstæðna í íslensku efna­hags­lífi, aðal­lega vegna gjald­þrots WOW air og loðnu­brests.

Verði frum­varpið að lögum má ætla að tekjur hins opin­bera lækki um 18 millj­arða króna á árunum 2020 til 2023. Í grein­ar­gerð sem fylgdi upp­runa­lega frum­varp­inu, sem var lagt fram í apr­íl, sagði að horft væri til þess að lækk­unin á banka­skatti myndi skila sér til almenn­ings í gegnum betri kjör hjá fjár­mála­stofn­un­um.

Banka­sýslan hefur skilað umsögn um það frum­varp þar sem hún fagnar lækkun banka­skatts­ins.

Andstaða hjá landsmönnum við sölu banka

Alls eru 61,2 pró­­sent lands­­manna jákvæðir gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka. Fjórð­ungur þjóð­­ar­inn­­ar, 25,2 pró­­sent, hefur enga fast­­mót­aða skoðun á slíku eign­­ar­haldi og ein­ungis 13,5 pró­­sent Íslend­inga eru nei­­kvæðir gagn­vart slíku eign­­ar­haldi.

Þetta er meðal þess sem kom fram í rann­­sókn sem Gallup vann fyrir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið og birt­ist með Hvít­­bók­inni. Mark­mið könn­un­­ar­innar var að skoða ítar­­lega traust til banka­­kerf­is­ins á Íslandi, hverjar væru helstu ástæður fyrir van­­trausti og hvað mætti betur fara. Úrtakið var 1.408 manns 18 ára og eldri af land­inu öllu. Þátt­­töku­hlut­­fall var 54,5 pró­­sent.

egar þeir sem eru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka voru spurðir af hverju sögðu 24,4 pró­­sent þeirra, eða tæp­­lega fjórð­ung­­ur, að ríkið væri betri eig­andi en einka­að­ili. Fimmt­ungur sagði að helsta ástæðan væri öryggi og/eða traust og 18,3 pró­­sent vegna þess að arð­­ur­inn færi þá til almenn­ings. Þá sögðu 15,7 pró­­sent að helsta ástæða þess að þeir væru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka vera þá að það þýddi að minni líkur væru á því að hlut­irnir myndu enda illa og að spill­ing og græðgi yrði minni.

Þeir sem voru nei­­kvæðir gagn­vart því að ríkið væri eig­andi við­­skipta­­banka töldu það ekki vera hlut­verk rík­­is­ins né að það væri hæft til þess að eiga við­­skipta­­banka. Þá væri hætta á spill­ingu og eign­­ar­hald á við­­skipta­­banka væri þar að auki áhætt­u­­samt fyrir rík­­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár