Ástandið óboðlegt – „Biðin ein og sér skapar óþarfa þjáningar“

Vara­þing­maður Pírata spyr hvers konar kerfi láti fólk bíða í 14 mán­uði eftir því að lög­reglar rann­saki nauðg­un­ar­brot. „Við eigum að hvetja fólk til að leita réttar síns en ekki að fæla það í burtu frá því.“

Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata.
Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður Pírata. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður Pírata gerði máls­með­ferð­ar­tíma kyn­ferð­is­brota­mála að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hún sagði að ástandið væri óboð­legt, eins og oft hefði verið bent á, og ákallið um breyt­ingar hefði eflaust ekki farið fram hjá neinum.

„Raunin er sú að enn situr stór hópur eftir sem á um sárt að binda, hópur fólks sem treystir rétt­ar­kerf­inu ekki og rétti­lega svo. Þessi hópur fólks er lát­inn bíða út í hið óend­an­lega. Hann er í raun­inni alfarið hlunn­far­inn af kerf­inu. Það er erfitt að treysta kerfi sem frestar rann­sókn og dregur með­ferð máls manns í sífellu. Að lokum verður kerfið rúið trausti sem er skelfi­leg til­hugsun,“ sagði hún.

Vantar traust

Lenya Rún nefndi að orðið á göt­unni væri að máls­með­ferð­ar­tím­inn væri of mikil fyr­ir­staða sem hefði það í för með sér að fólk sleppti því jafn­vel að kæra.

„Það að sumt fólk kæri ekki kyn­ferð­is­brot vegna tím­ans sem máls­með­ferð gæti tekið er algjör­lega óásætt­an­leg staða sem er einmitt það sem ger­ist þegar stofn­anir og ákæru­valdið njóta ekki trausts brota­þola. Við erum komin á þann stað að það tekur að með­al­tali 14 mán­uði fyrir lög­regl­una að rann­saka nauðg­un­ar­brot.

Hvers konar kerfi er það? Það hlýtur að vera mark­mið og vilji Alþingis að lögin sem við setjum og fjár­magnið sem við veitum í stofn­anir stuðli að sann­gjörnu rétt­ar­kerfi en skilji fólk ekki eftir með laskaða trú á kerf­unum sem við höfum skapað,“ sagði hún.

Telur Lenya Rún að ákæru­valdið eigi ekki eitt sök enda sé það þeirra á Alþingi að efla lög­regl­una með fræðslu og mönnun til að yfir­fara þessi mál af vand­virkni. „Biðin eftir mála­lokum skapar ólíft and­rúms­loft fyrir alla aðila sem eru málum við­kom­andi, biðin ein og sér skapar óþarfa þján­ingar og óvissu og töf á málum hefur það oft í för með sér að refs­ing er milduð eða jafn­vel felld niður. Við eigum að hvetja fólk til að leita réttar síns en ekki að fæla það í burtu frá því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár