Segir lánakjör enn í dag mjög góð – í sögulegu ljósi

Þrátt fyrir að kjör á lána­mark­aði séu í sögu­legu ljósi góð þá breytir það því ekki að margir ráða ekki við aukna greiðslu­byrði, segir fjár­mála­ráð­herra. Hann vill þó ekki að ríkið grípi inn í og þvingi fram nið­ur­stöðu sem ekki fæst á mark­aði.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Ekkert eitt getum við gert sem skiptir meira máli en það að ná aftur tökum á verð­lags­þróun og það ætti að vera í for­grunni umræð­unnar. Hvað getum við gert til þess að slá aftur niður verð­bólgu­vænt­ingar? Hvernig getum við beitt rík­is­fjár­mál­unum til að svo megi verða og hvernig sam­stillum við þær aðgerðir við aðgerðir Seðla­bank­ans? Ekkert eitt skiptir meira máli en nákvæm­lega þetta.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins sagði að rík­is­stjórnin þyrfti að sýna póli­tískt hug­rekki og verja heim­ilin. Hún þyrfti að taka póli­tíska ákvörðun og gefa út yfir­lýs­ingu um að eng­inn skyldi missa heim­ili sitt í því ástandi sem fyr­ir­sjá­an­legt væri að varði um hríð. Hún spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvort rík­is­stjórnin væri til­búin til þess að tryggja heim­ilum stöð­ug­leika eða ætl­aði hún að láta þau „gossa“.

Ást­hildur Lóa hóf fyr­ir­spurn sína á því að segja að hækk­anir á greiðslu­byrði heim­ila og fyr­ir­tækja upp á tugi þús­unda á mán­uði væru í kort­unum.

„Við horfðum á með­ferð bank­anna á heim­il­unum eftir síð­asta hrun og þar var enga mis­kunn að finna. Og þótt það hrun væri alfarið þeim sjálfum að kenna þá kunnu þeir ekk­ert að skamm­ast sín heldur fóru af fullri hörku eftir eigin fórn­ar­lömbum. Og nú stefnir aftur í að heim­il­unum verði fórnað fyrir svo­kall­aðan stöð­ug­leika. En fyrir hvern er sá stöð­ug­leiki ef heim­il­unum er fórnað fyrir hann?“ spurði hún.

Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar „munu augljóslega ekki duga til“

Þá spurði þing­mað­ur­inn einnig hvernig hann sæi fyrir sér að heim­ili, með 300.000 til 500.000 til ráð­stöf­unar á mán­uði, réði við 25.000 til 40.000 króna hækkun. Það væri það sem myndi bæt­ast við lán margra vegna 1 pró­sent hækk­unar á við­mið­un­ar­vöxtum Seðla­bank­ans.

„Tug­þús­unda­hækk­anir eru yfir­vof­andi á leigu­mark­aði og boð­aðar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna þeirra munu aug­ljós­lega ekki duga til. Hvað verður um leigj­endur sem ekki standa undir hækk­andi leigu? Hvar eiga þeir að búa?“ spurði hún.

Mannréttindi að eiga heimili

„Er rík­is­stjórnin til­búin að gefa það út að eng­inn muni missa heim­ili sitt í þeim hremm­ingum sem fyr­ir­sjá­an­legar eru og aðstæðum sem venju­legt heim­ili hefur lítil sem engin áhrif á? Og að lokum? Er rétt­læt­an­legt að svipta hund­ruð eða þús­undir fjöl­skyldna heim­ilum sínum fyrir stöð­ug­leika hinna? Er rétt­læt­an­legt að sumir gjaldi fyrir stöð­ug­leik­ann með heim­ili sínu? Er rétt­læt­an­legt að krefj­ast slíkra fórna?

Það eru mann­rétt­indi að eiga heim­ili og börn eiga rétt á að búa á öruggu heim­ili. Rík­is­stjórnin þarf að sýna póli­tískt hug­rekki og verja heim­ilin. Hún þarf að taka póli­tíska ákvörðun og gefa út yfir­lýs­ingu um að eng­inn skuli missa heim­ili sitt í því ástandi sem fyr­ir­sjá­an­legt er að vari um hríð. Aðeins þannig tryggjum við heim­il­unum stöð­ug­leika. Er rík­is­stjórnin til­búin til þess eða ætlar hún að láta heim­ilin gossa?“ spurði hún að lokum.

Dregur í efa að dæmið sem þingmaðurinn nefndi sé dæmigert

Bjarni svar­aði og sagði að það væri ástæða til þess að fylgj­ast mjög náið með greiðslu­byrði og getu heim­il­anna til að standa í skilum með skuld­bind­ingar sínar.

„Við getum þó haft í huga í þessu sam­bandi að sú staða hefur ekki áður verið betri en í upp­hafi þessa árs og undir lok þess síð­asta, það er hlut­fall heim­ila sem eiga í vand­ræðum með að láta enda ná saman um lok mán­aðar hefur ekki áður verið lægra og það er mjög góð vís­bend­ing,“ sagði ráð­herr­ann og bætti því við að hann leyfði sér að draga í efa að þetta væri dæmi­gert til­vik sem Ást­hildur Lóa nefndi – að það væri algengt að fólk neð­ar­lega í tekju­stig­anum væri að sjá þetta mikla aukn­ingu á greiðslu­byrði á mán­uði vegna síð­ustu vaxta­á­kvörð­unar.

Þetta er einnig í höndum fjármálafyrirtækjanna

„En það breytir ekki hinu að rík­is­stjórnin hefur þegar ákveðið að bregð­ast við og ég ætla að mæla hér fyrir frum­varpi síðar í dag um aðgerðir til þess að koma til móts við þá sem hvað minnst hafa milli hand­anna í sam­fé­lag­inu. Ekkert eitt getum við gert sem skiptir meira máli en það að ná aftur tökum á verð­lags­þróun og það ætti að vera í for­grunni umræð­unnar. Hvað getum við gert til þess að slá aftur niður verð­bólgu­vænt­ingar? Hvernig getum við beitt rík­is­fjár­mál­unum til að svo megi verða og hvernig sam­stillum við þær aðgerðir við aðgerðir Seðla­bank­ans?

Ekkert eitt skiptir meira máli en nákvæm­lega þetta. Í milli­tíð­inni, þar til því verður náð, eru mörg úrræði og þau eru ekki öll ein­göngu hjá rík­is­vald­inu til að grípa inn í. Þau eru líka í höndum fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna sem hafa hér ríkri skyldu að gegna við að koma til móts við þarfir þeirra sem þurfa á fyr­ir­greiðslu að halda,“ sagði hann.

Varðandi leigj­endur þá sagði Bjarni að hann væri þeirrar skoð­unar að stjórn­völd þyrftu að fylgj­ast jafn vel með þeim mark­aði eins og hús­næð­is­mark­aðnum þar sem kaup­endur eru fyrir og eig­endur vegna þess að þar sýndu töl­urnar að það væru líka við­kvæm heim­ili sem ættu í hlut.

Fjármálafyrirtækin „sýna enga miskunn“

Ást­hildur Lóa kom aftur í pontu og sagði að málið væri að of seint væri í rass­inn gripið að gera eitt­hvað þegar fólk væri komið í vanda – og hann væri fyr­ir­sjá­an­legur.

„Það að ætla að treysta á mis­kunn fjár­mála­fyr­ir­tækja – hæst­virtur ráð­herra verður bara að fyr­ir­gefa – það gengur ekki upp. Þau sýna enga mis­kunn, ég hef per­sónu­lega reynslu af því og það hafa þús­undir ann­arra. Það er ekk­ert hægt að treysta á það, hún er ekki fyrir hendi. Og hversu dýru verði er það keypt að ná tökum á verð­bólg­unni með þessum hætti? Kostn­að­ur­inn við hús­næði er stærsti póst­ur­inn hjá öllum heim­ilum og hann hækkar.

Þetta er líka sá póstur sem fólk hefur minnsta stjórn á. Það getur stjórnað neyslu sinni, við getum ákveðið að keyra minna eða kaupa ódýr­ari teg­undir af ein­hverju eða bara ákveðið að lifa á hafra­graut í ein­hvern tíma til að bjarga okkur ef þess þarf. En hús­næð­is­kostn­að­ur­inn er það sem er hvað erf­ið­ast að standa undir. Mig langar bara að nefna að við förum allt aðrar leiðir en þjóð­irnar í kringum okkur þar sem vextir eru ekki svona háir. Í 9 pró­sent verð­bólgu eru Bretar að hækka um 0,25 pró­sent,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Hefur persónulega reynslu af því að þurfa nauðbeygður að taka lán á hærri vöxtum

Bjarni svar­aði í annað sinn og sagði að í sögu­legu ljósi væru vextir ekki mjög háir í dag. Hann hefði einmitt per­sónu­lega reynslu, eins og Ást­hildur Lóa, af því að þurfa nauð­beygður að taka lán á langtum hærri vöxtum en eru mark­aðsvextir í dag – langtum hærri vöxtum – og sitja svo uppi með 20 pró­sent afskriftir af hús­bréf­unum, þar sem hann hefði í raun og veru ein­ungis fengið 80 pró­sent af lán­inu sem hann lof­aði að borga til baka.

„Í þessu sam­hengi, í sögu­legu ljósi, eru kjörin enn þann dag í dag mjög góð. Það breytir því ekki að margir kunni að hafa spennt bog­ann mjög hátt og þola lítið, hafa ekki mikið borð fyrir báru til að ráða við aukna greiðslu­byrði. Þá eru mörg úrræði sem á að horfa til áður en til þess kemur að menn grípi inn í, eins og hátt­virtur þing­maður er í raun og veru að leggja til hér, að ríkið grípi inn í samn­inga um hús­næð­is­lán, grípi með ein­hverjum hætti inn í málin, og þvingi fram nið­ur­stöðu sem ekki fæst á mark­aði. Ég verð að segja að á þessum tíma­punkti held ég að það væri mikið óráð að fara þá leið,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár