Starfslok framkvæmdastjóra Heimavalla kostuðu 24,6 milljónir króna

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri stærsta leigu­fé­lags lands­ins sem starfar á almennum mark­aði fékk á þriðja tug millj­óna króna vegna starfs­loka sinna. Skráning félags­ins, Heima­valla, þykir hafa lukk­ast afar illa.

Guðbrandur Sigurðsson hringir kauphallarbjöllunni þegar viðskipti hófust með bréf í Heimavöllum í fyrra. Innan við ári síðar var hann hættur störfum.
Guð­brandur Sig­urðs­son hringir kaup­hall­ar­bjöll­unni þegar við­skipti hófust með bréf í Heima­völlum í fyrra. Innan við ári síðar var hann hættur störfum. Mynd: Nasdaq Iceland

Heima­vellir, stærsta leigu­fé­lag lands­ins sem starfar á almennum mark­aði, gjald­færði alls 24,6 millj­ónir króna á öðrum árs­fjórð­ungi vegna greiðslna til Guð­brands Sig­urðs­sonar, sem hætti störfum hjá félag­inu 31. mars, eða á síð­asta degi fyrsta árs­fjórð­ungs.

Greiðsl­urnar, sem inni­halda einnig launa­tengd gjöld, voru í sam­ræmi við ráðn­ing­ar­samn­ing Guð­brands. Heima­vellir greiddu alls tæp­lega 40,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð fyrir Guðbrand á árinu 2018, sem var síð­asta fulla árið sem hann starf­aði fyrir félagið. Laun hans voru rúm­lega 2,9 millj­ónir króna á mán­uði en auk þess greiddu Heima­vellir 5,7 millj­ónir króna í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra. Miðað við það hefur Guð­brandur fengið um 60 pró­sent af árs­greiðslum vegna starfs­loka sinna. 

Illa lukkuð skráning

Heima­vellir voru skráðir á markað vorið 2018. Ári síðar reyndu lyk­il­hlut­hafar að afskrá félag­ið, en Kaup­höll Íslands kom í veg fyrir það. Þær skýr­ingar voru gefnar fyrir þeirri veg­ferð að Heima­vellir hafi ekki fengið góðar mót­tökur hjá stærstu fjár­festum lands­ins, sér­stak­lega líf­eyr­is­sjóð­um, og að end­ur­fjár­mögn­un­ar­til­burðir Heima­valla hafi ekki staðið undir vænt­ing­um. Á þeim tíma lá þó fyrir verð­mat á eignum félags­ins sem sýndi að virði eigna þess væri mun hærra en opin­berar tölur gáfu til kynna. Samkvæmt verð­mat­inu, sem unnið var af Arctica Finance, kom fram að fyr­ir­tækið telji að eigið fé Heima­valla miðað við sitt mat hafi átt að vera 27 millj­arðar króna í vor. Því skeik­aði um 14 millj­örðum króna á mats­verði Heima­valla og mark­aðsvirði félags­ins á þeim tíma.

Marka­virði Heima­valla í dag er um 13,5 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins, mun­ur­inn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða 18,8 millj­arðar króna.

Eru að selja eignir hratt

Alls eru ríf­lega 400 íbúðir í eigu Heima­valla skil­greindar eða verða skil­greindar til sölu í nán­ustu fram­tíð. Bók­fært virði þeirra er um 14,5 millj­arðar króna og áætlað er að sala þeirra muni losa allt að fjóra millj­arða króna í umfram eigið fé. Því eigið fé verður skilað til hlut­hafa með end­ur­kaupum á hluta­bréfum í Heima­völlum eða með arð­greiðsl­u­m.

Þetta kom fram í fjár­festa­kynn­ingu vegna hálfs árs upp­gjörs Heima­valla sem birt var á föstu­dag. Á hlut­hafa­fundi í Heima­völlum sem hald­inn var á föstu­dag var sam­þykkt að upp­færa end­ur­kaupa­heim­ild félags­ins þannig að því verði heim­ilt að kaupa allt að þrjú pró­sent í sjálfu sér af hlut­höfum á næstu átta mán­uð­u­m.

Heima­vellir munu eiga alls um 1.700 íbúðir í lok þessa árs en þeim á að fækka með eigna­sölum í um 1.400 fyrir lok árs 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár