„Við verðum bara að taka þessa umræðu“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tekur undir þá gagn­rýni að rík­is­stjórnin hafi „að mörgu leyti brugð­ist“ og vill hann hafa meiri umræðu m.a. um afleið­ing­arnar af tak­mörk­unum í far­aldr­inum.

Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég verð að segja og get tekið undir það að rík­is­stjórnin hefur að mörgu leyti brugð­ist gagn­vart því að hafa umræð­una meira um afleið­ing­arnar af tak­mörk­unum, hvernig á að bregð­ast við.“

Þetta sagði Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hóf hann ræðu sína á því að segj­ast vilja gera að umtals­efni mik­il­vægi þess – sér­stak­lega í lýð­ræð­is­legu til­liti – að hér á landi fari fram opin og hrein­skiptin umræða um stöðu sam­fé­lags­ins í COVID-far­aldr­inum og hvernig Íslend­ingar tækjust á við hann.

„Þurfum að þora að taka þessa umræðu“

„Þá þurfum við að þora að taka umræð­una frá mörgum sjón­ar­hornum, sem mér finnst hafa, eftir bráðum tveggja ára veru í far­aldr­inum, ein­skorð­ast svo­lítið bara við sótt­varna­sjón­ar­mið. Maður finnur það bara almennt í sam­fé­lag­inu að það er svo­lítið verið að stíga inn á hættu­lega braut með því að fara að gagn­rýna eitt­hvað, að spyrja spurn­inga. En við verðum, við verðum bara að taka þessa umræðu,“ sagði Vil­hjálmur.

Þá beindi hann jafn­framt máli sínu að eft­ir­köstum tak­mark­ana stjórn­valda í far­aldr­inum. „Af því að umræðan snýst svo­lítið mikið um atvinnu­rek­endur og hvernig við eigum að halda atvinnu­líf­inu gang­andi – jú, til að fólk haldi stör­f­unum? Það er nefni­lega málið. Það er tölu­vert af fólki sem er þá kannski frekar á lágum launum sem hefur fallið úr starfi og þarf virkni­stuðn­ing til að kom­ast aftur til starfa en hefur kannski bara verið með 70 til 80 pró­sent laun síð­ustu tvö árin og hafði þó ekki miklar tekjur fyrir.“

Spurði Vil­hjálmur hvaða félags­leg og and­leg áhrif þetta hefði og hvernig stjórn­völd ætl­uðu að takast á við ástandið.

„Og líka bara spurn­ingar eins og læknar eru byrj­aðir að spyrja núna: Er betra að nýta starfs­fólkið í að þjón­usta í heil­brigð­is­kerf­inu eða að taka sýni og annað slíkt? Er betra að nota fjár­mun­ina í að byggja upp heil­brigð­is­kerfið, í geð­heil­brigð­is­málum, annað en að nota þá í þessar víð­tæku skimanir? Við þurfum að þora að taka þessa umræðu, fjöl­miðlar, alþing­is­menn og sam­fé­lagið allt,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár