Píratar leggja fram lyklafrumvarp

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, er fyrsti flutn­ings­maður að nýju frum­varpi um breyt­ingu á lögum um samn­ings­veð, sem oft hefur verið kallað lykla­frum­varp í opin­berri umræðu. Með­flutn­ings­menn hennar eru Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir, vara­þing­maður flokks­ins. Í frum­varpi segir m.a.: „Lán­veit­andi, sem í atvinnu­skyni veitir ein­stak­lingi lán til kaupa á fast­eign sem ætluð er til búsetu og tekur veð í eign­inni til trygg­ingar end­ur­greiðslu láns­ins, getur ekki leitað fulln­ustu kröfu sinnar í öðrum verð­mætum veð­sala en veð­inu. Krafa lán­veit­anda á hendur lán­taka skal falla niður þegar lán­veit­andi hefur gengið að veð­inu, enda þótt and­virði þess við nauð­ung­ar­sölu dugi ekki til greiðslu upp­haf­legu kröf­unnar. Óheimilt er að semja á annan veg en greinir í ákvæði þessu."

Verði frum­varpið að lögum verður lán­tak­anda heim­ilt að skila ein­fald­lega lyklunum af fast­eign sem hann hefur fengið lán fyrir og lán­veit­and­inn getur ekki gengið að honum að öðru leyti en að leysa til sín und­ir­liggj­andi veð láns­ins, fast­eign­ina sem keypt var fyrir það.

Á blogg­síðu Pírata segir að frum­varpið byggi á eldra frum­varpi Lilju Mós­es­dóttur, fyrrum þing­manns Vinstri grænna og síðar stofn­anda Samstöðu, sem hún lagði nokkrum sinnum fram á síð­asta kjör­tíma­bili. Píratar telja frum­varpið mik­il­vægan lið í „því að dreifa áhættu­töku í fast­eigna­lánum og færa hér­lenda lána­starf­semi úr því horfi að áhætta sé ein­hliða á hendi lán­taka."

Píratar eru langstærsta stjórn­mála­afl lands­ins sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum og hafa verið það frá því snemma á síð­asta ári. Frá apr­íl­mán­uði 2015 hefur fylgi flokks­ins mælst yfir 30 pró­sent og í könnun Gallup sem greint var frá í gær mæld­ist það hærra en nokkru sinni áður, eða 35,9 pró­sent. Neikvæð umræða und­an­farið um inn­an­flokksá­tök hjá Pírötum, þar sem sál­fræð­ingur var meðal ann­ars feng­inn til þess að hjálpa til við stilla til friðar, virð­ist ekki hafa áhrif á fylgi þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár