Píratar ennþá langstærstir - Neikvæð umræða hefur engin áhrif

Píratar hafa aldrei mælst með meira fylgi í Þjóð­ar­púlsi Gallup, 35,9 pró­sent, að því er fram kemur á vef RÚV.

Gallup kann­aði fylgi við flokka í febr­úar. Litlar breyt­ingar hafa orðið á stuðn­ingi við flokka. Píratar mæl­ast enn með mest fylgi og nei­kvæð umræða und­an­farið um inn­an­flokksá­tök hjá Pírötum, þar sem sál­fræð­ingur var meðal ann­ars feng­inn til þess að hjálpa til við stilla til friðar, virð­ist ekki hafa áhrif á fylgi þeirra.

Litlar breyt­ingar eru á fylgi ann­arra flokkka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 23,7 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 11 pró­sent, og er því sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­ana 34,7 pró­sent.

Vinstri græn mæl­ast með 10,8 pró­sent og Sam­fylk­ingin með 9,7 pró­sent. Björt fram­tíð nær sér ekki á strik og mælist nú með 3,3 pró­sent. Aðrir flokkar mæl­ast með 5,6 pró­sent.

Könnunin var gerð dag­ana 28. jan­úar til 28. febr­úar 2016. 5718 voru í útaki Gallup en 59,2 pró­sent tóku þátt. Þar af nefndu 79,8 pró­sent flokk, 10,8 pró­sent tóku ekki afstöðu eða neit­uðu að svara en 9,5 pró­sent sögð­ust ætla að skila auðu eða ekki kjósa. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-1,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár