Mun endurskipa hóp um endurskoðun búvörusamninga

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, nýr sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, stað­festir að hún muni skipa nýtt fólk í starfs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Gunnar Bragi Sveins­son skip­aði hóp­inn 18. nóv­em­ber.

Sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga verður end­ur­skip­aður á næst­unni. Þeir full­trúar sem sæti fá í hópnum munu end­ur­spegla betur alla þá hags­muna­að­ila sem end­ur­skoðun samn­ing­anna snertir, t.d. bændur, neyt­endur, verslun og vinnu­mark­að­inn. Þetta stað­festir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, nýr sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við Kjarnann.

Gunnar Bragi Sveins­son, frá­far­andi ráð­herra mála­flokks­ins, lauk við að skipa í sam­ráðs­hóp­inn 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, þremur vikum eftir kosn­ingar og mán­uði eftir að skipan hans átti upp­haf­lega að liggja fyrir. Af þeim tólf full­trúum sem skip­aðir voru í hóp­inn voru átta full­trúar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytis eða Bænda­sam­taka Íslands, þien sömu og gerðu búvöru­samn­ing­anna í febr­úar 2016 sem til stendur að end­ur­skoða. Laun­þeg­ar, atvinnu­lífið og neyt­endur áttu sam­tals fjóra full­trúa. Á meðal þeirra sem voru skip­aðir í hóp­inn af ráðu­neyt­inu var Ögmundur Jón­as­son, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna.

Bændur hafa neitunarvald

Búvöru­samn­ingar til tíu ára voru und­ir­rit­aðir í febr­úar 2016 og sam­þykktir á Alþingi síð­ast­liðið haust. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þeirra er 13-14 millj­arðar króna á ári.

Ein­ungis 19 þing­­­menn, eða 30 pró­­­sent allra þing­­­manna, greiddu atkvæði með búvöru­samn­ing­unum þegar þeir voru sam­­þykktir á Alþingi á í sept­em­ber. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki við­staddir atkvæða­greiðsl­una sem mun móta eitt af lyk­il­­­kerfum íslensks sam­­­fé­lags, hið rík­­­is­­­styrkta land­­­bún­­­að­­­ar­­­kerfi, næsta ára­tug­inn.

Í lok ágúst lagði meiri­hluti atvinn­u­­­vega­­­nefndar fram breyt­ing­­­ar­til­lögur á samn­ing­un­­­um. Þegar þær voru kynntar var látið að því liggja að í til­­lög­unum væri skýrt kveðið á um end­­­ur­­­skoð­un­­­ar­á­­­kvæði innan þriggja ára. Engar frek­­ari breyt­ingar voru gerðar á lögum sem gera samn­ing­anna gild­andi eftir þær breyt­inga­til­lög­­ur. Ákvæðið um end­­ur­­skoðun samn­ing­anna er þó ekki mjög skýrt. Í áliti meiri­hluta­­nefndar atvinn­u­­vega­­nefndar sagði: „Meiri hlut­inn leggur áherslu á að við sam­­þykkt frum­varps­ins nú eru fyrstu þrjú ár samn­ing­anna stað­­fest og mörkuð fram­­tíð­­ar­­sýn til tíu ára. Meiri hlut­inn leggur til ákveðna aðferða­fræði fyrir end­­ur­­skoðun samn­ing­anna árið 2019 og skal ráð­herra þegar hefj­­ast handa við að end­­ur­­meta ákveðin atriði og nýtt fyr­ir­komu­lag gæti mög­u­­lega tekið gildi í árs­­byrjun 2020. Meiri hlut­inn leggur til að end­­ur­­skoð­unin bygg­ist á aðferða­fræði sem feli í sér víð­tæka sam­still­ingu um land­­bún­­að­inn, atkvæða­greiðslu um end­­ur­­skoð­aða samn­inga meðal bænda og afgreiðslu Alþingis á laga­breyt­ingum sem sú end­­ur­­skoðun kann að kalla á.“

Í breyt­ing­­ar­til­lög­unni sjálfri sagði: „Eigi síðar en 18. októ­ber 2016 skal sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra skipa sam­ráðs­hóp um end­­ur­­skoðun búvöru­­samn­inga. Tryggja skal aðkomu afurða­­stöðva, atvinn­u­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­­ur­­skoð­un­inni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019. Skulu bændur eiga þess kost að kjósa um nýjan búvöru­­samn­ing eða við­bætur við fyrri samn­inga.

Kjarn­inn beindi fyr­ir­­spurn til sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráðu­­neyt­is­ins um hvort að það bæri að skilja lögin þannig að bændur myndu alltaf fá að kjósa um þá end­­ur­­skoðun sem muni eiga sér stað eigi síður en árið 2019. Svar ráðu­­neyt­is­ins var já.

Þegar spurt var hvað myndi ger­­ast ef bændur myndu hafna þeirri end­­ur­­skoðun í atkvæða­greiðslu var svar­ið: „Ef bændur hafna þeim breyt­ingum sem hugs­an­­lega verða gerðar við end­­ur­­skoð­un­ina 2019 verður aftur sest niður og leitað frek­­ari samn­inga.“

Mikil áhersla lögð á að fá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

Björt fram­tíð greiddi ein stjórn­mála­flokka í heild sinni atkvæði gegn samn­ing­unum. Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar eru engar koll­steypur í land­bún­aði. Þar segir að end­ur­skoðun búvöru­samn­ings verði grunnur að nýja sam­komu­lagi við bændur, sem miðað er við að ljúki eigi síðar en árið 2019.

Í sátt­mál­anum segir að af hálfu stjórn­valda verði „hvatt til að vægi almenn­ari stuðn­ings verði aukið, svo sem til jarð­ræktar, fjár­fest­ingar, nýsköp­unar, umhverf­is­verndar og nýlið­unar, en dregið úr sér­tækum búgreina­styrkjum. End­ur­skoða þarf ráð­stöfun inn­flutn­ings­kvóta og greina for­sendur fyrir frá­vikum frá sam­keppn­is­lögum fyrir mjólkur­iðn­að­inn og gera við­eig­andi breyt­ingar.“

Viðreisn lagði hins vegar mikla áherslu á að fá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið til að geta komið á breyt­ingum á þeim mála­flokkum, þótt engar tíma­settar eða útfærðar breyt­ingar séu í stjórn­ar­sátt­mála. End­ur­skipun starfs­hóps um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga er fyrsta skrefið í þá átt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár