Um 132 þúsund landsmenn standa utan þjóðkirkjunnar

Þeim lands­mönnum sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una hefur fækkað umtals­vert síð­ast­lið­inn ára­tug. Auk þess hefur henni ekki tek­ist að ná inn þeim tæp­lega 44 þús­und nýju Íslend­ingum sem hafa anna hvort fæðst eða flutt hafa til lands­ins á tíma­bil­inu.

Nýtt merki þjóðkirkjunnar sem var komið fyrir á nýjum húsakynnum Biskupsstofu að Katrínatúni 4 síðastliðinn miðvikudag.
Nýtt merki þjóð­kirkj­unnar sem var komið fyrir á nýjum húsa­kynnum Bisk­ups­stofu að Katrína­túni 4 síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Mynd: Kirkjan.is

Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra lands­manna sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una met­tölu, en þá voru 253.069 lands­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú 231.154.

Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 21.915 frá árs­byrjun 2009.

Á því tíma­bili hefur Íslend­ingum fjölgað um 43.498, en þjóð­kirkj­unni hefur mis­tek­ist að ná þeim fjölda til sín líka. Sam­an­lagt eru hafa því rúm­lega 65 þús­und Íslend­ingar ákveðið að ganga ekki í þjóð­kirkj­una á síð­ast­liðnum árum. Alls standa nú tæp­lega 132 þús­und lands­menn utan þjóð­kirkju.

[adspot]Af þeim hópi eru 26.023 skráðir utan trú­fé­laga og 52.060 eru með ótil­greinda skrán­ingu. Fjölgun á þeim sem eru með ótil­greinda skrán­ingu má rekja til mik­illar aukn­ingar á fjölda erlendra rík­is­borg­ara sem sest hafa að á Íslandi á und­an­förnum árum.

Þetta kemur fram í nýlegum tölum frá Þjóðskrá Íslands um skrán­ingu í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Staðan í dag er því þannig að rúm­lega 36,5 pró­sent lands­manna standa utan þjóð­kirkj­unnar. Fyrir rúmum ára­tug stóð fimmt­ungur lands­manna utan hennar.

Ráðherra boðar skref í átt að aðskilnaði

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði í byrjun síð­asta mán­aðar að óhjá­kvæmi­legt væri að stefna í átt að fullum aðskiln­aði ríkis og kirkju. Í grein sem hún skrif­aði í Morg­un­blaðið sagði hún að nýtt sam­komu­lag, sem und­ir­ritað var í sept­em­ber síð­ast­liðn­um, milli ríkis og þjóð­kirkj­unnar feli í sér að hún verði ekki lengur eins og hver önnur rík­is­stofn­un. „Hún mun fremur líkj­ast frjálsu trú­fé­lagi sem ber ábyrgð á eigin rekstri og fjár­hag. Þessar breyt­ingar eru til mik­illa bóta og óhjá­kvæmi­legt að stefna áfram á sömu braut í átt að fullum aðskiln­aði. Þangað til og þrátt fyrir sam­komu­lagið mun þjóð­kirkjan áfram njóta stuðn­ings og verndar íslenska rík­is­ins á grund­velli ákvæðis stjórn­ar­skrár­inn­ar.“

Áslaug Arna sagði í grein­inni að sjálf­stæð kirkja óháð rík­is­vald­inu sam­rým­ist betur trú­frelsi og skoð­ana­frelsi en sér­staðan sem þjóð­kirkjan hefur notið í íslenskri stjórn­skip­an. „Í mínum huga er ekki spurn­ing um það að kirkjan getur vel sinnt öllum verk­efnum sínum og þar á meðal sálu­hjálp og marg­vís­legri félags­legri þjón­ustu óháð rík­inu. Ég er einnig þeirrar skoð­unar að margir muni fylgja kirkj­unni að málum þótt full­kom­inn aðskiln­aður verði á end­anum á milli hennar og rík­is­valds­ins.“

Þremur dögum síðar sagði hún í við­tali við RÚV að aukið ákall væri um það í sam­fé­lag­inu, að sjálf­stæði trú­fé­laga og líf­skoð­un­ar­fé­laga sé algjört. Hún sagði vinnu til að svara þessu ákalli væri þegar komin af stað. Mark­mið þeirrar vinnu væri að skilja að ríki og kirkju. 

Meirihluti virðist vera fyrir aðskilnaði

Meiri­hluti virð­ist vera fyrir því á Alþingi að setja aðskilnað kyrfi­lega á dag­skrá. Fyrir þing­inu liggur þings­á­lykt­un­ar­til­laga þing­manna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Pírata auk þing­manns Vinstri grænna og eins utan flokka, þar sem lagður er til aðskiln­aður ríkis og kirkju.

[adspot]Sam­kvæmt til­lög­unni á að leggja frum­vörpin fram í síð­asta lagi á vor­þingi 2021, því síð­asta áður en að næstu þing­kosn­ingar verða haldnar miðað við áætl­un. Þau eiga að kveða á um að fullur aðskiln­aður verði milli ríkis og kirkju í síð­asta lagi í árs­lok 2034.

Í umsögn um málið hefur Biskup Íslands, Agnes Sig­urð­ar­dótt­ir, sagt að það sé ekk­ert for­gangs­mál að kirkjan sé hluti af rík­is­vald­inu. „Að við­halda tengslum kirkj­unnar við rík­­is­­valdið er í sjálfu sér ekki for­­gangs­­mál kirkj­unn­­ar. Skyldur kirkj­unnar liggja fyrst og fremst í því að rækta og við­halda tengsl­unum við þjóð­ina.“

Til­­lagan er nú til með­­­ferðar hjá alls­herj­­­ar- og mennta­­mála­­nefnd.

Flestir landsmenn hlynntir breytingum

Sam­kvæmt Þjóð­ar­púlsi Gallup sem var birtur fyrir í byrjun nóv­em­ber er meiri­hluti Íslend­inga hlynntur aðskiln­aði ríkis og kirkju, eða rúm­­lega 55 pró­­sent, en það er svipað hlut­­fall og und­an­farin ár. Ríf­­lega fimmt­ungur er hvorki hlynntur né and­vígur aðskiln­aði ríkis og kirkju, og tæp­­lega fjórð­ungur er and­víg­­ur.

[links]Karlar eru hlynnt­­ari aðskiln­aði ríkis og kirkju en kon­­ur, og fólk er hlynnt­­ara aðskiln­aði eftir því sem það er yngra. Íbúar höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins eru hlynnt­­ari aðskiln­aði ríkis og kirkju en íbúar lands­­byggð­­ar­inn­­ar, og fólk er hlynnt­­ara aðskiln­aði eftir því sem það hefur meiri menntun að baki.

Munur er á við­horfi fólks eftir því hvað það kysi til Alþingis ef kosið yrði í dag. Þeir sem kysu Pírata eru lík­­­leg­­astir til að vera hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju, en þeir sem kysu Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn lík­­­leg­­astir til að vera and­víg­­ir. Á eftir þeim koma kjós­­endur Mið­­flokks­ins og Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins.

Í nið­­ur­­stöð­unum kemur fram að um þriðj­ungur Íslend­inga beri mikið traust til þjóð­­kirkj­unn­­ar. Það er svipað hlut­­fall og í fyrra en þá lækk­­aði það frá fyrri mæl­ing­­um. Nær þriðj­ungur ber hvorki mikið né lítið traust til þjóð­­kirkj­unnar og um þriðj­ungur ber lítið traust til henn­­ar.

Um 19 pró­­sent eru ánægð með störf Agn­­esar M. Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, bisk­­ups Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár