Aðskilnaður ríkis og kirkju á stefnuskrá stjórnvalda

Dóms­mála­ráð­herra segir að aukið ákall sé eftir sjálf­stæði trúa­fé­laga.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­son dóms­mála­ráð­herra hyggst hefja vinnu við það að skilja að ríki og kirkju á næsta ári.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Áslaug Arna sagði í fréttum RÚV að aukið ákall sé um það í sam­fé­lag­inu, að sjálf­stæði trú­fé­laga og líf­skoð­un­ar­fé­laga sé algjört. Hún sagði að mark­mið þeirrar vinnu, sem þegar sé komin af stað, sé að skilja að ríki og kirkju.

Til með­ferðar á Alþingi er nú þings­á­lykt­un­ar­til­laga þing­manna stjórn­ar­and­stöðu flokka og þing­manna Vinstri grænna, þar sem lagður er til aðskiln­aður ríkis og kirkju.

Í umsögn um málið hefur Biskup Íslands, Agnes Sig­urð­ar­dóttir, sagt að það sé ekk­ert for­gangs­mál að kirkjan sé hluti af rík­is­vald­inu.

„Að við­halda tengslum kirkj­unnar við rík­is­valdið er í sjálfu sér ekki for­gangs­mál kirkj­unn­ar. Skyldur kirkj­unnar liggja fyrst og fremst í því að rækta og við­halda tengsl­unum við þjóð­ina,“ segir Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, biskup Íslands, í umsögn um ­þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fullan aðskilnað ríkis og kirkju. Hún tekur þó fram í umsögn­inni að Bisk­ups­stofu hugn­ist að kirkjan verði áfram þjóð­kirkja lands­ins.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga ­þing­manna fjög­urra flokka um að ­fela rík­is­stjórn­inni að leggja fram frum­varp um full­an, laga­­legan og fjár­­hags­­legan aðskilnað ríkis og kirkju var lögð fram í sept­em­ber síð­ast­liðn­um.

Til­lagan er nú til með­ferðar hjá alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd og hefur nefndin sent umsagna­beiðnir á yfir fjöru­tíu trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár