Flýja aftur yfir til Norður-Kóreu

Meira en þrjá­tíu þús­und flótta­menn frá Norður-Kóreu búa í Suður-Kóreu í dag, eftir að hafa skilið fjöl­skyldur sínar eftir og lagt sjálft lífið í söl­urnar til að flýja fátækt og ógn­ar­stjórn. Lífið í hinum „frjálsa heimi“ kap­ít­al­ism­ans reyn­ist þó oft erf­ið­ara en þá grun­aði og nú er svo komið að vax­andi hópur flótta­manna berst fyrir því að fá að snúa aftur til Norður-Kóreu.

Á götu­horni í Seúl stendur maður að nafni Kwon Chol Nam með mót­mæla­skilti sem hann hefur útbúið sjálfur. Hann seg­ist reyna að mót­mæla flesta daga en stundum sé hann of þreyttur, svangur og dapur til að standa vakt­ina.

Kwon býr í lít­illi kompu í glæsi­legri stór­borg sem er höf­uð­borg eins auð­ug­asta ríkis heims en á skilti hans stendur: „Ég er rík­is­borg­ari hins Lýð­ræð­is­lega Alþýðu­lýð­veldis Kóreu (Norður-Kóreu) og ég vil fá að snúa aftur heim!“ Fæstir veg­far­endur virða hann við­lits.

Kwon fórn­aði öllu til að kom­ast frá Norður-Kóreu á sínum tíma. Hann gat ekki hætt á að segja neinum frá áformum sínum og þurfti því að skilja fjöl­skyldu sína eftir þegar hann skreið undir gadda­vírs­girð­ingu eina nótt­ina og ark­aði í átt að straum­harðri á sem markar landa­mæri Norður-Kóreu og Kína. 

Hann komst yfir við illan leik en þá tók við löng og ströng svað­il­för yfir harð­býlt svæði i …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár