Samherji staðfestir að vera að skoða laxeldi í Helguvík

Samherji fisk­eldi og Norðurál hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu í tengslum við kaup Samherja á eignum Norð­ur­áls í Helguvík. Þar var skóflustunga tekin að álveri árið 2008, en sá draumur varð aldrei að veru­leika. Nú kannar Samherji aðstæður til lax­eldis.

Skóflustunga að því sem átti að verða álver Norðuráls í Helguvík var tekin árið 2008 en framkvæmdin varð aldrei að veruleika.
Skóflustunga að því sem átti að verða álver Norð­ur­áls í Helguvík var tekin árið 2008 en fram­kvæmdin varð aldrei að veru­leika.

Norðurál og Samherji fisk­eldi, sem er hluti af sam­stæðu Samherja, hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu í tengslum við kaup á eignum Norð­ur­áls í Helguvík og þar eru mögu­leikar á fisk­eldi til skoð­unar. Þetta er stað­fest í til­kynn­ingu á vef Samherja, en Frétta­blaðið greindi fyrst frá þessu í morgun og hafði eftir ótil­greindum heim­ildum.

Í til­kynn­ingu Samherja segir að frum­at­hugun á aðstæðum til lax­eldis í Helguvík sé hafin og að nið­ur­stöðu sé að vænta fyrir ára­mót. Búið sé að funda með bæj­ar­stjórum bæði Reykja­nes­bæjar og Suð­ur­nesja­bæjar vegna þess­ara áforma.

„Samherji fisk­eldi er hefur áhuga á að vaxa í land­eldi á laxi og er með mögu­lega stað­setn­ingu í eignum Norð­ur­áls í Helguvík til skoð­unar. Á næstu vikum munum við fara yfir for­sendur og mögu­leika til lax­eldis á svæð­inu áður en frek­ari ákvarð­anir verða teknar,“ er haft eftir Jóni Kjartani Jónssyni, fram­kvæmda­stjóra Samherja fisk­eldis í til­kynn­ing­unni.

Samherji er þegar með fisk­eld­is­starf­semi á Suð­ur­nesjum, en það á slát­ur­hús og vinnslu í Sand­gerði, eld­is­stöð á Stað við Grinda­vík og eld­is­stöð á Vatns­leysu­strönd. Einnig er fyr­ir­tækið með land­eldi á laxi á Núpsmýri við Kópasker og seiða­stöð á Núpum í Ölfusi.

Samherji fisk­eldi hefur einkum lagt áherslu á land­eldi í sínum rekstri og er stærsti fram­leið­andi bleikju í heim­inum með tæp­lega 3.800 tonn árlega. Þá fram­leiðir félagið um 1.500 tonn af laxi.

Álver sem aldrei varð

Eign­irnar sem Samherji fisk­eldi hefur vilja til að kaupa af Norð­ur­áli voru ætl­aðar undir álver sem svo aldrei varð að veru­leika. Skóflustunga að álvers­bygg­ing­unni var tekin í júní árið 2008 og bygg­ing kerskála hófst síðar sama ár, en þá átti þó enn eftir að tryggja álver­inu orku. Gang­setja átti álverið árið 2010 en síðan varð efna­hags­hrun og eftir það voru for­sendur fyrir upp­bygg­ing­unni breyttar.

Í lok sept­em­ber greindu Vík­ur­fréttir frá því að Norðurál vildi selja álvers­bygg­ing­arnar og hefði óskað eftir því við Reykja­nesbæ og Suð­ur­nesjabæ að breyt­ingar yrðu gerðar á samn­ingum sem gerðir voru við sveit­ar­fé­lögin um sínum tíma, í því skyni að rýmka heim­ildir til þess að nota lóð­ina undir aðra starf­semi en álver.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár