„Svona er þetta, sagan eldgamla og endalausa, tvískinnungurinn og hræsnin eru ótrúleg“

Formaður Eflingar skýtur föstum skotum að for­manni Samtaka atvinnu­lífs­ins. „Eyjólfur segðu mér, af hverju ert þú svona miklu meira virði en fólkið sem vinnur vinn­una sem býr til hagn­að­inn?“ spyr hún.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, gerir launa­mál og orð Eyjólfs Árna Rafns­sonar, for­manns Samtaka atvinnu­lífs­ins, að umtals­efni á Facebook-síðu sinni í dag.

Hún segir að hann sé einn þeirra sem nú fara fram með áróður um að ekk­ert sé mik­il­væg­ara en að vinnu­aflið afsali sér kjara­samn­ing­bundnum launa­hækk­unum. „Hann er sár yfir því að ég og aðrir innan hreyf­ingar vinn­andi fólks skulum ekki taka undir það með auð­stétt­inni að auð­vitað sé sjálf­sagt að skerða kjör vinnadi fólks, um leið og kreppan bankar,“ skrifar hún.

„Hann lætur eins og hann viti ekki að fátt er mik­il­væg­ara til að stytta kreppur en að launa­fólk hafi eitt­hvað á milli hand­anna til að nota í sínu nærum­hverfi; eitt­hvað afgangs til að ferð­ast inn­an­lands, kaupa nýja úlpu handa afkvæmum, fara kannski út að borða. Það er ekki hægt að hugsa sér skyn­sam­legri ráð­stöfun en tryggja vinnu­afl­inu hækk­anir; ekki flytjum við aurana okkar í skatta­skjól eða troðum þeim inní banka, nei, við notum þá til að kaupa okkur ís og pulsu.“

Ríkasta fólkið notar öll tækifæri til að taka meira til sín á meðan verka- og láglaunafólk á að fórna eigin hagsmunum

Sólveig Anna segir að á sama tíma og Eyjólfur agíteri mark­visst fyrir því „með hræðslu­á­róðri að fólk afsali sér kjara­samn­ing­bundnum hækk­unum“, sem það þurfti að berj­ast fyrir, sé hann að skammta sjálfum sér launa­hækkun.

Hún bendir á að hann sitji í stjórn Fast­eigna­fé­lags­ins Eik og að sú stjórn hafi ákveðið að leggja það til á aðal­fundi félags­ins sem hald­inn verður þann 10. júni næst­kom­andi að laun stjórn­ar­manna hækki. „Ef að þetta verður sam­þykkt á aðal­fundi mun Eyjólfur hækka í launum fyrir stjórn­ar­for­mennsku úr 650 þús­und krónum í 668 þús­und krónum á mán­uði. Einnig er lagt til hlut­fall árang­urstengdra greiðslna verði hækkað úr 10 pró­sent í 16 pró­sent af heild­ar­launa­kjörum,“ skrifar hún.

„Svona er þetta, sagan eld­gamla og enda­lausa, tví­skinn­ung­ur­inn og hræsnin eru ótrú­leg; rík­asta fólkið notar öll tæki­færi til að taka meira til sín á meðan verka- og lág­launa­fólk á að vera svo illa haldið af sjálf­hatri að það sé ávallt til að fórna eigin hags­munum um leið og eitt­hvað bjátar á.

Mikið væri nú gott og gaman ef ein­hver frétta­mann­eskja spyrði Eyjólf þess­arar spurn­ingar: Eyjólfur segðu mér, af hverju ert þú svona miklu meira virði en fólkið sem vinnur vinn­una sem býr til hagn­að­inn?“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár