Útgerðarfélag Reykjavíkur hagnaðist um 1,5 milljarð í fyrra

Stærsti eig­andi Brim, sem hét áður HB Grandi, bók­færði eign­ar­hlut sinn í félag­inu á rúm­lega 15 pró­sent hærra verði en skráð mark­aðs­verð hlut­ar­ins var á reikn­ings­skila­degi. Eignir Brim voru metnar á um 60 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót.

Guðmundur Kristjánsson er stærsti eigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur sem er stærsti eigandi Brim.
Guð­mundur Krist­jáns­son er stærsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur sem er stærsti eig­andi Brim. Mynd: Brim

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem hét um ára­bil Brim, hagn­að­ist um 11,5 millj­ónir evra, eða um 1,5 millj­arða króna miðað við gengi evru um síð­ustu ára­mót, á árinu 2018. Eignir félags­ins voru metnar á 447,3 millj­ónir evra, eða 59,7 millj­arða króna.

Þar mun­aði mest um eign­ar­hlut­inn í HB Granda, sem nýverið var end­ur­nefnt Brim, sem bók­færður var á um 24,8 millj­arða króna miðað við árs­loka­gengi á evru. Það er rúm­lega 15 pró­sent hærra verð en skráð mark­aðs­verð hlut­ar­ins var á reikn­ings­skila­degi. Í árs­reikn­ingi segir að eign­ar­hlut­ur­inn hafi verið færður sam­kvæmt hlut­deild­ar­að­ferð. „Stjórn­endur hafa fram­kvæmt virð­is­rýrn­un­ar­próf og nið­ur­stöður þess er að ekki er virð­is­rýrnun á eign­ar­hlutnum.“ Á móti kemur að fyr­ir­tækið seldi hlut sinn í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum og Ögurvík á árinu 2018.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur sem skilað var inn til árs­reikn­inga­skráar í lok síð­asta mán­aðar.

Eignarhlutir í dótturfélögum bókfærðir á 280 milljónir

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hét um ára­bil Brim. Nafni félags­ins var breytt þegar það keypti ráð­andi hlut í HB Granda í fyrra. Nafni HB Granda var svo breytt í Brim á hlut­hafa­fundi í ágúst 2019. Guð­mundur Krist­jáns­son, sem er end­an­legur eig­andi að um 75 pró­sent alls hluta­fjár í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur og tók sjálfur við sem for­stjóri HB Granda eftir inn­komu sína þar, hefur ávallt verið kenndur við það nafn og kall­aður Guð­mundur í Brimi.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er risa­stórt fyr­ir­tæki. Rekstr­ar­tekjur þess á árinu 2018 voru, sam­kvæmt nýlega birtum árs­reikn­ingi, um 22,4 millj­arðar króna ef miðað er við gengi evru um síð­ustu ára­mót. Hagnaður af starf­sem­inni var, líkt og áður sagði, um 1,5 millj­arður króna.

Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins var 27,3 millj­arðar króna í árs­lok 2018 jókst á milli ára og skuldir þess grynnk­uðu umtals­vert, eða um 6,5 millj­arða króna. Á árinu 2019 á Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur að greiða um 7,7 millj­arða króna af lang­tíma­skuldum til lána­stofn­ana. Skuld­irnar voru þó enn umtals­verðar í árs­lok, alls um 32,4 millj­arðar króna.

Ljóst er að salan á Ögurvík seint á árinu 2018 hefur létt á stöðu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur.

Virði sölu­fé­lag­anna, sem nýverið voru seld til Brims á 4,4 millj­arða króna, eru ekki til­greind sér­stak­lega í árs­reikn­ingnum. að öðru leyti en að nafn­verð þeirra er gefið upp. Eign­ar­hlutir Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur í öðrum félögum en hlut­deild­ar­fé­lögum, sem eru þá umrædd sölu­fé­lög og önnur sem fyr­ir­tækið átti að öllu leyti, voru bók­færðir á 2,1 millj­ónir evra, eða um 280 millj­ónir króna miðað við gengi evru um síð­ustu ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár