Ólst upp við listamannslíf og laus við kassahugsun

Þórdís Hólm Fil­ips­dóttir er dóttir rit­höf­undar og mynd­list­ar­manns og í upp­eld­inu skiptu orð miklu máli. Skrif eru hluti af líf­inu, sem er eins og mynd­rænt ljóð, þar sem skipt­ast á skin og skúrir. Áhrif seinni heims­styrj­ald­ar­innar mót­uðu fjöl­skyldu­sög­una, hún leit­aði ung út í heim og flutti seinna með ung­barn og ung­lings­dóttur til Afríku. Strax í æsku lærði hún að lifa utan rammans og stundar nú heild­rænar lækn­ingar.

Þórdís Hólm Fil­ips­dóttir er barn lista­manna. Móðir hennar er Vigdís Gríms­dóttir rit­höf­undur og faðir hennar er Filip Woolford, mynd­list­ar­maður og skipa­smiður. Hún á albróður sem er fimm árum eldri. Og hálf­bróður í gegnum föður.

Þórdís var þriggja ára þegar fjöl­skyldan flutti til Dan­merkur þar sem móðir hennar þreif Den Danske Bank á dag­inn og skrif­aði á nótt­unni og faðir hennar var þar í mynd­list­ar­námi. Þau bjuggu í tvö ár í kóngs­ins Køben­havn.

Svo fluttu þau heim og bjuggu í íbúð við Njáls­götu, þar sem þetta við­tal er tekið. Þórdís býr núna á æsku­heim­ili sínu með börn­unum sínum tveimur. Hún var fimm ára og stóð við dyrnar fram á gang þegar móðir hennar til­kynnti henni að pabbi hennar myndi flytja til móður sinnar. 

„Ég hafði ekki tekið eftir neinu en þannig var það. Ég man að mér fannst þetta vera svo­lítið leið­in­legt, en þegar maður er barn …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár