Sigmundur Davíð: „Hvað tekur við?“

Formaður Mið­flokks­ins segir að svo virð­ist sem þrír ráð­herrar í rík­is­stjórn hafi hist á fundi um pásk­ana og sagt: „Eitthvað þurfum við að gera. Þetta er eitt­hvað, gerum það.“ – Og í fram­hald­inu ákveðið að leggja Banka­sýslu rík­is­ins niður.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins gerði skoðun Bjarna Bene­dikts­sonar efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra á Íslands­banka­söl­unni að umtals­efni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Ráð­herr­ann hefði ítrekað lýst yfir ánægju sinni með það hvernig tek­ist hefði til við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

Spurði Sig­mundur Davíð því ráð­herr­ann hvers vegna hann hefði ákveðið að bregð­ast við með því að leggja til að Banka­sýslan yrði lögð af. „Hvers vegna var þá ákveðið að bregð­ast við gagn­rýni á söl­una með því að leggja niður Banka­sýsl­una?“ spurði hann. Hann spurði enn fremur hvort þessi áform hefðu verið rædd í rík­is­stjórn og kynnt í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál.

„Hvað tekur við? Hvað tekur við þegar þessi áform ganga eftir og Banka­sýslan verður lögð niður? Varla getur verið að þeir ráð­herrar sem tóku þessa ákvörðun um þessi áform hafi ekki haft neinar hug­myndir um hvað ætti að taka við. Verður stofnuð ný Banka­sýsla til að við­halda þessum svoköll­uðu arms­lengd­ar­sjón­ar­miðum? Verður verk­efnið fært inn á borð rík­is­stjórn­ar­innar? Hvað tekur við? Við hljótum að æskja svara um það í ljósi þess­arar skyndi­legu en afdrátt­ar­lausu yfir­lýs­ingar frá að minnsta kosti þremur hæst­virtum ráð­herrum,“ sagði hann.

Segist ekki hafa gefið bankann

Bjarni svar­aði og sagð­ist vera ánægður með meg­in­nið­ur­stöðu í söl­unni á hluta­bréf­unum í Íslands­banka þegar horft væri til þess hvað stæði í lög­unum og hvað rík­is­stjórnin sagð­ist ætla að gera.

„Ég held að við höfum bara náð mjög vel öllum meg­in­mark­miðum okkar í að tryggja dreift eign­ar­hald, fá almenn­ing sem hlut­hafa, fjöl­breyttan eig­enda­hóp. Þetta hefur í öllum aðal­at­riðum bara tek­ist mjög vel. Ég held að það væri erfitt að full­yrða að ef ein­hver hefði haft þessa nið­ur­stöðu í hönd­unum, bæði um verðið og um hlut­haf­alist­ann, fyrir ári síðan þegar við vorum að ræða það að fara að skrá bank­ann á markað hefði hann með rökum getað haldið því fram að þetta væri nú alveg ómögu­leg nið­ur­staða.

Við erum að selja banka núna á 50 pró­sent hærra verði en við gerðum fyrir tæpu ári síðan en samt mæta hér ákveðnir þing­menn og halda ræður og taka stöðu í hópi með fólki úti á Aust­ur­velli þar sem hrópað er: Við erum að gefa bank­ann. Auðvitað stenst þetta ekki skoðun. Hvers vegna þá að gera breyt­ingu til fram­tíðar? Ja, ef hátt­virtur þing­maður var að hlusta á þing­menn sem hafa gerst hér miklir lög­spek­ingar og fræða okkur um það hvernig hin eina rétta túlkun á lög­unum um Banka­sýsl­una á að vera, þá held ég að hann hljóti að hafa séð að það eru uppi núna mjög skiptar skoð­anir um það, meðal ann­ars hvernig hlut­verka­skipti eiga að vera milli ráð­herra, rík­is­stjórnar, ráð­herra­nefndar og Banka­sýsl­unnar varð­andi fram­kvæmd á sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum,“ sagði Bjarni.

Benti hann á að Banka­sýsl­unni hefði upp­haf­lega verið komið á lagg­irnar til bráða­birgða til að losa hratt og örugg­lega um eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

„En svo breytt­ust tím­arnir. Það sem við erum fyrst og fremst að segja hér er að við munum leggja til við Alþingi að við förum nýjar leiðir þegar frek­ari skref verða stigin í fram­tíð­inni við það að losa um eign­ar­hald rík­is­ins á Íslands­banka,“ sagði Bjarni.

Spurði sömu spurninga aftur

Sig­mundur Davíð kom aftur í pontu og sagði að ráð­herr­anum hefði ekki unn­ist tími til að svara spurn­ing­unum og því ítrek­aði hann þær. „Því að þetta hljómar eins og þrír hæst­virtir ráð­herrar hafi hist á fundi um pásk­ana og sagt: „Eitthvað þurfum við að gera. Þetta er eitt­hvað, gerum það.““

Hann sagði að ekki lægju fyrir áform um hvað ætti að taka við. „Var þetta kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi? Var þetta rætt í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál?“

Hann spurði aftur: „Liggur eitt­hvað fyrir um hvað eigi að taka við eða voru þetta bara fálm­kennd við­brögð til að bregð­ast við gagn­rýni á söl­una?“

„Við munum áfram tryggja fagmennsku“

Ráð­herr­ann svar­aði í annað sinn og sagði að varð­andi fyr­ir­komu­lag á sölu hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum þá hefðu þau rætt það í rík­is­stjórn – hann hefði rætt það í rík­is­stjórn.

„Ég hef meira að segja lagt til við Alþingi hér á fyrri þingum að gera breyt­ingar á því. Og varð­andi ólíka mögu­leika til þess að losa um eign­ar­hald rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum þá hefur það borið á góma í ráð­herra­nefnd. En alveg eins og við höfum ekki lagt til við Alþingi útfærða til­lögu þá höfum við ekki heldur rætt hana í rík­is­stjórn eða í ráð­herra­nefnd. En málið hefur borið á góma.

Þegar spurt er um nákvæm­lega hvernig við munum gera þetta – það sem við munum gera er að við munum áfram tryggja að ekki verði sendir stjórn­mála­menn inn í stjórnir rík­is­banka eða fyrir hönd rík­is­ins inn í banka þar sem ríkið fer með eign­ar­hald. Við munum áfram tryggja fag­mennsku í því hvernig staðið verður að skipan í stjórnir, alveg eins og Banka­sýslan hefur gert ágæt­lega sam­kvæmt lögum. Síðan munum við hins vegar taka til skoð­unar alla aðra kosti en þá sem fel­ast í leið Banka­sýsl­unnar til að losa um eign­ar­hluti og virða fyrir okkur og koma með til­lögu inn í þingið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár