Juncker hneykslaður á vinsældarbrölti Grikkja - Hrun í Grikklandi

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, segist hneykslaður á framgöngu stjórn­valda í Grikk­landi, með Syriza flokkinn í broddi fylkingar, og sakar þau um vinsældar­brölt og óheiðarleika. Hann segir að fólkið í Grikk­landi eigi skilið að fá að „heyra sann­leikann“ því fjármála­ráðherrar ríkja Evrópu­sambandsins hafi verið opnir fyrir því að halda áfram viðræðum, sem og fulltrúar annarra kröfuhafa Grikk­lands. Þetta kom fram á blaðamanna­fundi sem Juncker hélt fyrr í dag, og breska ríkis­útvarpið BBC segir frá.

Grísk stjórn­völd hafa ákveðið að halda þjóðar­atkvæða­greiðslu um fram­haldið 5. júlí næst­komandi. Nú hafa fjármála­ráðherrar og leiðtogar stærstu ríkja Evrópu­sambandsins, Frakk­lands, Þýska­lands og Ítalíu, sagt að þjóðar­atkvæða­greiðslan muni í reynd snúast um hvort Grikkir vilji vera áfram hluti af evru­svæðinu eða ekki, og taki þá upp drökmuna á nýjan leik, en það var þjóðar­gjaldmiðill Grikk­lands þar til evran var tekin upp árið 2002.

Eins og greint var frá í morgun, þá telur hópur sérfræðinga hjá tíma­ritinu The Economist telur 60 prósent líkur á að grískir kjósendir styðji við ríkjandi stjórn­völd og hafni samningnum. Alls er þó óvíst hvort atkvæða­greiðslan hafi nokkurt gildi þegar uppi er staðið. Hluti af fyrra neyðar­láni Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins til Grikk­lands fellur á gjalddaga á þriðjudag og það er óvíst að gjalddaga verði frestað svo auðveldlega.


Grísk stjórn­völd tilkynntu í gær að bankar í landinu myndu ekki opna í dag og hefur verið ákveðið að þeir verði lokaðir alla vikuna. Einungis verður hægt að taka út 60 evrur á dag úr hrað­bönkum á meðan lokunin stendur yfir, jafnvirði tæplega níu þúsund króna. Efnahags- og bankahrun virðist blasa við Grikkjum, þó óvissa ríki um hvert fram­haldið verður eftir þjóðar­atkvæða­greiðsluna.


Markaðir hafa tekið óvissunni í Grikk­landi illa. Hlutabréf hafa víðast hvar í Evrópu lækkað í verði, en fjár­festar hafa þó ekki tekið skyndiákvarðnir um sölu eða tilfærslu á fjármagni, með tilheyrandi miklum lækkunar­afleiðingum, að því er segir á vef Wall Street Journal.


Mikil óvissa ríkir um lendingu á skulda­vanda Grikkja en samninga­viðræðum við önnur evruríki um frekari neyðarlán var slitið á laugardag. Í kjölfarið tilkynnti Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, að málið, og samnings­tillögur lánardrottna, fari í þjóðar­atkvæði þann 5. júlí næst­komandi.

The dignity of the Greek people in the face of blackmail and injustice will send a message of hope and pride to all of Europe. #Greece

— Alexis Tsipras (@tsipras_eu) June 28, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár