Sjálfstæðisflokkurinn „holdgervingur“ eitraðs kokteils íslensks viðskiptalífs og stjórnmálalífs

Þing­flokks­for­maður Pírata spurði for­sæt­is­ráð­herra á þingi í dag hvaða ábyrgð hún bæri á að hafa komið Sjálf­stæð­is­flokknum til valda og Bjarna Bene­dikts­syni í fjár­mála­ráðu­neytið. Þær ræddu Íslands­banka­söl­una í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma.

Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fjöll­uðu um Íslands­banka­söl­una í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag.

Halldóra ræddi tengsl Bjarna Bene­dikts­sonar efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra inn í íslenskt við­skipta­líf en hún sagði þau væru það víð­tæk og marglaga að hann hlyti að hafa vitað hverja hann myndi finna á til­boðs­list­anum í útboði Banka­sýsl­unnar.

„Það bara hlýtur að vera. Hann hlýtur að hafa vitað að hann myndi finna gamla kunn­ingja, jafn­vel ætt­ingja, á list­anum og að ef hann hefði kannað til­boðin til hlítar hefði kannski komið í ljós að hann væri van­hæfur til að taka ákvörðun um að sam­þykkja eða hafna til­boð­unum. Hans eina und­an­komu­leið var að halda fyrir nefið, kvitta upp á for­síð­una og vona það besta. Ég sé það alla vega fyrir mér þannig,“ sagði hún.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nefni­lega hold­gerv­ingur eitr­aða kok­teils­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var bar­þjónn­inn sem hristi þetta allt saman. Vinstri græn voru einu sinni sam­mála þessu, það veit ég. Svo sprakk þetta allt saman framan í okkur og það lítur út fyrir að ballið sé rétt að byrja á ný,“ sagði Halldóra og spurði Katrínu hvaða ábyrgð hún bæri á að hafa komið Sjálf­stæð­is­flokknum til valda og komið Bjarna í fjár­mála­ráðu­neytið.

Telur að Alþingi eigi að hafa meiri aðkomu

Katrín sagði að hér hefði verið um að ræða ákvörðun sem var tekin og að ákveðin lög væru um það hvernig skuli taka þá ákvörðun.

„Það er ákveðin stofnun sem var sett á lagg­irnar með lögum sem ber að gera til­lögur til ráð­herra og gerir slíka til­lögu um þetta ferli. Ætlunin með lög­unum er að tryggja ákveðna fjar­lægð milli hins póli­tíska valds og síðan þess fram­kvæmd­ar­að­ila sem fer með söl­una. Það var hugs­unin á bak við það. Sömu­leiðis var ákveðið á sínum tíma að ein­stakar sölur ein­stakra hluta skyldu ekki bornar undir Alþingi nema með þeim hætti að óska skyldi umsagnar frá nefndum þings­ins.

Ég ætla að leyfa mér að segja það að ég hef efa­semdir um að það hafi reynst væn­leg leið. Ég tel að Alþingi eigi að hafa meiri aðkomu að þessu máli. Ég held að þegar við horfum á reynsl­una og drögum af henni lær­dóm þá sé það ekki óeðli­leg hug­mynd, eins og ég hef viðrað, að Alþingi sam­þykki til að mynda þegar ákveðið er að selja ein­staka hluta og kafi þá ofan í málin. Ég vil hins vegar minna á það að ætl­unin með lög­unum var að hafa þessa fjar­lægð milli hins póli­tíska valds og fram­kvæmd­ar­að­il­ans. Það var ætl­unin og þá verður kakan ekki bæði geymd og borðuð í þessum efnum,“ sagði hún.

Forsætisráðherra réttlæti málið með „einhverju bulli“

Halldóra hóf fyr­ir­spurn sína á að segja að fyrir 14 árum hefði efna­hags­hrun orðið hér á landi. „Efna­hags­hrun sem var afleið­ing eitr­aðs kok­teils íslensks við­skipta­lífs og stjórn­mála­lífs, kok­teils sem við héldum að við hefðum sagt skilið við fyrir fullt og allt. Í kjöl­far hruns­ins, þar sem ríkið eign­að­ist skyndi­lega alla bank­ana, settum við lög um sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum en til­gang­ur­inn var að setja fast­mót­aðan ramma utan um það hvernig sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins skyldi háttað. Lögin kveða á um skýra laga­lega og póli­tíska ábyrgð ráð­herra á sölu­ferl­inu, að fjár­mála­ráð­herra sé skylt að skoða og sam­þykkja öll til­boð í eign­ar­hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum,“ sagði hún.

Benti Halldóra á að þetta ákvæði hefði ekki verið þarna að ástæðu­lausu og að for­sæt­is­ráð­herra viti það, enda hefði hún setið í þeirri rík­is­stjórn sem samdi og sam­þykkti þessi lög árið 2012.

„Það er ekki hægt að skýla sér á bak við það að túlk­unin sé ein­hvern veg­inn öðru­vísi en aug­ljós andi lag­anna var. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að ráð­herra beri ekki að kanna öll til­boðin í almennu útboði. Það stendur þar. Það á ekk­ert að gera það. En þetta á ekki við um lokuð útboð. Þar ber ráð­herra að fara yfir og meta til­boðin.“

Hún sagð­ist ekki skilja að for­sæt­is­ráð­herra væri „í alvör­unni að taka þann pól í hæð­ina að fara að rétt­læta þetta með, ég veit ekki hverju, ein­hverju bulli“.

„Ákvæðinu er ætlað að koma í veg fyrir að fjár­mála­ráð­herra geti selt pabba sínum banka. Það er nákvæm­lega ástæðan fyrir þessu ákvæði, til að koma í veg fyrir það en það tókst ekki. Í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu þann 8. apríl segir að upp­lýs­ingar um til­boð eða til­boðs­gjafa hafi aldrei verið bornar undir fjár­mála­ráð­herra sem þýðir að hann hafi ekki skoðað til­boðin sem honum bar laga­leg skylda til að skoða. Þetta eru rétt rúm­lega tvö hund­ruð til­boð. Við erum ekki að tala um mörg þús­und eins og verið er að reyna að rugla umræð­una með,“ sagði hún og spurði hvort henni fynd­ist þetta í lagi.

„Og eru það í alvör­unni við­brögð hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra að skýla sér á bak við það að það hafi ekki verið andi lag­anna að fjár­mála­ráð­herra tæki ábyrgð og myndi und­ir­rita til­boðin og skoða þau áður en hann gerði það?“

„Þetta er til skoðunar og rannsóknar“

Katrín svar­aði og sagði að hún gæti vitnað til þeirra gagna sem hún hefði undir höndum og lægju fyrir varð­andi þetta mál.

„Eftir að grein­ar­gerð um sölu­með­ferð liggur fyrir skal ráð­herra fela Banka­sýslu rík­is­ins að ann­ast um fram­kvæmd söl­unnar með þeim hætti sem grein­ar­gerðin um sölu­með­ferð­ina kveður á um. Banka­sýslan er því fram­kvæmd­ar­að­ili söl­unnar fyrir hönd rík­is­ins. Hún skal und­ir­búa sölu, leita til­boða, meta til­boð, hafa umsjón með samn­inga­við­ræðum við utan­að­kom­andi ráð­gjafa og vænt­an­lega kaup­endur og ann­ast samn­inga­gerð. Ekki er gert ráð fyrir aðkomu ráð­herra eftir að hann hefur falið Banka­sýslu rík­is­ins fram­kvæmd söl­unnar fyrr en kemur að því að sam­þykkja sölu og und­ir­ritun samn­inga. Þá skilar Banka­sýsla rík­is­ins þessu rök­studda mati.

Það er svo að ábyrgð og verka­skipt­ing milli ráð­herra og Banka­sýslu rík­is­ins sam­kvæmt lög­unum er með þeim hætti að ekki er ætl­ast til þess að ráð­herra hafi afskipti af sölu­með­ferð­inni eftir að hann hefur falið Banka­sýslu rík­is­ins sölu eign­ar­hlut­ar­ins. Það má því segja að þarna sé kveðið á um mjög skýra verka­skipt­ingu milli ráð­herra á hverjum tíma og Banka­sýsl­unnar. Síðan getum við haft skoðun á því hvort ferlið hafi upp­fyllt þau sjón­ar­mið sem lögð eru til grund­vallar í grein­ar­gerð. Þá er ég til að mynda að vitnað til þess þegar kemur að skil­grein­ingu á hæfum fjár­festum og öðru slíku. Þetta er til skoð­unar og rann­sóknar,“ sagði Katrín.

Ráð­herr­ann sagði – af því að þing­mað­ur­inn spurði hvort henni fynd­ist þetta í lagi – að henni fynd­ist mjög mik­il­vægt að þessi mál væru einmitt öll uppi á borðum og að þau skoð­uðu málin til hlítar – að þetta væri rann­sakað til hlítar.

„Þess vegna eru tveir aðilar, Rík­is­end­ur­skoðun og Seðla­bank­inn, að taka þetta mál til skoð­unar, af því að við viljum öll að þetta sé í lagi. En það að fella dóm um þetta út frá lög­unum, það mun ég ekki gera fyrr en þessar nið­ur­stöður liggja fyrir,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár