Sigríður: Ríður mjög á að Vesturlönd klári bólusetningar

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins varar við umræðu um það hvort sið­ferð­is­lega rétt­læt­an­legt sé að land eins og Ísland klári sínar bólu­setn­ingar á undan öðrum.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir það ánægju­legt að heil­brigð­is­stjórn­völd hafi und­ir­ritað samn­ing um kaup á bólu­efni lyfja­fram­leið­and­ans CureVac gegn COVID-19 sem dugir fyrir um 90.000 ein­stak­linga. Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins að vonir standi til að afhend­ing bólu­efn­is­ins geti haf­ist á öðrum fjórð­ungi þessa árs, að und­an­gengnu mati Lyfja­stofn­unar Evrópu og útgáfu mark­aðs­leyfis en bólu­efnið er nú í fasa III í próf­unum.

„Það sem mér fannst sér­stak­lega ánægju­legt í þeirri frétt var að samið var um kaup á bólu­efni fyrir 90.000 manns. Hví er það sem ég nefni þessa tölu, sem mér finnst vera svo­lítil lyk­iltala í öllum þessum málum? Ég kom inn á það í umræðu hér við hæst­virtan heil­brigð­is­ráð­herra síð­ast í des­em­ber – eða hvort það var núna í jan­úar – þegar ég spurði hæst­virtan heil­brigð­is­ráð­herra af hverju ekki hefði verið samið við alla bólu­efna­fram­leið­endur um nákvæm­lega að kaupa að minnsta kosti skammta fyrir 90.000 manns, vegna þess að það er sá fjöldi manna hér á Íslandi sem mér sýn­ist af lista og flokkun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og heil­brigð­is­yf­ir­valda vera sá fjöldi lands­manna sem við myndum telja að væri brýnt að fengi bólu­efni,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Varar við umræðu um siðferðislegar spurningar

Telur Sigríður að mikið ríði á að að tryggja bólu­efni fyrir þennan flokk svo hægt verði að koma öllu aftur í gang hér á landi; efna­hags­lífi og eðli­legu lífi.

Í þessu sam­bandi vildi hún jafn­framt nefna, „af því að ég heyri að sú umræða er að koma upp hvort það geti verið sið­ferð­is­lega rétt­læt­an­legt að land eins og Ísland klári sínar bólu­setn­ingar á undan öðrum, eða Evr­ópu­löndin eða hin vest­rænu ríki, að ég vara við þeirri umræðu vegna þess að það ríður mjög á, einkum og sér í lagi fyrir þró­un­ar­ríkin, að Vest­ur­lönd klári bólu­setn­ingar og komi efna­hags­líf­inu á fullt skrið, vegna þess að afleið­ingar þess­ara lok­ana á Vest­ur­löndum eru orðnar geig­væn­legar einmitt í þró­un­ar­lönd­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár