365 á 725 milljónir króna í skattainneign

Skatta­inn­eign 365 fór úr 31 milljón árið 2013 í 725 millj­ónir í fyrra. Fyr­ir­tækið tap­aði 1,6 millj­arði fyrir skatta á árinu 2014 en á eftir að færa 372 millj­óna skatta­skuld í bækur sínar.

Velta 365 dróst saman á árinu 2014 um tæp­lega 400 millj­ónir króna, skuldir fyr­ir­tæk­is­ins juk­ust um tæpan millj­arð króna og sam­tals tap­aði það 1,4 millj­arði króna þrátt fyrir að 445 millj­ónir króna hafi verið greiddir inn í nýtt hlutafé. Tapið hefði reyndar orðið hærra ef ekki hefði verið fyrir upp­safnað skatta­legt tap því tap 365 fyrir tekju­skatt nam rúm­lega 1,6 millj­arði króna. Það er svipuð upp­hæð og 365 hagn­að­ist sam­tals um síð­ustu fjögur árin á undan.

Þá á enn eftir að færa end­ur­á­lagn­ingu skatta upp á 372 millj­ónir króna í rekstr­ar­reikn­ing 365, en sú end­ur­á­lagn­ing var stað­fest af yfir­skatta­nefnd í júlí síð­ast­liðnum.

Sam­ein­ing 365 og IP-fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Tals, hefur þó skilað fyr­ir­tæk­inu miklu skatta­hag­ræði. Skatta­inn­eign þess fór úr 31 milljón króna árið 2013 í 725 millj­ónir króna í lok síð­asta árs og yfir­fær­an­legt skatta­legt tap óx úr 2,3 millj­örðum króna í 4,3 millj­arða króna. Ástæðan er að mestu sú að Tal tap­aði iðu­lega miklu fé og safn­aði því upp nýt­an­legu skatta­legu tapi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í árs­reikn­ingi 365 vegna árs­ins 2014.

Samt sem áður er 365 að und­ir­búa sig undir skrán­ingu í Kauphöll Íslands. Miðað við veltu yrði 365 minnsta skráða rekstr­ar­fyr­ir­tækið á mark­aði ef þau áform ganga eftir. Helstu eig­endur 365 eru félög í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttir (77,8 pró­sent) og Auður 1 fag­fjár­festa­sjóður (18,6 pró­sent). Þá á Ari Edwald, fyrrum for­stjóri 365 og núver­andi for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar, 2,4 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu.

365 selur netteng­ingar,síma­á­skriftir og er auk þess stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Á meðal miðla sem 365 á er Stöð 2, Vísir.is, Bylgjan og Frétta­blaðið.

Nýtti sér skattalegt tap upp á 279 milljónir

Sala 365 dróst saman á síð­asta ári, fór úr um 10,5 millj­örðum króna í um 10,1 millj­arð króna, þrátt fyrir að fyr­ir­tækið hafi sam­ein­ast fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Tali um mitt árið og fjölgað þar með við­skipta­vinum sínum í far­síma- og netteng­inga­þjón­ustu umtals­vert. Póst­þjón­ustan, sem sér m.a. um að dreifa Frétta­blað­inu, var hins vegar ekki með inni í sölu­tölum fyrir árið 2014 þar sem fyr­ir­tækið var selt til nýrra eig­enda á því ári.

Á sama tíma jókst kostn­að­ar­verð seldrar þjón­ustu. Sam­an­lagt orsak­aði þetta að fram­legð 365 dróst saman úr 3,7 millj­örðum króna í 2,8 millj­arða króna. Inni­falið í þeim tölum eru fyr­ir­fram­inn­heimtar tekjur í árs­lok 2014. Þær eru vegna fyr­ir­fram­greiddra kredit­korta, fyr­ir­fram­inn­heimtra aug­lýs­inga og fyr­ir­fram­greiddra áskrifta­tekna, sam­tals að fjár­hæð 561 millj­ónir króna.

365 er afar skuld­sett félag. Á árinu 2014 greiddi það sam­tals 705 millj­ónir króna í fjár­magns­gjöld og þar af fóru 568 millj­ónir króna í vexti. Samtals hækk­uðu vaxta­ber­andi skuldir 365 úr 2,7 millj­örðum króna í 3,6 millj­arða króna og heild­ar­skuldir fóru úr 7,9 millj­örðum króna í 8,9 millj­arða króna. Í frétta­til­kynn­ingu sem 365 sendi frá sér í síð­ustu viku kom fram að fyr­ir­tækið hafi nýlega ákveðið að „fara í útboð með öll banka­við­skipti sín og þar með und­ir­búa félagið betur fyrir mögu­lega skrán­ingu félags­ins í Kauphöll Íslands. Í kjöl­farið valdi félagið að ganga til samn­inga við Arion banka. Fjár­magns­kostn­aður félags­ins minnkar veru­lega frá árinu 2014“.

Apogee, félag í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, greiddi inn 445 millj­ónir króna í nýtt hlutafé inn í 365 á síð­asta ári. Þrátt fyrir þá inn­spýt­ingu tap­aði fyr­ir­tækið rúm­lega 1,6 millj­örðum króna fyrir skatta, sem er svipuð upp­hæð og sam­an­lagður bók­færður hagn­aður þess á árunum 2009 til 2012 var. Þar af var rekstr­ar­tap tæpur einn millj­arður króna. 

365 nýtti sér hins vegar 279 millj­ónir króna í skatta­legt tap og það lækk­aði heild­ar­tap fyr­ir­tæk­is­ins niður í um 1,4 millj­arða króna.

Á síð­asta ári greiddi 365 248 millj­ónir króna til stjórnar og æðstu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Þá greiddi fyr­ir­tækið 86 millj­ónir króna vegna „launa, verk­taka­greiðslna, ráð­gjafa­launa og leigu til tveggja hlut­hafa og tengdra aðila“. Greiðslur til þess­arra tveggja hlut­hafa vegna launa, verk­töku og ráð­gjafar numu því um 7,2 millj­ónum króna á mán­uði.

Niðurfærsla á dagskrárbirgðum 682 milljónir

Í til­kynn­ingu sem 365 sendi var út á föstu­dag sagði að stór hluti taps­ins, alls um 1,1 millj­arður króna, væri vegna end­ur­skipu­lagn­ing­ar­kostn­aðar. Í árs­reikn­ingum segir að þorri þeirrar upp­hæðar sé vegna nið­ur­færslu á dag­skrár­birgðum, sam­tals 682 millj­ónir króna. Nið­ur­færslan sé fram­kvæmd vegna breyt­inga á með­höndlun birgða dag­skrár­efnis. Þær eru nú flokk­aðar sem „skamm­tíma­eign eða lang­tíma­eign eftir því hvenær heim­ilt er að sýna dag­skrár­efnið, fram­selja eða leigja á VOD leigu. Þar sem samn­ingar við birgja inni­fela ekki tak­mörkun á hvenær efni er sýnt þá flokk­ast nú allar dag­skrár­birgðir sem skamm­tíma­birgðir“.

Óefn­is­legar eignir juk­ust samt sem áður um 352 millj­ónir króna í fyrra og námu 6,6 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Alls eru 58 pró­sent af öllum eignum 365 óefn­is­legar, en þær eru að mestu við­skipta­vild.

Eigið fé 365 um síð­ustu ára­mót var um 2,5 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót, að með­töldu hlutafé upp á 2,2 millj­arða króna. Allar eignir félags­ins eru veð­settar sem trygg­ing fyrir end­ur­greiðslu lána og hömlur eru á við­bót­ar­lán­tökur og fjár­fest­ingar. Lána­samn­ingar fela einnig í sér ákveðin fjár­hags­skil­yrði.

Í árs­reikn­ingnum stendur að stjórn­endur 365 telji fyr­ir­tækið „rekstr­ar­hæft í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð þrátt fyrir lágt veltu­fjár­hlut­fall og hafa lagt fram áætl­anir um það“.

Viðsnúningur á árinu 2015

Í til­kynn­ing­unni kom einnig fram að við­snún­ingur hafði orðið í rekstri á fyrri hluta árs­ins 2015. Þá hafi fyr­ir­tækið hagn­ast um 106 millj­ónir króna. Sala hefði auk­ist um 24 pró­sent á þeim tíma og numið 5,6 millj­örðum króna, sem er um 20 pró­sent meira en árið á undan.

Ekki var til­greint hvaðan þær tekjur koma en í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar, sem birt var í síð­ustu viku, kom fram að þeim sem voru með netteng­ingu hjá 365 fækk­aði á fyrri hluta árs­ins 2015 um tæp­lega eitt þús­und. Við­skipta­vinum í far­síma­þjón­ustu fjölg­aði á móti um rúm­lega eitt þús­und frá miðju ári 2014 en fyr­ir­tækið er með 3,7 pró­sent hlut­deild á þeim mark­aði. Í árs­reikn­ingi 365 er ekki til­greint hversu margir áskrif­endur eru að áskrifta­stöðvum 365, en á meðal þeirra eru Stöð 2 og íþrótta­stöðvar hennar.

Lestur Frétta­blaðs­ins, víð­lesn­asta dag­blaðs lands­ins, hefur dreg­ist mikið saman á und­an­förnum árum. Það sem af er árinu 2015 hefur les­endum þeirra fækkað úr því að vera 53,2 pró­sent lands­manna í 50,01 pró­sent.

Þurfa að greiða 372 milljónir í vangreidda skatta

Til við­bótar við ofan­greint þarf 365 að greiða 372 millj­ónir króna vegna end­ur­á­lagn­ingar skatta.

End­ur­á­lagn­ing­una má rekja aftur til nóv­em­ber 2008 þegar félag sem hét Rauðsól, og var þá í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar (eig­in­manns Ingi­bjargar Pálma­dóttur), keypti alla fjöl­miðla 365 af 365 ehf. á 1,5 millj­arð króna og með yfir­töku á hluta af skuldum félags­ins. Gamla 365 ehf., sem var end­ur­nefnt Íslensk afþrey­ing ehf., fór í þrot og kröfu­hafar þess töp­uðu 3,7 millj­örðum króna.

Þann 3. apríl 2014 sendi rík­is­skatt­stjóri boð­un­ar­bréf til 365 þar sem fram kom að fyr­ir­tæk­inu hefði ekki verið heim­ilt að nýta sér skatta­legt tap sem mynd­að­ist hjá félag­inu Rauðsól ehf. áður en það sam­ein­að­ist 365, og draga það frá skatt­greiðslum, líkt og fyr­ir­tækið hafði þá gert árum saman.

End­ur­á­lagn­ingin byggir á túlkun skatta­yf­ir­valda á því hvað megi gera þegar svo­kall­aðir öfugir sam­runar eiga sér stað. Þá kaupir félag, í þessu til­felli Rauðsól ehf., rekstr­ar­fé­lag með skuld­setri yfir­töku, og sam­einar síðan félögin tvö. Rek­star­fé­lagið er þá farið að greiða skuld­irnar sem stofnað var til þegar það var keypt. Þetta kall­ast öfugur sam­runi.

Mörg fyr­ir­tæki á Íslandi hafa litið svo á að við slíka sam­ein­ingu séu vaxta­gjöld af lán­unum sem tekin voru vegna svona sam­runa séu frá­drátt­ar­bær frá skatti. Skatta­yf­ir­völd hafa verið þessu ósam­mála og Hæsti­réttur hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í Toyota-mál­inu svo­kall­aða að skiln­ingur þeirra sé réttur. Í því máli reyndi Toyota á Íslandi að fá end­ur­á­lagn­ingu skatta­yf­ir­valda hnekkt fyrir dómi, en Hæsti­réttur sýkn­aði íslenska ríkið.

Skúli Eggert Þórðason, rík­is­skatt­stjóri, hefur sagt í fjöl­miðlum að hann líti á dóm­inn sem for­dæm­is­gef­andi og að hann gæti haft áhrif á mörg íslensk fyr­ir­tæki sem hefðu farið í gegnum öfugan sam­runa. Húsa­smiðjan hefur til að mynda þegar greitt um 700 millj­ónir króna vegna þessa, búið er að end­ur­á­leggja millj­arða króna á Icelandair Group, Ölgerð­ina og Símann. Síminn tap­aði máli gegn íslenska rík­inu vegna þessa fyrir hér­aðs­dómi í lok októ­ber.

Skattaskuldin ekki gjaldfærð

365 hefur nýtt sér skatta­legt tap sem mynd­að­ist hjá Rauðsól ehf., sem í dag heitir 365 miðlar ehf., og dregið vaxta­gjöld af lánum sem notuð voru til að kaupa fjöl­miðla 365 í nóv­em­ber 2008 frá skatt­greiðslum. Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins vegna árs­ins 2013 stóð að ef málið myndi tap­ast gæti það „haft veru­leg áhrif á eig­in­fjár- og lang­tíma­stöðu félags­ins“.

365 hefur ekki sætt sig við end­ur­á­lagn­ing­una og kærði ákvörðun hennar til yfir­skatta­nefndar. Þann 9. júlí 2015, á síð­ari hluta þess árs, komst hún að þeirri nið­ur­stöðu að end­ur­á­lagn­ingin væri rétt­mæt og að 365 skuld­aði 372 millj­ónir króna í skatta.

Þessa upp­hæð hefur 365 ekki gjald­fært í rekstr­ar­reikn­ingi, þar sem fyr­ir­tækið telur nið­ur­stöðu yfir­skatta­nefndar vera ranga og ætlar með málið fyrir dóm­stóla. Í árs­reikn­ingi þess segir samt sem áður að 365 hafi „samið við inn­heimtu­mann rík­is­sjóðs um dreif­ingu við­bót­ar­skatt­lagn­ing­ar­innar og vinnur að sam­komu­lagi um fjár­mögnun hjá fjár­mála­stofn­unum vegna fram­an­greindra við­bót­ar­greiðslna".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár