„Tveggja milljarða kapallinn“ snúist um að fjárfesta í Framsókn

Þing­maður Við­reisnar bar saman kostnað við fjölgun ráðu­neyta við kostnað þess að reisa nýjan íþrótta­leik­vang á þingi í gær. Hún sagði m.a. að „tveggja millj­arða kap­all­inn“ sner­ist ekki um að fjár­festa í fólki heldur að fjár­festa í Framsókn.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar fjall­aði um fjölgun ráðu­neyta undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær en nýju ráðu­neytin tóku þá til starfa og eru þau nú tólf tals­ins.

„Kap­all­inn og tvö ný ráðu­neyti hafa í för með sér rask, miklar til­fær­ingar starfs­manna og tafir og þetta kostar,“ sagði hún og vitn­aði í Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þegar hann sagði að ljóst væri að með því að stofna nýtt ráðu­neyti, fleiri en eitt, þá myndi verða kostn­aður – og hann gæti hlaupið á hund­ruðum millj­óna króna.

Benti hún jafn­framt á að sam­kvæmt svari frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu lægi sá kostn­aður nú fyrir en hann verður að lág­marki 1,8 millj­arðar. „Ekki nokkur hund­ruð millj­ónir heldur um tveir millj­arðar og sá kostn­aður getur sam­kvæmt svar­inu orðið enn hærri. Tveggja millj­arða kap­all­inn snýst, eins og við vitum öll hér inni, ekki um að fjár­festa í fólki og byggir ekki á grein­ingum á þörf eða fjár­fest­ingum í innviðum. Hann snýst um að fjár­festa í Framsókn,“ sagði hún.

Sennilega heimsmeistarar í fjölda ráðuneyta

Þorbjörg setti töl­urnar í sam­hengi. „Ég ætla að setja þær hallir sem stjórnin er að reisa sjálfri sér í sam­hengi við þá höll sem nú hefur verið talað dálítið um í sam­hengi við góðan árangur Íslands í hand­bolta. Ekkert íþrótta­hús á Íslandi upp­fyllir í dag þau skil­yrði sem gerð eru í alþjóða­keppnum. Hand­bolt­inn og körfu­bolt­inn hafa verið á und­an­þágu og standa jafn­vel frammi fyrir því að lands­leikir verði spil­aðir á erlendri grundu. Í skýrslu starfs­hóps um þjóð­ar­leik­vang fyrir inn­íþróttir, sem er frá sept­em­ber 2020, er kostn­að­ar­grein­ing þar sem fram kemur að höll fyrir 5.000 áheyr­endur myndi kosta um 6,3 millj­arða, höll fyrir 8.600 áheyr­endur um 7 millj­arða.

Eftir glæsi­legan árangur strák­anna í hand­bolt­anum er draum­ur­inn um að kom­ast enn lengra á stór­móti í aug­sýn. Ný höll ætti að vera það líka en er það ekki. Þangað til verðum við kannski að láta okkur nægja að senni­lega erum við heims­meist­arar í fjölda ráðu­neyta,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár