Þarf að setja upplýsingasöfnun miklu skýrari skorður

Fjallað er um ýmsar hliðar fjórðu iðnbylt­ing­ar­innar í nýrri skýrslu.

Stórar siðferðislegar spurningar fylgja þeirri þróun sem nú á sér stað með og það þarf að setja umfangs­mikilli upplýsinga­söfnun mun skýrari skorður.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegri skýrslu um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna, en þar er fjallað um þær áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir vegna tækni­framfara og innleiðingar á gervi­greind í hin ýmsu störf.

Í skýrslunni er meðal anars fjallað um ýmis siðferðileg álitamál, og er meðal annars vikið að því hvernig upplýsinga­söfnun um einstaklinga hefur aukist mikið á undan­förnum árum.

„Skýrt dæmi um þetta er hin mikla söfnun persónu­upplýsinga sem á sér stað á veraldar­vefnum og á samfélags­miðlum. Söfnun upplýsinga er ekki ný af nálinni en tækni­þróun síðustu ára hefur aukið umfang hennar gríðar­lega. Þannig áætluðu sérfræðingar hjá IBM að 90% af þeim rafrænum gögnum sem til væru í dag hefðu orðið til á síðustu fimm árum,“ segir í skýrslunni.

Þá er einnig nefnt að misnotkun á persónu­upplýsingum sé líkleg til að stig­magnast á næstu árum, og mikilvægt sé fyrir Ísland að huga að öryggis­málum hvað þetta varðar. „Á næstu árum munu samfélög þurfa að glíma við misnotkun persónu­upplýsinga og hættur vegna þess að öryggi upplýsinga er ekki gætt nægjanlega vel. Og þó að mikilvæg réttarbót felist í nýjum persónu­verndar­lögum þarf að setja upplýsinga­söfnun miklu skýrari skorður,“ segir í skýrslunni.

Er rétt að forrita bílinn þannig?

Fjallað er um ýmsar hliðar tækni­framfara í skýrslunni, og meðal annars komið inn á sjálf­keyrandi bíla og hvernig siðferðislegar spurningar vakni með tilkomu þeirra. „Ef tölva tekur ákvörðun um ríka hagsmuni fólks og ákvörðunin stenst ekki siðferði­lega skoðun hver ber þá ábyrgð á ákvörðuninni? Nátengt þessum vanda er líka hvernig á að forrita tölvur til að taka ákvarðanir um mál þar sem siða­reglur stangast á eða þegar aðstæður eru þannig að allir valkostir í stöðunni geta haft alvarlegar afleiðingar. Segjum til dæmis að sjálf­keyrandi bíll stefni á fimm einstaklinga en hægt sé að forða því tjóni með því að sveigja af leið og þannig verði aðeins einn einstaklingur fyrir bílnum er rétt að forrita hann þannig?“ segir í skýrslunni.

Í starfs­hópnum sem tók skýrsluna saman voru Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður, Lilja Dögg Jóns­dóttir, Guðmundur Jónsson, Ragn­heiður H. Magnúsdóttir og Kristinn R. Þórisson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár