„Þessi kreddupólitík bitnar nú allhressilega á fólkinu í landinu“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vand­aði rík­is­stjórn­inni ekki kveðj­urnar á þingi í vik­unni.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Ætlar ein­hver í hæst­virtri rík­is­stjórn Íslands að taka ábyrgð á stöðu efna­hags­mála í dag? Er hæfnin til staðar? Treystir fólk sér til að við­ur­kenna hag­stjórn­ar­mis­tök?“

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hóf ræðu sínu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni á því að spyrja þess­ara spurn­inga.

Hún sagði að 400 millj­arðar króna væri upp­hæðin sem heim­ilin í land­inu hefðu skuld­sett sig fyrir efna­hags­bat­anum fyrir til­stuðlan þess­arar rík­is­stjórnar sem hefði beðið of lengi með mark­vissar aðgerðir þegar COVID-far­ald­ur­inn skall á.

Ríkisstjórnin þarf að „sjá að sér, losa sig við kreddur og ráðast í neyðaraðgerðir“

Þing­mað­ur­inn sagði enn fremur að rík­is­stjórnin hefði treyst á emb­ætt­is­menn í Seðla­bank­anum til að bjarga mál­unum og stíga inn í með almennar örv­un­ar­að­gerðir á tímum sér­tæks áfalls, aðgerðir sem hefðu þanið eigna­mark­aði og markað fyrir heim­ili fólks.

„Þessi þróun var fyr­ir­séð en nú mæta for­svars­menn hæst­virtrar rík­is­stjórnar í fjöl­miðla og segj­ast van­máttugir gagn­vart verð­bólg­unni, að lítið sé hægt að gera. Takið ábyrgð á ástand­inu. Þetta eru afleið­ingar verka eða öllu heldur verk­leysis hæst­virtra ráð­herra.

Í að verða ára­tug hefur efna­hags­stjórn­inni hér á landi verði stýrt meira og minna af sömu flokk­unum. Þeir hafa brugð­ist fólk­inu í land­inu á hús­næð­is­mark­aði og vand­inn versn­aði all­veru­lega vegna hræðslu þess­ara stjórn­valda við alvöru­að­gerðir í rík­is­fjár­málum í upp­hafi þessa far­ald­urs. Þessi kreddupóli­tík bitnar nú all­hressi­lega á fólk­inu í land­inu. Við blasa vaxta­hækk­anir, enda 6 pró­sent verð­bólga en þetta er verð­bólga rík­is­stjórn­ar­innar. Það er ekki rétt­læt­an­legt að hag­stjórn­ar­mis­tök hennar skapi neyð meðal við­kvæmra hópa,“ sagði hún.

Kristrún end­aði mál sitt á að segja að rík­is­stjórnin þyrfti að sjá að sér, losa sig við kreddur og ráð­ast í neyð­ar­að­gerðir í formi vaxta­bóta, barna­bóta og húsa­leigu­bóta. „Það er fólk þarna úti sem hefur ekki tíma til þess að bíða eftir óljósum lof­orðum um fram­tíð­ar­úr­bætur sem hafa setið á hak­anum í ára­tug.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár