Yfirgnæfandi meirihluti Grikkja hefur hafnað samkomulaginu - 61 prósent segja nei

Nú þegar meira en helmingur atkvæða hefur verið talinn í þjóðar­atkvæða­greiðslunni í Grikk­landi, hafa ríflega 61 prósent grískra kjósenda kosið að hafna samkomu­lagi við kröfuhafa gríska ríkisins um frekari aðhalds­aðgerðir í ríkis­rekstrinum í skiptum fyrir frekari fjárhags­aðstoð. Um 39 prósent vildu hins vegar fallast á samkomu­lagið.

Kjör­staðir í Grikk­landi lokuðu klukkan 16 í dag, en Grikkjum var einungis heimilt að kjósa í því kjördæmi sem þeir höfðu lögheimili í, og voru því margir Grikkir á faralds­fæti í dag og undan­farna daga. Fyrstu útgöngu­spár bentu til þess að svona myndi fara, að Grikkir myndu segja nei við samkomu­laginu, en naumlega þó.

Annað hefur þó komið á daginn, enda hafa helstu stjórnmála­leiðtogar landsins, þeirra á meðal forseti landsins Alexis Tsipras, hvatt landsmenn sína undan­farna daga til að hafna samkomu­laginu. Það virðist hafa borið árangur því yfir­gnæfandi meirihluti Grikkja hefur ákveðið að kjósa nei við samkomu­laginu, en gríðar­legur mann­fjöldi hefur safnast saman í miðborg Aþenu til að fagna úrslitunum.

Samkvæmt BBC eru engin fundahöld á milli leiðtoga helstu ríkja Evrópu fyrir­huguð í kvöld eftir þjóðar­atkvæða­greiðsluna, en Angela Merkel kanslari Þýska­lands og Francoise Holland, forseti Frakk­lands, ætla á hittast til að ræða stöðuna sem uppi er.

Búist er við þvi að Syriza-flokkurinn, sem leiðir ríkis­stjórn Grikk­lands, muni nota afgerandi niður­stöðu þjóðar­atkvæða­greiðslunnar til að styrkja samnings­stöðu sína gagnvart helstu kröfu­höfum landsins, þríeykinu sem samanstendur af Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum, Evrópska Seðla­bankanum og framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár