Reiðubúin að breyta fyrri áætlun og fjalla um jöfnun atkvæða

Á upp­runa­legri áætlun for­sæt­is­ráð­herra vegna stjórn­ar­skrár­vinnu á þessu kjör­tíma­bili var ekki á dag­skrá að fjalla um jöfnun atkvæða en hún seg­ist reiðu­búin að end­ur­skoða hana ef áhugi sé fyrir því á vett­vangi for­manna flokk­anna.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur boðað for­menn stjórn­mála­flokk­anna til fundar næst­kom­andi föstu­dag vegna stjórn­ar­skrár­vinnu sem flokk­arnir hafa sinnt á þessu kjör­tíma­bili en hlé var gert á þeirri vinnu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þetta kom fram í máli Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þor­gerður Katrín benti á að skýrt hefði komið fram í við­horfskönnun Félags­vís­inda­stofn­unar hvert við­horf þjóð­ar­innar væri. „Það er alveg skýrt sam­kvæmt við­horfskönn­un­inni að ein­dreg­inn vilji þjóð­ar­innar er sá að það eigi að end­ur­skoða það rang­læti sem felst í því misvægi atkvæða sem við búum við í dag. Þetta er eitt skýrasta dæmið um almanna­hags­muni á okkar tímum. Og núna þegar við höfum tæki­færi til að fara í þessi mál með allt vega­nestið sem við höfum, þessi skýru skila­boð, þá verðum við að mínu mati að taka á þessu. Þetta er eitt af þeim kjarna­málum sem Viðreisn byggir meðal ann­ars sinn mál­flutn­ing og stefnu sína og hug­sjónir á, að einn maður er ígildi eins atkvæðis,“ sagði hún.

Þor­gerður Katrín spurði Katrínu hvort hún myndi beita sér fyrir því að þetta mál yrði tekið upp.

Ekki á upprunalegu áætluninni

For­sæt­is­ráð­herra svar­aði og sagði að til stæði að ræða mál er varða for­seta­emb­ættið og fram­kvæmda­vald á fund­inum á föstu­dag­inn. Hún sagði að ekki hefði verið á upp­runa­legri áætlun hennar fyrir þetta kjör­tíma­bil að ræða jöfnun atkvæða þar sem hún hefði skipt vinn­unni við heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár niður á tvö kjör­tíma­bil.

„Ég hef hins vegar sagt að sé áhugi fyrir því á vett­vangi for­manna að breyta þeirri áætlun er ég reiðu­búin til þess og meðal ann­ars þess vegna var þetta eitt af þeim atriðum sem við settum inn í ekki bara við­horfa­könn­un­ina sem hæst­virtur þing­maður nefnir heldur einnig í rök­ræðukönn­un­ina sem fór fram í fram­hald­inu,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Hún nefndi að þar hefði nákvæm­lega hið sama komið fram og Þor­gerður Katrín tal­aði um; að mik­ill áhugi væri á því að jafna vægi atkvæða. „Áhrif umræð­unnar á rök­ræðu­fund­inum voru í raun og veru þau að fólk var reiðu­búið að horfa á fleiri leiðir en þær að breyta land­inu í eitt kjör­dæmi, þ.e. það var reiðu­búið að horfa til þess að breyta hugs­an­lega kjör­dæma­skipan til að jafna mætti vægi atkvæða en þessi almenna lína var mjög skýr eins og hv. þing­maður nefnir. Ég hyggst því taka það upp á fund­inum á föstu­dag­inn hvort áhugi sé fyrir því á þeim vett­vangi að taka þetta mál á dag­skrá á þessu kjör­tíma­bili,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár