Stefnir allt í útlánamet hjá lífeyrissjóðunum

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa ein­ungis einu sinni lánað meira á einum mán­uði til sjóðs­fé­laga en þeir gerðu í nóv­em­ber í fyrra. Það var í mán­uð­inum á undan. Verð­tryggð lán sækja aftur á vegna lækk­andi verð­bólgu.

Þrátt fyrir efnahagssamdrátt þá hefur eftirspurn eftir húsnæðislánum lífeyrissjóða ekki dregist saman. Enda þurfa allir skjól frá vetrarlægðunum.
Þrátt fyrir efna­hags­sam­drátt þá hefur eft­ir­spurn eftir hús­næð­is­lánum líf­eyr­is­sjóða ekki dreg­ist saman. Enda þurfa allir skjól frá vetr­ar­lægð­unum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu alls 12,6 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna í ný útlán í nóv­em­ber 2019. Það er það næst mesta sem þeir hafa nokkru sinni lánað í einum mán­uði í sjóðs­fé­laga­lán, sem eru að uppi­stöðu til hús­næð­is­kaupa. Metið var sett í mán­uð­inum á undan, októ­ber 2019, þegar 13,9 millj­arðar króna fóru úr sjóðum líf­eyr­is­sjóða í ný útlán til sjóðs­fé­laga.

Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu líf­eyr­is­sjóða lands­ins, sem birtar voru í gær.

Alls lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 92,4 millj­arða króna í sjóðs­fé­laga­lán á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs. Mest hafa þeir lánað 99,2 millj­arða króna á einu ári, en það gerð­ist árið 2017. Allt bendir til þess að 100 millj­arða króna útlána­m­úr­inn hafi verið rof­inn í fyrra og að það ár verði þar með metár.

Reynt að halda aftur að útlánaaukningu

Það er athygl­is­vert af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess að það hægði veru­lega á hækkun hús­næð­is­verðs í fyrra, en vísi­tala kaup­verðs alls íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 2,2 pró­sent á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2019. Til sam­an­burðar hækk­aði hús­næði­verðið um 13,6 pró­sent á árinu 2017 og 5,8 pró­sent á árinu 2018.

Í öðru lagi þá var umtals­verð verð­bólga í lok árs 2018 og í byrjun árs 2019 og reis hæst í des­em­ber 2018 þegar hún var 3,7 pró­sent. Verð­bólga hefur veru­leg áhrif á lána­kjör fjölda Íslend­inga þar sem flestir þeirra eru með verð­tryggð lán. Þegar leið á árið í fyrra lækk­aði verð­bólgan hins vegar skarpt og í des­em­ber 2019 mæld­ist hún tvö pró­sent, vel undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands.

Í þriðja lagi hafa stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi allir reynt að draga úr eft­ir­spurn eftir sjóðs­fé­laga­lánum hjá sér með því að þrengja lána­skil­yrði og hækka vexti hjá sér.

Lántakendur leita aftur í verðtryggt

Í októ­ber 2019 gerð­ist það í þriðja sinn í sögu íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins að sjóðs­fé­lagar tóku meira að láni óverð­tryggt en verð­tryggt. Í hin tvö skipt­in, í des­em­ber 2018 og í jan­úar 2019, hafði verð­bólga hækkað nokkuð skarpt og var á bil­inu 3,4 til 3,7 pró­sent, eftir að hafa verið að mestu undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans frá því í febr­úar 2014. Í októ­ber var hún hins vegar 2,8 pró­sent og spár gerðu ráð fyrir að verð­bólgan myndi fara við og jafn­vel undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið í nán­ustu fram­tíð. Það gerð­ist síðan, líkt og áður sagði, í des­em­ber þegar skörp lækkun skil­aði verð­bólg­unni niður í tvö pró­sent.

Þessar vænt­ingar skil­uðu því að algjör við­snún­ingur varð í lán­tökum sjóðs­fé­laga líf­eyr­is­sjóð­anna á ný. Alls voru 65 pró­sent nýrra útlána í nóv­em­ber 2019 verð­tryggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár