Búið að skrá 27 hagsmunaverði og birta vefsvæði með upplýsingum um þá

Til­kynn­ingum á hags­muna­verði sem reyna að hafa áhrif á stjórn­mál og stjórn­sýslu í starfi sínu, og áttu sam­kvæmt lögum að ber­ast um ára­mót, hefur rignt inn síð­ustu daga eftir að for­sæt­is­ráðu­neytið sendi ítrekun.

Langflest hagsmunagæslusamtök landsins, sem reyna að hafa áhrif á hvernig löggjöf og aðrar ákvarðanir innan stjórnmála og stjórnsýslu þróast, eru til heimilis í Hús atvinnulífsins við Borgartún 35.
Lang­flest hags­muna­gæslu­sam­tök lands­ins, sem reyna að hafa áhrif á hvernig lög­gjöf og aðrar ákvarð­anir innan stjórn­mála og stjórn­sýslu þró­ast, eru til heim­ilis í Hús atvinnu­lífs­ins við Borg­ar­tún 35. Mynd: Bára Huld Beck

Búið er að birta skrá yfir til­kynnta hags­muna­verði á sér­stöku vef­svæði Stjórn­ar­ráðs Íslands. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var vef­svæðið sett í loftið seint á föstu­dag.

Á vef­svæð­inu má sjá að hags­muna­gæslu­sam­tök hafa tekið veru­lega við sér eftir að svar Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn þing­manns um fjölda skráðra hags­muna­varða var birt á fimmtu­dag. Í því svari kom fram að einn hags­muna­vörður hafði verið til­kynntur á fyrstu tæpu tveimur mán­uðum árs­ins, þrátt fyrir að lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum, sem sam­þykkt voru á Alþingi í fyrra­sumar, hafi tekið gildi um liðin ára­mót. Samkvæmt lög­unum áttu allir hags­muna­verðir, einnig kall­aðir lobbí­istar, sem reyna að hafa áhrif á ákvarð­ana­töku innan stjórn­ar­ráðs­ins og Alþingis með ýmsum hætti að skrá sig sem slíka.

Kjarninn greindi frá því í gær að eina skrán­ingin sem barst í tíma hafi verið frá Hags­muna­sam­tökum heim­il­anna, gras­rót­ar­sam­tök á neyt­enda­sviði sem og að þau hafi skráð þrjá ein­stak­linga.

Tilkynningum rignt inn síðustu daga

Laga­setn­ingin gerði einnig ráð fyrir að skrá yfir til­kynn­ingar um hags­muna­verði yrði birt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Í svari for­sæt­is­ráð­herra sem birt­ist á fimmtu­dag sagði að vinna við gerð þess væri á loka­stigi.

Vef­svæðið var sett í loftið í gær­kvöldi og er nú aðgengi­legt almenn­ingi. Í svari for­sætiráð­herra kom einnig fram að ráðu­neyti hennar hafi sent út ítrekun til stærstu hags­muna­sam­taka lands­ins síð­ast­liðin þriðju­dag þar sem „áréttuð heim­ild þeirra til að senda til­kynn­ingu um þá ein­stak­linga sem sinna hags­muna­gæslu í umboði þeirra.“

[adspot]Sú ítrekun hefur skilað skjótum árangri því á vef­svæð­inu kemur fram að tíu hags­muna­gæslu­sam­tök hafi nú til­kynnt alls 27 hags­muna­verði til skrán­ingar hjá Stjórn­ar­ráð­inu. Þar er um að ræða, auk Hags­muna­sam­taka Heim­il­anna, öll helstu hags­muna­gæslu­sam­tök lands­ins: Samtök atvinnu­lífs­ins (SA), Samorku, Félag atvinnu­rek­enda, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF), Samtök frum­lyfja­fram­leið­enda á Íslandi (Frumtök), Samtök versl­unar og þjón­ustu, Samtök ferða­þjón­ust­unnar og Við­skipta­ráð Íslands. Átta af þeim níu hags­muna­gæslu­sam­tökum sem til­kynnt hafa hags­muna­verði sína á allra síð­ustu dögum eru með starf­stöð í sama húsi, Húsi atvinnu­lífs­ins við Borg­ar­tún 35. Einungis Félag atvinnu­rek­enda eru með skrif­stofur ann­ars staðar.

„Gagn­sæi þarf að ríkja um sam­skipt­in“

Frum­varp um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum innan Stjórn­ar­ráðs­ins, sem for­sæt­is­ráð­herra lagði fram, var sam­þykkt í fyrra­sum­ar. Sam­­kvæmt lög­unum þurftu æðstu stjórn­­endum Stjórn­­­ar­ráðs­ins og aðstoð­­ar­­menn ráð­herra að til­­kynna um eignir sín­­ar, skuldir og ábyrgðir hér­­­lendis og erlend­is, auk sömu upp­­lýs­inga um maka og ólög­ráða börn á fram­­færi þeirra frá og með síð­ustu ára­mót­um, þegar lögin tóku gildi. Sama hópi er skylt að til­­kynna til for­­sæt­is­ráðu­­neyt­is­ins gjafir og önnur hlunn­indi og fríð­indi í tengslum við starfið og ráðu­­neytið ætlar að birta almenn­ingi þessar upp­­lýs­ingar á vef Stjórn­­­ar­ráðs Íslands.

[links]Í lög­­unum er líka að finna reglur um auka­­störf æðstu stjórn­­enda í Stjórn­­­ar­ráð­inu og aðstoð­­ar­­manna ráð­herra þar sem kemur fram að störf þeirra telj­ist full störf og að meg­in­­reglu sé óheim­ilt að sinna auka­­störfum sam­hliða þeim.

Í grein sem Katrín Jak­obs­dóttir skrif­aði og birti á Kjarn­anum í júní 2020 sagði að eitt af meg­in­við­fangs­efnum frum­varps­ins væri að ná utan um sam­­skipti hand­hafa fram­­kvæmd­­ar­­valds við svo­­kall­aða hags­muna­verði. „Hug­takið hags­muna­verðir nær yfir þá sem tala máli einka­að­ila gagn­vart stjórn­­völdum og leit­­ast við að hafa áhrif á störf þeirra í atvinn­u­­skyni. Það ber að taka fram í þessu sam­hengi að almennt er sjálf­­sagt að stjórn­­völd taki til­­lit til þarfa og vænt­inga þeirra ein­stak­l­inga og fyr­ir­tækja sem ákvarð­­anir stjórn­­­valda hafa áhrif á. Það er heldur ekki óeðli­­legt að einka­að­ilar feli hags­muna­vörðum að gæta hags­muna sinna gagn­vart hinu opin­bera, hvorki almennt né í ein­­stökum mál­u­m. Gagn­­sæi þarf hins vegar að ríkja um sam­skiptin[...]Með nýjum reglum verður gagn­­sæi í kringum þessi sam­­skipti aukið til muna. Upp­­lýs­ingar um aðkomu hags­muna­varða og ann­­arra einka­að­ila að samn­ingu stjórn­­­ar­frum­varpa skal til­­­greina í grein­­ar­­gerð með frum­vörp­­um. Það er mik­il­vægt til að alþing­is­­menn og allur almenn­ingur geti hæg­­lega áttað sig á því þegar stjórn­­­ar­frum­varp er samið að til­­lögu utan­­að­kom­andi aðila sem getur átt hags­muna að gæta.“

Reynslan mun leiða í ljós hvort þörf sé fyrir strang­ari reglur

Lögin mæla einnig fyrir um bann við því að æðstu stjórn­­endur í Stjórn­­­ar­ráð­inu og aðstoð­­ar­­menn ráð­herra noti upp­­lýs­ingar sem þeir höfðu aðgang að í starfi sér eða öðrum til óeðli­­legs ávinn­ings.

Æðstu stjórn­­endum verður auk þess óheim­ilt að ger­­ast hags­muna­verðir í sex mán­uði eftir að störfum fyrir Stjórn­­­ar­ráðið lýk­­ur. For­­sæt­is­ráðu­­neytið getur veitt und­an­þágu frá þessu banni ef lítil eða engin hætta er talin á hags­muna­á­­rekstrum vegna nýja starfs­ins.

Í áður­nefndri grein Katrínar sagði hún að ein­hverjir kynnu að ætla að það að setja skýr­­ari reglur um hags­muna­­skrán­ingu og aukið gagn­­sæi um æðstu stjórn­­endur í Stjórn­­­ar­ráð­inu sýni að eitt­hvað tor­­trygg­i­­legt sé í gangi í stjórn­­­sýslu rík­­is­ins. Hún telur þvert á móti að það sýni vilja hand­hafa opin­bers valds til að efla gagn­­sæi. „Ég tel að þessi lög feli í sér jákvætt skref í átt að opn­­ari og vand­aðri stjórn­­­ar­háttum innan Stjórn­­­ar­ráðs­ins. Reynsla af fram­­kvæmd þeirra mun enn fremur varpa ljósi á það hvort ástæða sé til að leiða í lög strang­­ari reglur eða sam­­bæri­­legar reglur um fleiri hópa opin­berra starfs­­manna, svo sem for­­stöð­u­­menn rík­­is­­stofn­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár