Einn hefur skráð sig sem hagsmunavörð

Þrátt fyrir að lög sem kveða á um skrán­ingu hags­muna­varða hafi tekið gildi í byrjun árs hefur ein­ungis einn skráð sig hjá hinu opin­bera. Vinna við sér­stakt vef­svæði, þar sem upp­lýs­ingar um skráða hags­muna­verði verða aðgengi­legar, er á loka­stigi.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þrátt fyrir að lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum innan Stjórn­ar­ráðs Íslands hafi tekið gildi fyrir tveimur mán­uðum, sem á að láta hags­muna­verði, sem kall­ast einnig lobbí­istar, sem beita sér innan Stjórn­ar­ráðs­ins skrá sig, hefur ein­ungis einn slíkur gert það. For­sæt­is­ráðu­neytið sendi ítrekun til stærstu hags­muna­sam­taka lands­ins síð­ast­liðin þriðju­dag þar sem „áréttuð heim­ild þeirra til að senda til­kynn­ingu um þá ein­stak­linga sem sinna hags­muna­gæslu í umboði þeirra.“

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata, um málið.

Laga­setn­ingin gerði einnig ráð fyrir að skrá yfir til­kynn­ingar um hags­muna­verði yrði birt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Það hefur ekki gerst og sam­kvæmt svari for­sæt­is­ráð­herra stendur vinna við gerð sér­staks vef­svæðis yfir. „Vinnan er á loka­stigi en ráð­gert er að vef­svæðið verði aðgengi­legt almenn­ingi í lok febr­ú­ar­mán­aðar.“

[adspot]Ákvæði lag­anna skylda stjórn­völd til að skrá upp­lýs­ingar um sam­skipti sín við hags­muna­verði í sam­ræmi við ákvæði upp­lýs­inga­laga, laga um opin­ber skjala­söfn og laga um Stjórn­ar­ráð Íslands. Sú skylda nær þó ein­ungis til að skrá upp­lýs­ingar í mála­skrá, en felur ekki í sér að til­kynna þurfi for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um sam­skiptin. Það getur því ekki svarað því hversu oft stjórn­völd lands­ins hafa átt sam­skipti við hags­muna­verði frá 1. jan­úar 2021. Katrín sjálf hefur hins vegar átt fimm fundi á þessu tíma­bili með full­trúum hags­muna­sam­taka sem ætla má að verði skráðir hags­muna­verðir.

„Gagnsæi þarf að ríkja um samskiptin“

Frumvarp um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum innan Stjórn­ar­ráðs­ins, sem for­sæt­is­ráð­herra lagði fram, var sam­þykkt í fyrra­sumar. Sam­kvæmt lög­unum þurftu æðstu stjórn­endum Stjórn­ar­ráðs­ins og aðstoð­ar­menn ráð­herra að til­kynna um eignir sín­ar, skuldir og ábyrgðir hér­lendis og erlend­is, auk sömu upp­lýs­inga um maka og ólög­ráða börn á fram­færi þeirra frá og með síð­ustu ára­mótum, þegar lögin tóku gildi. Sama hópi er skylt að til­kynna til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins gjafir og önnur hlunn­indi og fríð­indi í tengslum við starfið og ráðu­neytið ætlar að birta almenn­ingi þessar upp­lýs­ingar á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands.

Í lög­unum er líka að finna reglur um auka­störf æðstu stjórn­enda í Stjórn­ar­ráð­inu og aðstoð­ar­manna ráð­herra þar sem kemur fram að störf þeirra telj­ist full störf og að meg­in­reglu sé óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða þeim.

Í grein sem Katrín Jak­obs­dóttir skrif­aði og birti á Kjarn­anum í júní 2020 sagði að eitt af meg­in­við­fangs­efnum frum­varps­ins væri að ná utan um sam­skipti hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds við svo­kall­aða hags­muna­verði. „Hug­takið hags­muna­verðir nær yfir þá sem tala máli einka­að­ila gagn­vart stjórn­völdum og leit­ast við að hafa áhrif á störf þeirra í atvinnu­skyni. Það ber að taka fram í þessu sam­hengi að almennt er sjálf­sagt að stjórn­völd taki til­lit til þarfa og vænt­inga þeirra ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sem ákvarð­anir stjórn­valda hafa áhrif á. Það er heldur ekki óeðli­legt að einka­að­ilar feli hags­muna­vörðum að gæta hags­muna sinna gagn­vart hinu opin­bera, hvorki almennt né í ein­stökum mál­u­m. Gagn­sæi þarf hins vegar að ríkja um sam­skiptin[...]Með nýjum reglum verður gagn­sæi í kringum þessi sam­skipti aukið til muna. Upp­lýs­ingar um aðkomu hags­muna­varða og ann­arra einka­að­ila að samn­ingu stjórn­ar­frum­varpa skal til­greina í grein­ar­gerð með frum­vörp­um. Það er mik­il­vægt til að alþing­is­menn og allur almenn­ingur geti hæg­lega áttað sig á því þegar stjórn­ar­frum­varp er samið að til­lögu utan­að­kom­andi aðila sem getur átt hags­muna að gæta.“

Reynslan mun leiða í ljós hvort þörf sé fyrir strangari reglur

Lögin mæla einnig fyrir um bann við því að æðstu stjórn­endur í Stjórn­ar­ráð­inu og aðstoð­ar­menn ráð­herra noti upp­lýs­ingar sem þeir höfðu aðgang að í starfi sér eða öðrum til óeðli­legs ávinn­ings.

[links]Æðstu stjórn­endum verður auk þess óheim­ilt að ger­ast hags­muna­verðir í sex mán­uði eftir að störfum fyrir Stjórn­ar­ráðið lýk­ur. For­sæt­is­ráðu­neytið getur veitt und­an­þágu frá þessu banni ef lítil eða engin hætta er talin á hags­muna­á­rekstrum vegna nýja starfs­ins.

Í áður­nefndri grein Katrínar sagði hún að ein­hverjir kynnu að ætla að það að setja skýr­ari reglur um hags­muna­skrán­ingu og aukið gagn­sæi um æðstu stjórn­endur í Stjórn­ar­ráð­inu sýni að eitt­hvað tor­tryggi­legt sé í gangi í stjórn­sýslu rík­is­ins. Hún telur þvert á móti að það sýni vilja hand­hafa opin­bers valds til að efla gagn­sæi. „Ég tel að þessi lög feli í sér jákvætt skref í átt að opn­ari og vand­aðri stjórn­ar­háttum innan Stjórn­ar­ráðs­ins. Reynsla af fram­kvæmd þeirra mun enn fremur varpa ljósi á það hvort ástæða sé til að leiða í lög strang­ari reglur eða sam­bæri­legar reglur um fleiri hópa opin­berra starfs­manna, svo sem for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár