Hagsmunasamtök heimilanna þau einu sem hafa tilkynnt hagsmunaverði

Ekkert stóru hags­muna­sam­tak­anna í land­inu hefur til­kynnt starfs­menn sína sem vinna við að hafa áhrif á ákvarð­anir stjórn­valda sem hags­muna­verði, þrátt fyrir að lög sem krefj­ist þess hafi tekið gildi fyrir tveimur mán­uðum.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, er ein þeirra sem skráð voru sem hagsmunaverðir á vegum samtakanna.
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna, er ein þeirra sem skráð voru sem hags­muna­verðir á vegum sam­tak­anna. Mynd: Flokkur fólksins

Hags­muna­sam­tök heim­il­anna eru einu hags­muna­sam­tök lands­ins sem hafa sent til­kynn­ingu til Stjórn­ar­ráðs Íslands um skrán­ingu hags­muna­varða, sem kall­ast einnig lobbí­istar. Samtökin skráðu í þeirri til­kynn­ingu þrjá ein­stak­linga sem hags­muna­verði á sínum vegum: for­mann og vara­for­mann stjórnar og sér­fræð­ing á mál­efna­sviði sam­tak­anna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu um skrán­ingu hags­muna­varða sem sam­tökin hafa sent Kjarn­anum. Til­kynn­ingin var send til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins 1. jan­úar 2021, sama dag og ný lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum, sem kalla á skrán­ingu hags­muna­varða, gengu í gildi.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að einn aðili hafi skráð sig sem hags­muna­vörð þrátt fyrir að tveir mán­uðir væru liðnir frá því að lög fóru að kveða á um slíka skrán­ingu. Þar var byggt á svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata um málið. Ljóst er að rétt­ara er að segja að ein til­kynn­ing um hags­muna­verði hafi borist sem náði yfir þrjá ein­stak­linga.

[adspot]Þetta þýðir að öll stærstu hags­muna­sam­tök lands­ins, sem ítrekað beita sér á öllum stigum laga­setn­ingar og reyna að hafa áhrif á mörgum öðrum sviðum stjórn­mála og stjórn­sýslu á hverjum degi, hafa ekki skráð starfs­fólk sitt sem sinnir þeim verkum á þann hátt sem lög kalla eftir. Þar er til að mynda um að ræða Samtök atvinnu­lífs­ins og öll aðild­ar­sam­tök þeirra.

Telja ráðuneytið brotlegt

Laga­setn­ingin gerði einnig ráð fyrir að skrá yfir til­kynn­ingar um hags­muna­verði yrði birt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Það hefur ekki gerst og sam­kvæmt svari for­sæt­is­ráð­herra stendur vinna við gerð sér­staks vef­svæðis yfir. „Vinnan er á loka­stigi en ráð­gert er að vef­svæðið verði aðgengi­legt almenn­ingi í lok febr­ú­ar­mán­að­ar.“

[links]Hags­muna­sam­tök heim­il­anna telur að í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóns Þórs felist við­ur­kenn­ing á nokkrum lög­brotum að hálfu þess ráðu­neytis sem hún stýrir. Þau benda meðal ann­ars á að ráðu­neytið hafi um tæp­lega tveggja mán­aða skeið verið brot­legt við laga­skyldu sína til að birta skrá yfir til­kynn­ingar um hags­muna­verði á vef Stjórn­ar­ráðs­ins, þar sem umrædd lög tóku gildi 1. jan­úar 2021.

Í svari for­sæt­is­ráð­herra kom fram að Katrín sjálf hefur átt fimm fundi á þessu tíma­bili með full­trúum hags­muna­sam­taka sem ætla má að verði skráðir hags­muna­verð­ir. Hags­muna­sam­tök heim­il­anna telja þetta einnig fela í sér lög­brot þar sem að skil­yrði laga um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum segja að til­kynna þurfi sig sem hags­muna­verði áður en hags­muna­verðir leit­ast við að hafa áhrif á störf stjórn­valda. „Ekki kemur fram hversu mörg slík til­vik eru hjá öðrum ráðu­neytum og stofn­unum, en leiða má líkur að því að þau séu enn fleiri, fyrst að ekki hefur verið gætt að þessu hjá því ráðu­neyti sem ber sjálft ábyrgð á fram­kvæmd þess­ara laga.“

Að lokum gera Hags­muna­sam­tök heim­il­anna athug­ast við það að í svari for­sæt­is­ráð­herra komi ekki fram hverjir hafi verið til­kynntir sem hags­muna­verðir eins og spurt var um, heldur er aðeins getið um fjölda slíkra til­kynn­inga. „Þar sem nöfn við­kom­andi aðila komu vissu­lega fram í til­kynn­ingu okkar og ráðu­neytið bjó því sann­ar­lega yfir upp­lýs­ingum um hverjir það væru, en lét þess ekki getið í svar­inu, brýtur það í bága við 1. mgr. 50. gr. laga um þing­sköp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár