Ógjörningur að hunsa pólitíkina í Eurovision

Sigur Úkraínu í Eurovision sýnir svart á hvítu að keppnin er póli­tísk. Sam­staðan sem Evr­ópu­þjóðir sýndu með með orðum og gjörðum hefur þrýst á Samband evr­ópskra sjón­varps­stöðva að end­ur­skoða reglur um póli­tík í Eurovision.

Liðsmenn úkraínsku þjóðlagarappsveitarinnar Kalush Orchestra, sem unnu Eurovision um síðasta helgi, voru mættir til úkraínsku borgarinnar Lviv þremur dögum eftir sigurinn.
Liðsmenn úkra­ínsku þjóð­lag­arappsveit­ar­innar Kalush Orchestra, sem unnu Eurovision um síð­asta helgi, voru mættir til úkra­ínsku borg­ar­innar Lviv þremur dögum eftir sig­ur­inn. Mynd: EPA

Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Eurovision, fór fram í 66. sinn um síð­ustu helgi, að þessu sinni í Tórínó á Ítalíu. Allt var eins og það átti að vera: Fjörug fram­lög þar sem öllu var til tjaldað, kraft­miklar ball­öður, bún­inga­skipti, vand­ræða­legir kynnar og Eurovision-hækk­arnir (sem voru reyndar óvenju fáar í ár). Og svo má ekki gleyma póli­tík­inni sem var svo sann­ar­lega til staðar í ár.

Sigur Úkraínu í Eurovision kom fáum, ef ein­hverjum, á óvart. Úkraínu hafði verið spáð sigri af veð­bönkum frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst 24. febr­úar. Úkraína hafði þá þegar valið fram­lag, lagið Stefania í flutn­ingi þjóð­laga-rappsveit­ar­innar Kalush Orchestra.

„Hvers konar sigur, frá hvaða hlið sem er, skiptir Úkraínu miklu máli,“ sögðu liðs­menn Kalush Orchestra þegar þeir lyftu gler­hljóð­nem­anum á loft. Sigurinn þykir gríð­ar­lega tákn­rænn, hann sýnir ótví­ræðan stuðn­ing Evr­ópu­búa við Úkraínu og kröfu þeirra um að stríð­inu í Úkraínu ljúki sem fyrst. En þessi ótví­ræði stuðn­ingur sannar líka það sem löngum hefur verið þrætt fyrir: Eurovision er póli­tísk keppni.

Enginn samúðarsigur

Úkraína fékk 631 stig í heild­ina, þar af 438 stig í síma­kosn­ing­unni, af 480 mögu­legum. Það þýðir að nán­ast hvert ein­asta land af þeim 40 sem tóku þátt i síma­kosn­ingu, fyrir utan sjálfa Úkraínu sem ekki gat kosið eigið land, gáfu Úkraínu 12 stig.

[links]Aðeins Salvador Sobral, sem sigr­aði með fram­lagi Portú­gala árið 2017, hefur fengið fleiri stig, 758, eftir að núgild­andi stiga­gjöf var tekin í notkun árið 2016 þar sem stig dóm­nefnda eru aðskilin frá stigum úr síma­kosn­ingu og til­kynnt í sitt­hvoru lagi til að auka spennu í keppn­inni.

En Úkraína sló metið í fjölda stiga í síma­kosn­ingu en Sobral átti einmitt fyrra metið, 376 stig. Sam­staðan í stiga­gjöf­inni vakti verð­skuld­aða athygli, meðal ann­ars hjá fyrr­ver­andi Eurovision-far­anum Páli Óskar Hjálmtýs­syni, sem deildi mynd á Facebook dag­inn eftir sigur Úkraínu þar sem sjá má hvernig atkvæðin féllu. „Þetta er það fal­leg­asta sem ég fæ að sjá í dag,“ skrif­aði Páll Óskar í færslu sinni..

Sigur Úkraínu er eng­inn sam­úð­ar­sigur. Úkraína hefur átt góðu gengi að fagna í keppn­inni frá því landið tók fyrst þátt árið 2003 og er í hópi örfárra landa sem hafa alltaf kom­ist áfram á úrslita­kvöldið eftir að slíkt fyr­ir­komu­lag var tekið upp árið 2004. Það ár vann Úkraína einmitt keppn­ina þegar Ruslana tryllti Evrópu með „Wild Dances“. Úkraína hrós­aði aftur sigri árið 2016 þegar Jamala flutti lagið „1944“ en sig­ur­inn í ár er sá tákn­ræn­asti. Gengi Úkraínu í keppn­inni er um margt áhuga­verður en landið er það fyrsta á þess­ari öld sem vinnur keppn­ina þrisvar sinnum og fyrsta Austur-Evr­ópu­þjóðin sem tekst það frá upp­hafi.

„Eurovision er ópólitísk keppni“

Skipu­leggj­endur Eurovision hafa frá upp­hafi lagt áherslu á að Eurovision sé ópóli­tísk keppni og að til­gangur hennar sé að sam­eina Evrópu, ekki sundra. Póli­tíkin hefur þó aldrei verið langt undan. Þátttaka Ísraels hefur til að mynda orðið umdeild­ari með tím­anum og þekkt er orðið þegar liðs­menn Hatara, sem kepptu fyrir Íslands hönd fyrir þremur árum, drógu upp trefla í fána­litum Palest­ínu í græna her­berg­inu. RÚV var í kjöl­farið sektað um 5000 evrur af Sambandi evr­ópskra sjón­varps­stöðva (EBU). Upphæðin nam um 700 þús­und krónum á þeim tíma og er lág­marks­sekt sem EBU leggur á sjón­varps­stöðvar ger­ist þær brot­legar við reglur keppn­innar.

Systur, sem fluttu fram­lag Íslands í ár, voru með úkra­ínska fán­ann á hljóð­færum sínum við, veif­uðu fán­anum í græna her­berg­inu, lýstu yfir stuðn­ingi við Úkraínu að loknum flutn­ingi sínum og Elín Eyþórs­dóttir, ein systr­anna, var með úkra­ínsku fána­lit­ina mál­aða á hand­ar­bakið sem sást glögg­lega í flutn­ingnum. Það þótti hins vegar ekki til­efni til sektar að þessu sinni, þar sem Úkraína er ekki flokkuð, sam­kvæmt reglum keppn­innar, sem land­svæði sem ágrein­ingur ríkir um (e. Contested ter­ritory), ólíkt Palest­ínu.

Þar fyrir utan hefði það reynst EBU ómögu­legt að ætla að sekta alla kepp­endur sem sýndu Úkraínu stuðn­ing. Keppn­is­hald­arar virt­ust auk þess setja tón­inn í upp­hafi kvölds þegar upp­hafs­at­riðið var lag eins þekktasta frið­ar­sinna síð­ustu aldar, Johns Lennon, „Give Peace a Chance“.

Hávær krafa um endurskoðun pólitískra reglna

Í reglum keppn­innar segir meðal ann­ars að Eurovision sé „ópóli­tískur við­burður“ og að allar sjón­varps­stöðvar sem senda þátt­töku­þjóðir, þar á meðal þjóðin sem heldur keppn­ina, verði að ábyrgj­ast að póli­tískum skila­boðum verði ekki komið á fram­færi af flytj­endum. Engin leið var að virða þessa klausu í keppn­inni í ár sökum stríðs­ins í Úkraínu og heyr­ast nú háværar raddir þess efnis að EBU end­ur­skoði póli­tískar reglur og gildi keppn­innar.

Sama hvort það verði gert af alvöru eða ekki þá sýnir afger­andi sigur Úkraínu í keppn­inni í ár að Evr­ópu­búar eru til­búnir að nota menn­ing­ar­legan vett­vang til að senda póli­tísk skila­boð. Og það virk­aði í þetta skipti.

En sigur Úkraínu vekur upp margar póli­tískar spurn­ingar um keppn­ina að ári. Hvar verður hún haldin? Volodomír Zelenskí, for­seti Úkraínu, vill að keppnin verði haldin í Mariupol, borg sem rúss­neskar her­sveitir hafa nán­ast lagt í rúst. Zelenskí lofar því að eftir ár verði borgin „frjáls, frið­sæl og end­ur­byggð.“

Verði það ekki mögu­leiki verður þó lítið mál að finna sama­stað fyrir keppn­ina en Ítalir eru í góðri æfingu eftir keppn­ina í ár og hafa boð­ist til að halda hana aftur að ári. Þá hafa Svíþjóð og Spánn einnig boð­ist til að halda Eurovision 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár