Átta misáhugaverðar staðreyndir um Eurovision

25 lönd taka þátt í úrslitum Eurovision í Tórínó á Ítalíu í kvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Eurovision og kjör­dag í Alþingis- eða sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum ber upp á sama dag. Kjarninn tók saman nokkrar stað­reyndir um keppni kvölds­ins.

Systur: Sigga, Beta og Elín, verða átjándu á svið í úrslitum Eurovision í Tórínó á Ítalíu í kvöld.
Systur: Sigga, Beta og Elín, verða átj­ándu á svið í úrslitum Eurovision í Tórínó á Ítalíu í kvöld. Mynd: EPA

Þetta helsta…

40 þátt­töku­þjóðir eru meðal kepp­enda í Tórínó í kvöld, sem er 66. Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva. 39 þjóðir tóku þátt í fyrra en í ár snúa Armería og Svart­fjalla­land aftur eftir stutt hlé en Rússum var vísað úr keppni sökum stríðs­ins í Úkraínu.

Ísland eitt sjö hópatriða

17 ein­söngv­arar stíga á svið í kvöld, átta konur og níu karlar, einn dúett og sjö hópat­riði, þar á meðal Ísland.

Ekki sungið á frönsku í fyrsta sinn í sögu Eurovision

14 lög verða flutt á ensku, sex á öðru tungu­máli en ensku og fimm á fleiri en einu tungu­máli. Til gam­ans má geta að í fyrsta sinn í sögu Eurovision verður ekk­ert lag flutt á frönsku söngv­ar­arnir Alvan og Ahez munu flytja fram­lag Frakk­lands á bretónsku, kel­tensku tungu­máli sem talað er á Bret­an­íu­skaga í norð­vestur Frakk­landi, þar sem söngv­ar­arnir eiga ættir að rekja.[adspot]

Ísland á besta stað í röðinni?

Eftir að Systur komust áfram í úrslita­kvöldið í vik­unni drógu þær um hvort þær verða í fyrri eða seinni hluta keppn­innar í kvöld. Þær drógu seinni og verða átj­ándu á svið í kvöld, sem sam­kvæmt óvís­inda­legri rann­sókn á að vera besta sætið. Því hefur lengi verið haldið fram af Eurovisionsér­fræð­ingum að betra sé að stíga á svið í seinni hluta keppn­innar. Í umfjöllun RÚV um sæta­skip­an­ina er vísað í blogg­síðu dyggs Eurovision-aðdá­anda sem hefur kom­ist að því með því að reikna út með­al­stig þjóða eftir sæta­skipan er best að vera númer átján á svið.

Ísland gæti rifjað upp kynnin við 16. sætið

Ísland verður að öllum lík­indum ekki í bar­áttu um sæti í efri hluta keppn­innar í kvöld og mun loka­nið­ur­staðan lík­lega vera á svip­uðu róli og röðin í rás­röð­inni. Veð­bankar spá Íslandi 19. sæti en Systur hafa verið að koma á óvart og hver veit nema hið marg­róm­aða „íslenska“ 16. sæti verði nið­ur­staðan?

Sigur í raun óþarfi til að halda keppnina

Umræðan um hvar eigi að halda Eurovision þegar Ísland vinnur kemst oft á flug í aðdrag­anda hverrar Eurovision-keppni. Nú er staðan sú að sigur er ekki skil­yrði fyrir að halda keppn­ina. Samkvæmt reglum Sambands evr­ópskra sjón­varps­stöðva (EBU) verður keppnin að fara fram í Evrópu. Því getur Ástralía ekki haldið keppn­ina.

Ljóst er að keppnin mun ekki fara fram í Úkraínu að ári sökum stríðs­ins en það gæti flækt málin þar sem Úkraínu er spáð sigri í keppn­inni. Ísland er raun­hæfur val­kostur að mati Skarp­héð­ins Guð­munds­sonar, dag­skrár­stjóra RÚV, en hann sagði í sam­tali við Frétta­blaðið í vik­unni að EBU hafi „ítrekað lýst yfir stuðn­ingi, til­trú og trausti til okkar smærri keppn­is­þjóða.“

Mun Mika taka Grace Kelly?

Kynnar kvölds­ins eru útvarps­mað­ur­inn Alessandro Cattelan, söng­konan Laura Pausini og bresk-líbanski söngv­ar­inn Mika. Laura og Mika stigu á svið á seinna und­an­úr­slita­kvöld­inu við mis­mik­inn fögnuð Eurovision­að­dá­enda. Mika tók hins vegar ekki sinn mesta slag­ara, Grace Kelly, og hans helstu aðdá­endur bíða spenntir eftir að hann stígi á svið í Tórínó í kvöld á meðan allar síma­línur verða rauð­gló­andi í síma­kosn­ing­unni.

Að minnsta kosti í þriðja sinn sem kosningar og Eurovision ber upp á sama dag

Það hefur vart farið fram­hjá neinum að Eurovision er ekki það eina mark­verða sem er á dag­skrá í dag, sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara einnig fram í dag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kosn­ingar á Íslandi fara fram sama dag og Eurovision. Það var einnig raunin í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 25. maí 2002, og í Alþing­is­kosn­ingum 12. maí 2007.

Eurovision á sama degi og kosn­ingar býður upp á ýmsar áskor­anir, ekki síst fyrir Rík­is­út­varpið, sem hefur ákveðið að bregð­ast við því að þessu sinni með því að sýna Eurovision bæði á RÚV og RÚV 2 en skipta alfarið yfir á RÚV 2 þegar kosn­inga­vaka RÚV hefst klukkan 21:50. Eurovision­að­dá­endur hér heima botna lítið í því af hverju kosn­inga­vakan megi ekki bara byrja aðeins seinna en RÚV er fjöl­mið­ill í almanna­þjón­ustu og þarf því að sinna hlut­verki sínu í kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár