Framleiðandi Beck's borgar bætur fyrir að halda því ranglega fram að bjórinn sé þýskur

Fram­leiðandi Beck's bjórsins í Banda­ríkjunum hefur samþykkt að greiða viðskipta­vinum sínum þar í landi skaða­bætur, fyrir að fullyrða ranglega að bjórinn komi frá Þýska­landi. Wall Street Journal greinir frá málinu. Bjórinn sem seldur er í Banda­ríkjunum undir merkjum Beck's er ekki lengur bruggaður í Þýska­landi heldur í St Louis í Missouri ríki.

Aðdáendur Beck's bjórsins geta sótt allt að fimmtíu dollara endur­greiðslu frá fram­leiðandanum, ef þeir staðhæfa að þeir hafi keypt bjórinn í góðri trú um að hann væri þýskur á árunum 2011, gegn framvísun á kvittunum.

„Skaða­bæturnar“ má rekja til hópmálsóknar á hendur Anheuser-Busch InBev bjór­fram­leiðandanum, sem sakaður var um að gabba fólk til að kaupa bjórinn með því að fullyrða að hann væri þýskur. Auk bótanna greiðir bjór­fram­leiðandinn 3,5 milljónir bandaríkja­dala til lögfræðinga sem héldu úti hópmálssókninni.

En misskilningurinn er skiljanlegur í ljósi þess að Beck's í Banda­ríkjunum var einu sinni innfluttur frá Þýska­landi. Brugg­verksmiðjan, sem var fjölskyldu­fyrirtæki til ársins 2002, þegar hún var seld til belgíska félagsins Interbrew. Það félag rann saman við brasilískt félag, AmBev, og varð InBev. Það félag keypti svo Anheuser-Busch og flutti fram­leiðslu Beck's til St. Louis árið 2012.

Stefna málsins byggði meðal annars á slagorðum sem birtist á pakkningum Beck's bjórsins, eins og „Þýskur gæðabjór“ og „Frá Bremen, í Þýska­landi.“ Markaðs­setningin þótti gefa ranga mynd af hvar bjórinn væri í raun fram­leiddur. Hin meintu brot voru talin varða við bandaríska neytenda­löggjöf.

Viðskipta­vinir Beck's geta krafist endur­greiðslu sem nemur tíu sentum af hverri keyptri stakri flösku frá því í maímánuði árið 2011. Þá geta þeir fengið 50 sent fyrir hverja keypta kippu og hátt í tvo dali fyrir 20 bjóra pakkningu.

Bæturnar geta ekki orðið hærri en 50 dalir, og þeir sem geta ekki framvísað kvittunum geta mest fengið 12 bandaríkja­dali í skaða­bætur fyrir að hafa verið narraðir til að kaupa Beck's bjór með ósannindum. Þá var bjór­fram­leiðandinn skyldaður til að merkja skilmerki­lega pakkningar sínar með: „Made in America.“

Þetta er annað málið sem Anheuser-Busch neyðist til að semja um utan dómstóla. Á síðasta ári fékk félagið á sig sambærilega hópmálssókn í tengslum við markaðs­setningu bjór­fram­leiðandans á Kirin bjór, þar sem fyrir­tækið var sakað um að halda því ranglega fram að bjórinn væri fram­leiddur í Japan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár