Alþjóðleg viðurkenning á þjóðarmorðum geti verið lykillinn að því að réttlætisferli hefjist

Þingmenn fimm flokka vilja að Alþingi við­ur­kenni Anfal-her­ferð­ina, sem átti sér stað á árunum 1986 til 1989, sem þjóð­ar­morð á Kúrdum og glæp gegn mann­kyni.

Lenya Rún Taha Karim
Lenya Rún Taha Karim Mynd: Skjáskot/Alþingi

Átján þing­menn Pírata, Flokks fólks­ins, Við­reisnar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna hafa lagt fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um að við­ur­kenna Anfal-her­ferð­ina sem þjóð­ar­morð á Kúrdum.

Fyrsti flutn­ings­maður er Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata. Þing­menn­irnir vilja að Alþingi við­ur­kenni Anfal-her­ferð­ina, sem átti sér stað á árunum 1986 til 1989, sem þjóð­ar­morð á Kúrdum og glæp gegn mann­kyni.

Fram kemur í álykt­un­inni að hún hafi áður verið lögð fram á síð­asta þingi en ekki hlotið afgreiðslu. Hún sé nú lögð fram að nýju óbreytt.

Ráðist inn á heimili Kúrda að nóttu til, heimilisfólkið dregið út og það sent í útrýmingarbúðir

Í grein­ar­gerð með álykt­un­inni segir að Sam­ein­uðu þjóð­irnar hefðu sam­þykkt árið 1948 að for­dæma skyldi þjóð­ar­morð og refsa þeim sem þau fremja. Þjóð­ar­morð séu glæpur sam­kvæmt þjóða­rétti og feli í sér kerf­is­bundna útrým­ingu þjóðar eða þjóð­ar­brots.

„Í sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna um ráð­staf­anir gegn og refs­ingar fyrir þjóð­ar­morð eru þau skil­greind sem refsi­verður verkn­aður, framin í þeim til­gangi að útrýma með öllu eða að hluta þjóð, þjóð­ern­is­hópi, kyn­stofni eða trú­ar­flokki, með því að drepa ein­stak­linga úr við­kom­andi hópi, skaða þá lík­am­lega eða and­lega, þröngva við­kom­andi hópi af ásetn­ingi til þess að búa við lífs­skil­yrði sem miða að eyð­ingu hóps­ins eða hluta hans, beita þving­un­ar­að­gerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barns­fæð­ingar í hópnum eða flytja börn með valdi úr hópnum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þá kemur fram að á árunum 1986 til 1989 hefðu á bil­inu 100.000 til 180.000 verið Kúrdar teknir af lífi í Anfal-her­ferð­inni sem fram­kvæmd var af Ba'ath flokknum í Írak undir stjórn Saddam Hussein. Anfal-her­ferðin hafi verið fram­kvæmd í átta stigum, þar sem meðal ann­ars hafi verið ráð­ist inn á heim­ili Kúrda að nóttu til, heim­il­is­fólkið dregið út og það sent í útrým­ing­ar­búðir.

Enn verið að finna og grafa upp fjöldagrafir á víð og dreif um Suður-Kúrdistan

Greint er frá því að við hafi tekið ferli sem mið­aði að því að skipta út þjóð­flokki Kúrda alfarið fyrir fólk af arab­ískum upp­runa í Suður-Kúr­distan. Samkvæmt Mann­rétt­inda­vakt­inni dóu á bil­inu 50.000 til 100.000 Kúrdar á árunum 1986 til 1988, en kúrdískir emb­ætt­is­menn telja að hátt í 182.000 manns hafi týnt lífi. Hver sem end­an­leg tala er þá er enn verið að finna og grafa upp fjölda­grafir á víð og dreif um Suður-Kúr­distan, segir í til­lög­unni.

„Saddam Hussein rétt­lætti Anfal-her­ferð­ina á grund­velli túlk­unar á 8. súru Kór­ans­ins um að Kúrdar væru í raun ekki alvöru múslimar heldur synd­arar. Að taka naut­gripi, pen­inga, kindur og kúrdískar konur frá heim­ilum var gert lög­legt og rétt­lætt með vísan í 8. súru Kór­ans­ins.

Anfal-her­ferðin hefur enn mikil áhrif á stöðu Kúrda. Þúsundir Kúrda eru án heim­ilis og á flótta, fjöl­mörg börn ólust upp án for­eldra og á mun­að­ar­leys­ingja­hælum, þorp og land­svæði voru þurrkuð út og enn er verið að vinna að því byggja þau aftur upp, sam­tímis því sem lík­ams­leifar fleiri fórn­ar­lamba finn­ast enn,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Dæmdur til dauða en ekki fyrir þátt sinn í Anfal-herferðinni

Bent er á að Saddam Hussein hafi verið dæmdur til dauða en ekki fyrir þátt sinn í Anfal-her­ferð­inni. „Margir Kúrdar gera enn kröfu um að rétt­læt­inu verði full­nægt í ljósi þess að Hussein hlaut ekki dóm fyrir þátt sinn í Anfal-her­ferð­inni.

Ba'ath-flokk­ur­inn var lagður niður og kúrdísk upp­reisn gegn honum árið 1991 leiddi af sér kúrdíska rík­is­stjórn í Suður-Kúr­distan árið 1992. Meðlimir Ba'ath-flokks­ins voru útskúf­aðir úr kúrdískum bæjum og þorpum þar til árs­ins 1996. Eft­ir­lif­endum Anfal-her­ferð­ar­innar og þeim sem náðu að flýja útrým­ing­ar­búðir hefur verið boðið aftur til Kúr­distan til að bera vitni gegn sak­born­ingum í rétt­ar­höldum.“

Viðurkenning og fordæming á verknaðinum mikilvægt skref

Að lokum segir í grein­ar­gerð­inni að Bretland, Svíþjóð, Noregur og Suður-Kórea hafi þegar við­ur­kennt Anfal-her­ferð­ina sem þjóð­ar­morð. Áfram­hald­andi við­ur­kenn­ing og for­dæm­ing á verkn­að­inum sé mik­il­vægt skref í skiln­ingi alþjóða­laga til að tryggja þeim sem lifðu hörm­ung­arnar af aðgang að ferlum sem miða að upp­gjöri og rétt­læti, en dæmi frá Bosníu og Her­segóvínu, Rúanda og víðar hafi sýnt að alþjóð­leg við­ur­kenn­ing á þjóð­ar­morðum getur verið lyk­ill­inn að því að rétt­læt­is­ferli hefj­ist.

„Þótt atburð­irnir séu nær okkur í tíma en til að mynda hel­förin eða þjóð­ar­morð Tyrkja á Armenum, þá er mik­il­vægi við­ur­kenn­ingar nú enn meira í ljósi við­var­andi skerð­ingar á mann­rétt­indum Kúrda í Tyrk­landi, Írak, Sýrlandi og víðar, áfram­hald­andi flótta­manna­stöðu tug­þús­unda Kúrda, þáttar Kúrda í nið­ur­falli Daesh- sam­tak­anna (ISIS), og ekki hvað síst við­leitni Kúrda til þess að fá Kúr­distan við­ur­kennt sem sjálf­stætt ríki þeirra,“ segir að lokum í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár