Eldri borgarar auglýsa eftir svartri vinnu vegna breytinganna um áramótin

Í tölvu­pósti sem gengur á milli eldri borg­ara er biðlað til atvinnu­rek­enda að ráða elli­líf­eyr­is­þega í svarta vinnu svo þeir nái endum saman og geti haldið áfram á vinnu­mark­aði. Breyt­ingar á lögum um almanna­trygg­ingar, sem taka gildi um ára­mótin, gera eldri borg­urum nán­ast ókleift að vinna sam­hliða líf­eyr­is­greiðslum.

Harkið
Harkið Fólk sem vann við sjó­mennsku, sem verk­takar eða bændur, fær oft mjög lágar líf­eyr­is­greiðslur. Myndin teng­ist efn­inu ekki beint.

Vegna laga­breyt­inga, sem munu meðal ann­ars lækka frí­tekju­mark líf­eyr­is­þega úr 109 þús­und krónum í 25 þús­und krónur, taka eldri borg­arar sig nú saman um að aug­lýsa eftir svartri vinnu.

Í fjölda­tölvu­pósti sem gengið hefur á milli eldri borg­ara er því lýst yfir að, vegna breyt­ing­anna á almanna­trygg­ing­ar­lögum, neyð­ist þeir nú til þess að fara að vinna svart.

Eldri borg­arar sem Stundin ræddi við í fyrri umfjöllun um breyt­ing­arnar, segja að hrein­lega sé verið að þvinga fólk sem vill stunda vinnu út af atvinnu­mark­aði.

Í keðju­bréf­inu sem Stund­inni barst eru laga­breyt­ing­arnar gagn­rýndar harð­lega og fast er skotið á síð­ustu rík­is­stjórn: „Yfir­lýs­ingar og fag­ur­gali íslenskra stjórn­mála­manna um að skapa vinnu­um­hverfi og aðstæður í þjóð­fé­lag­inu svo að eldri borg­arar geti starfað sem lengst til að skapa þeim betra heilsu­far og vel­sæmd eru því marklausar með öllu.“  

Í bréf­inu er svo kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þeir sem vilji halda áfram að vinna neyð­ist nú til þess að sækja sér svarta vinnu, til þess að kom­ast hjá hinum miklu skerð­ingum sem eru í vændum þann 1. jan­úar. „[…]eigum við að fara heim um ármótin og versl­ast upp drep­ast úr leið­indum eða neyð­umst við til að ná okkur í SVARTA VINNU?“ Að lokum eru atvinnu­rek­endur svo ákall­aðir að nýta sér stund­vísa, reglu­sama og heilsu­hrausta eldri borg­ara í svarta vinnu. „ÞVÍ NÚ ER ÞAÐ SVART OG ALLTAF DÖKKNAR ÞAÐ!“ 

Í bréf­inu er komið inn á það hverjar afleið­ingar þess að hætta vinnu geta verið fyrir eldri borg­ara. Þeir eigi það á hættu að ein­angr­ast félags­lega, auk þess sem and­legri og lík­am­legri heilsu þeirra hraki hraðar en hjá þeim sem haldi lengur áfram á vinnu­mark­aði. Rann­sóknir sem gerðar hafa verið virð­ast styðja við þá kenn­ingu, og jafn­vel að eftir því sem fólk er lengur utan vinnu­mark­aðar hraki heils­unni meira. 

Dreifibréfið.
Dreifi­bréfið. Ef engar breyt­ingar verða gerðar munu fjöl­margir eldri borg­arar neyð­ast til þess að hætta vinnu um ára­mótin.

„...varðhundur kerfisins til áratuga á rjómaríkum bitlingaspena framsóknar í gegnum lífið“

 

Í öðru dreifi­bréfi sem sagt er ganga á milli eldri borg­ara er Haukur Ingi­bergs­son, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara tek­inn föstum tökum. Þar er spurt hvort það sé ekki dæmi­gert fyrir íslenskt stjórn­kerfi „að fram­sókn­ar­mað­ur­inn Haukur Ingi­bergs­son, varð­hundur kerf­is­ins til ára­tuga á rjóma­ríkum bit­linga­spena fram­sóknar í gegnum lífið“ sé í dag for­maður Land­sam­bands­ins. Hans hlut­verk þar sé „að sjá til þess og tryggja það að sem flestir eldri borg­arar lifi sem skemmst og það á und­an­rennu.“

Skotið á Hauk.
Skotið á Hauk. Haukur Ingi­bergs­son, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, er sagður lifa á „rjóma­ríkum bit­linga­spena fram­sóknar“ á meðan eldra fólk fái aðeins und­an­rennu.

Í sam­tali við Stundina sagð­ist Haukur þó hefði viljað sjá frí­tekju­markið mun hærra. Fyr­ir­ætlun stjórn­valda hafi verið að skerða bætur strax frá fyrstu tekjum. Lands­sam­bandið skil­aði áliti við þá til­lögu þar sem komið var á fram­færi að frí­tekju­markið þyrfti að hækka til þess að auka atvinnu­þátt­töku eldri borg­ara. 

Nú eftir ára­mót fá eldri borg­arar mest 180 krónur af hverjum 1000 eftir að yfir frí­tekju­markið er farið. Haukur sagði það vera of lítið, en hann hafði sjálfu heyrt í fólki sem mun hætta á vinnu­mark­aði eftir að breyt­ing­arnar taka gildi. „Ég vil sjá end­ur­skoðun á þessu ákvæði hvað varðar frí­tekju­markið og tek alveg undir þessa gagn­rýni. Þetta er ekk­ert í þágu sam­fé­lags­ins. Eldri borg­arar vilja og geta unnið, það er þörf á vinnu­kröftum þeirra, þess vegna á frí­tekju­markið að vera marg­falt hærra en það er núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár